Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Ný íslensk ópera í Berlín, Adrianne Lenker og Stefán sigrar atvinnulífið
    Í gærkvöldi var ný íslensk ópera frumflutt í Berlín. Óperan ber heitið Cave, og kemur úr smiðju tónskáldsins Hauks Þórs Harðarsonar, sem var einn þriggja vinningshafa í keppni sem ber yfirskriftina Neue Szenen, og er ætlað að vekja athygli á nýjum og áhugaverðum röddum í heimi klassískrar tónlistar og óperu. Við sláum á þráðinn hjá Hauki Þór í upphafi þáttar.
    Kalta Ársælsdóttir rýnir í einleikinn Stefán sigrar atvinnulífið, sem grínistinn og sviðshöfundurinn Stefán Ingvar Vigfússon sýnir í Sykursalnum og í síðari hluta þáttar setur Tómas Ævar upp greiningargleraugun í umfjöllun sinni um nýja tónleikaplötu bandarísku tónlistarkonunnar Adrianne Lenker Live at Revolution Hall sem kom út í síðustu viku.
    Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir og Tómas Ævar Ólafsson
    51 min
  • Svipmynd af Ara Braga Kárasyni
    Ari Bragi Kárason eyddi öllum fermingarpeningunum í geisladiskabúð og tæmdi þar trompetrekkann. 16 ára stakk hann af til New York til þess að sjá átrúnaðargoðin í jazzklúbbum borgarinnar. Hann einsetti sér að flytja þangað og læra en eftir fimm ára dvöl og útskrift með láði fór hann að tvístíga frammi fyrir raunveruleika tónlistarbransans. Þá gerði hann sér lítið fyrir, varð afreksmaður í íþróttum og sló Íslandsmet í spretthlaupi sem enn stendur. En tónlistin varð ofan á að lokum og nýlega afrekaði Ari Bragi að verða fyrsti Íslendingurinn til að fá fastráðningu í Stórsveit danska útvarpsins. Trompetleikarinn Ari Bragi Kárason er gestur okkar í svipmynd dagsins.
    53 min
  • Data gígar, veruleikaflótti og Guðmundur Steinsson
    Við komum við í Þulu gallerýi við Austurbakka og skoðum þar fyrstu einkasýningu Kristínar Helgu Ríkharðsdóttur, Data Gígar, sem hverfast um eldgos á Reykjanesskaga, gagnagnótt, birtingarmyndir dægurmenningar og áferðir stafrænna og efnislegra miðla.
    Freyja Þórsdóttir flytur pistil um ólíkar og misjafnlega uppbyggilegar tegundir veruleikaflótta.
    Við rifjum einnig upp viðtal sem Eiríkur Guðmundsson tók við Sigurð Sigurjónsson, leikara og Stefán Baldursson, leikstjóra og fyrrum Þjóðleikhússtjóra, um leikskáldið Guðmund Steinsson sem hefði orðið 100 ára nú um helgina.
    56 min
  • Ljóð frá Gaza, Siddharta, slaufunarmenning
    Haustið 2023 var ljóðskáldið Mosab Abu Toha tekinn höndum þegar hann reyndi að flýja Gaza og PEN samtökin og fleiri kölluðu eftir upplýsingum um afdrif hans. Þá var liðið ár frá því að Abu Toha gaf út sína fyrstu ljóðabók, Things You May Find Hidden in My Ear, sem farið hefur sigurför um heiminn. Móheiður Hlíf Geirmundsdóttir, skáld og bóksali, þýddi bókina á íslensku og lítur við í hljóðstofu.
    Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir, grípur í sígilda bókmennt eftir Hermann Hesse, Siddhartha sem segja má að hafi orðið til þess að mörg ungmenni hippakynslóðarinnar lögðu leið sína til Indlands.
    Þá grípum við niður í fyrsta þætti Kristlínar Dísar Ingilínardóttir, Var afa mínum slaufað, þar sem Ármann Jakobsson prófessor í íslenskum bókmenntum leggur orð í belg, og rifjum upp innslag um huldutónlistarmanninn G. Weller.
    58 min
  • Hugur, gervigreindartónlist og Rúmmálsreikningur
    Hugur, tímarit Félags áhugamanna um heimspeki kemur formlega út í dag og ræðum við við ritstjóra blaðsins, Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson í þættinum. Þema tímaritsins er tækni og að því tilefni rifjum við upp viðtal sem Lestin tók við Þórhall Magnússon, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í framtíðartónlist við háskólann í Sussex, um gervigreindartónlist. Síðan hugum við að Rúmmálsreikningi eftir Solvej Balle sem tilnefnd var til alþjóðlegu Booker verðlaunanna á dögunum.
    54 min
  • Reykvíska snemmtónlistarhátíðin, Kynslóðir jökla og Hringir Orfeusar/rýni
    Á nýliðnum alþjóðadegi jökla, þann 21. mars, opnaði sýning undir yfirskriftinni Kynslóðir jökla í nýtilkominni menningarmiðstöð í Loftskeytastöðinni við Suðurgötu. Sýningin er ferðalag í gegnum sögu jöklabreytinga og myndefnið spannar tímabil mikilla breytinga á hvorutveggja, hinni sjónrænu arfleifð og ásjónu jökla. Jöklafræðingurinn Hrafnhildur Hannesdóttir og sýningarstýran Anna Diljá Sigurðardóttir fylgdu okkur um sýninguna.
    Nína Hjálmarsdóttir rýnir í dansverk Ernu Ómarsdóttur og Íslenska dansflokksins, Hringi Orfuesar og annað slúður.
    Þá hugum við að tónlistarhátíð sem hefst í Hörpu á mánudagskvöld og ber heitið Reykjavík Early Music Festival. Dagskrá hátíðarinnar er hin glæsilegasta, þar sem nokkrir frambærilegustu snemmtónlistarhópar samtímans troða upp. Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, fiðluleikari og ein aðstandenda hátíðarinnar mætir í hljóðstofu.
    55 min
  • Svipmynd af Herdísi Egilsdóttur
    Í tilefni af Barnamenningarhátíð endurflytjum við Svipmynd af Herdísi Egilsdóttur, kennara og rithöfundi, sem hefur tileinkað líf sitt menntun barna og barnamenningu.
    Herdís fæddist á Húsavík þann 18. júlí árið 1934 og fagnaði því níræðisafmæli sínu í sumar. Hún hóf kennslu í Ísaksskóla árið 1953 og starfaði þar í 45 ár, eða fram til ársins 1998.
    Herdís hefur skrifað fjölda bóka, leikrit, sjónvarpsefni og námsefni fyrir börn. Þar á meðal eru bækurnar um Pappírs-Pésa og Siggu og skessuna og kennsluhandbók í lestri sem nefnist Það kemur saga út úr mér. Herdís hefur þróað merkilegar kennsluaðferðir, á borð við Landnámsaðferðina, sem vakið hafa mikla athygli. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir framlag sitt til barnamenningar og segist hvergi nærri hætt.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners