Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Ný músík með Bogomil Font, Guðrún frá Lundi 138 ára og Lisa O'Neill
    Sigtryggur Baldursson á sér langan og skrautlegan feril en hann er kannski einna helst þekktur sem Bogomil Font, hans auka sjálf í söngnum sem varð til í Júgóslavíu árið 1989. Bogomil Font hefur lítið veri að koma fram upp á síðkastið en nú er hins vegar komin út ný tónlist og stutt tónleikaferðalag í vændum. Sigtryggur leit við í hljóðstofu og ræðir ferilinn og nýja tónlist. Við rifjum einnig upp viðtal við afmælisbarn dagsins, Guðrúnu frá Lundi og Tómas Ævar Ólafsson kynnir sér írsku tónlistarkonuna Lisu O’Neill.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Anna María Björnsdóttir.
    53 min
  • Ný skáldsaga Soffíu Bjarnadóttur og tónleikar með Heather Ragnars
    Soffía Bjarnadóttir, rithöfundur, ljóð- og leikskáld, heimsækir okkur í dag og segir frá nýútgefnu skáldverki sínu sem nefnist Áður en ég brjálast. Um er að ræða feminískt skáldverk um ástir, ólík breytingarferli og lífsreynslu róttækrar móður sem leitar heim í skáldskapinn þar sem goðsagnaverur vappa um. Við hugum einnig að tónlist því listahátíðin Reykjavík Fringe hóf göngu sína í gær og stendur út vikuna. Tónlistarkonan Heather Ragnars verður með tvenna tónleika á hátíðinni og leit við hjá okkur í hljóðstofu. Við rifjum einnig upp lestur Bríetar Héðinsdóttur úr rúmlega þúsund ára gamalli dagbók Sei Shónagon.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Anna María Björnsdóttir.
    54 min
  • Svipmynd af Götuhorni
    Svipmynd Víðsjár er af bókinni Götuhorni; Skáldtextar innblásnir af íslenskri myndlist, sem var gefin var út af Listasafni Íslands og Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Á blaðsíðum birta 15 rithöfundar texta sem þeir skrifa út frá listaverkum í safneign Listasafns Íslands. Textarnir eru í mörgum mismunandi stílum og túlka, prjóna við, líkja eftir og/eða greina listaverkin. Götuhorn er því skemmtilegt bland í poka af listaverkum og textum sem fara sínar eigin leiðir í samskiptum við verkin. Í svipmyndinni heyrum við frá fjórum rithöfundum sem skrifuðu í bókina, þeim Maríu Elísabetu Bragadóttur, Karólínu Rós Ólafsdóttur, Jóni Kalmani Stefánssyni og Margréti Bjarnadóttur.
    51 min
  • Tolstoj og Þorvarður Árnason
    Við hugum að rússneska rithöfundinum Leo Tolstoj en bók hans Anna Karenína kom út árið 1878 og hefur svo að segja verið í deiglunni allar götur síðan. Þessi heimsbókmennt verður til umræðu hjá okkur í sjomlahorni dagsins. Rebekka Þráinsdóttir kemur við í hljóðstofu og greinir frá verkinu.
    Þorvarður Árnason heimsækir þáttinn einnig. Hann er líffræðingur, ljósmyndari, kvikmyndagerðarmaður og umhverfishugvísindamaður sem hefur undanfarna áratugi kannað samband manns og náttúru frá ýmsum sjónarhornum. Hann er meðal listamanna á samsýningunni Jöklablámi, sem opnaði í Verksmiðjunni á Hjalteyri nýverið og í vor kom út eftir hann bókin Víðerni, þar sem hann veltir fyrir sér hinu villta í náttúru Íslands og gerir íslenskum víðernum skil á þverfaglegan hátt.
    56 min
  • Kolkrabbinn, dægurlög, Albertine æfingarnar, skrúfur og tappar
    Kolkrabbinn er ný viðburðaröð Ensemble Adapter í samvinnu við Tjarnarbíó. Á Kolkrabbanum má sjá verk sem dansa á mörkum tónlistar, gjörningalistar, dans og leikhúss, einhverskonar tilrauna-tón-leikhús sem er samt ekki ópera. Kolkrabbinn er með alla anga úti og allt í öllu og annað kvöld verður hann í fyrsta sinn á sviði Tjarnarbíós með verk sem heitir Everything Everywhere. Hörpuleikarinn Gunnhildur Einarsdóttir og slagverksleikarinn Matthias Engler eru forsprakkar Kolkrabbans og þau segja okkur nánar af uppátækjum hans í þætti dagsins.
    Gauti Kristmannsson fjallar um nýútkomna bók í glænýrri ritröð Tunglsins, Svartholi, sú er þýðing Ragnars Helga Ólafssonar á verki Anne Carson og heitir Albertine æfingarnar.
    Við hugum líka að sígildri nútímatónlist og veltum fyrir okkur hvaða dægurlög lifi af umrót tímans og einnig skoðum við tappa og skrúfur í vegg.
    52 min
  • Ásgerðarsafn, ný íslensk stórsveitartónlist og arkitektúrpistill #2
    Ásgerður Búadóttir var frumkvöðull í listvefnaði á Íslandi og telst meðal fremstu myndlistarmanna þjóðarinnar. Í síðustu viku opnaði glænýtt safn tileinkað Ásgerði og ævistarfi hennar á veraldarvefnum, á slóðinni asgerdarsafn.is. Umsjónarmaður safnsins og sonur Ásgerðar, Björn Þrándur Björnsson, segir okkur nánar af safninu og vinnunni að baki í þætti dagsins. Samúel Jón Samúelsson segir okkur líka frá tónleikum sem Stórsveit Reykjavíkur stendur fyrir í Hörpu nú á sunnudag undir yfirskriftinni Ný íslensk tónlist, en þar verða flutt glæný tónverk eftir ólíka íslenska höfunda. Og arkitektinn og arkitektúrsagnfræðingurinn Óskar Arnórsson flytur okkur pistil númer tvö í nýrri pistlaröð sem hann kallar Arkitektúr og...
    57 min
  • Svipmynd - Barbara Hannigan - þýdd útgáfa
    Barbara Hannigan er margverðlaunuð sópransöngkona og hljómsveitarstjóri, tónlistarkona í framlínu þess áhugaverðasta og vandaðasta sem gerist í klassíska tónlistarheiminum í dag. Hún er þekkt fyrir hugrekki og frumlegheit í efnisvali og sérlega vandaðar tónleikaefnisskrár, þar sem hún blandar saman gömlu og nýju á músíkalskan og áhrifaríkan hátt. Hannigan er án efa meðal hæfileikaríkustu og eftirsóttustu tónlistarmanna í heiminum og það því sannarlega stórfrétt þegar tilkynnt var að Hannigan myndi taka við stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá haustinu 2026. Og nú styttist í að Barbara Hannigan stígi á Eldborgarsviðið næst, því hún mun stýra og syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands á lokatónleikum tónleikaársins, þann 5. júní næstkomandi. Svipmynd dagsins er tileinkuð Barböru Hannigan.
    Í útsendingu ljáði Gígja Hólmgeirsdóttir Barböru rödd sína en einnig má finna ódöbbaða útgáfu viðtalsins með enskum svörum Hannigan hér í spilara RÚV, með því að leita að "Svipmynd - Barbara Hannigan - ensk útgáfa"
    56 min
  • Svipmynd - Barbara Hannigan - ensk útgáfa
    Barbara Hannigan er margverðlaunuð sópransöngkona og hljómsveitarstjóri, tónlistarkona í framlínu þess áhugaverðasta og vandaðasta sem gerist í klassíska tónlistarheiminum í dag. Hún er þekkt fyrir hugrekki og frumlegheit í efnisvali og sérlega vandaðar tónleikaefnisskrár, þar sem hún blandar saman gömlu og nýju á músíkalskan og áhrifaríkan hátt. Hannigan er án efa meðal hæfileikaríkustu og eftirsóttustu tónlistarmanna í heiminum og það því sannarlega stórfrétt þegar tilkynnt var að Hannigan myndi taka við stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá haustinu 2026. Nú styttist í að Barbara Hannigan stígi á Eldborgarsviðið næst, því hún mun stýra og syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands á lokatónleikum tónleikaársins, þann 5. júní næstkomandi.
    Svipmynd dagsins er tileinkuð Barböru Hannigan.
    Í útsendingu ljáði Gígja Hólmgeirsdóttir Barböru rödd sína, en í þessari vefútgáfu Víðsjár má heyra svör Hannigan sjálfrar á ensku.
    53 min
  • Jakob Bro, merkingarleit og pissuskálin alræmda
    Danski gítarleikarinn Jakob Bro hefur boðað komu sína til landsins. Hann ásamt saxófónleikaranum Óskari Guðjónssyni og bassaleikaranum Skúla Sverrissyni stefnir á tónleikaferð um landið sem mun hefjast á laugardag. En samferða tónleikahaldi munu þeir stunda lagasmíðar. Við mælum okkur mót við Óskar Guðjónsson í þætti dagsins og ræðum Jakob Bro og ferðalagið.
    Freyja Þórsdóttir flytur pistil þar sem hún veltir meðal annars fyrir sér hvort merkingarleit sé manneskjunni lífsnauðsynleg. Og hvort tenging við náttúruna sé mikilvægur liður í slíkri leit.
    Við rifjum einnig upp stuttan pistil frá árinu 2023 þar sem Halla Harðardóttir ræðir hina alræmdu pissuskál Duchamp og rannsakar hvort þessi frumkvöðull dadaismans hafi stolið verkinu frá listakonunni Elsu von Freytag-Loringhoven.
    56 min
  • DansDagar, Rúmmálsreikningur Solvej Balle, skrif Vals Gunnarssonar
    Dansdagar hefjast í dag og standa yfir fram á laugardagskvöld. Hátíðin er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins og Dansverkstæðisins og markmið hennar er að sögn aðstandenda að bjóða bæði atvinnudönsurum og áhugafólki upp á þjálfun og innsýn inn í ýmsa kima danslistarinnar og vekja þannig athygli á dansinum sem sameiningarafli. Danshöfundurinn og verkefnastjórinn Kara Hergils Valdimarsdóttir lítur við í hljóðstofu og segir okkur frá hátíðinni. Annars erum við að mestu með hugann við bókmenntir í þætti dagsins. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um skrif á mörkum bókmenntagreina, og tekur þar sérstaklega fyrir verk sagnfræðingsins Vals Gunnarssonar og Anna María Björnsdóttir hugar að sjö binda skáldsögu Solvej Balle, Rúmmálsreikningi, með bókmenntafræðingnum Snædísi Björnsdóttur.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners