Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Jónsmessa og bændur
    Í dag er Jónsmessa og er Víðsjá tileinkuð henni og sömuleiðis bændum. Lengi vel var útvarpað sérstökum Jónsmessuþætti bænda enda var ákveðið á Búnaðarþingi árið 1959 að Jónsmessa yrði gerð að hátíðardegi bænda. Siðurinn var lagður af rúmum tveimur áratugum síðar en í safni RÚV eru fjölmargir Jónsmessuþættir bænda frá 7. og 8. áratug síðustu aldar. Að gefnu tilefni fögnum við Jónsmessunni með bændum fortíðar og nútíðar. Heyrum brot úr viðtölum eldri þátta, heyrum í ungum bónda á Reyðarfirði og rifjum upp dulrænar hefðir Jónsmessunætur með þjóðháttafræðingum.
    54 min
  • Kristján H Magnússon málari, hljóðgervillinn Katla og Eirrek
    Við lítum inn á yfirlitssýningu huldumálarans Kristjáns H Magnússonar, sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands. Ferill Kristjáns var um margt óvenjulegur, en hann lærði málarlist í Bandaríkjunum í upphafi 20. aldar og var fyrstur Íslendinga til að halda markvisst sýningar á verkum sínum í erlendum stórborgum. Samhliða sýningum í Listasafni Íslands og Safnasafninu kemur út yfirgrips­mikil bók um ævi Kristjáns og verk í rit­stjórn Einars Fals Ingólfssonar, og við fáum hann til að segja okkur nánari deili af Kristjáni. Fyrirtækið Genki Instruments fagnar nú 10 ára afmæli, og setti nýverið á markað hljóðgervilinn Kötlu, einn allra fyrsta hljóðgervil sem þróaður hefur verið á Íslandi. Ólafur Bjarki Bogason, einn af stofnendum fyrirtækisins heimsækir hljóðstofu og segir okkur frá Genki og gervlinum. Við heyrum líka af nýútgefinu lagi eftir Eirík Stephensen, lagið nefnist Eirrek og er titillag væntanlegrar plötu.
    53 min
  • Kurt Weill við Djúpið, sviðslistaveisla í Tjarnarbíó, arkitektúr og umhverfi
    Vinkonurnar Hildigunnur Einarsdóttir og Sigríður Thorlacius völdu ólíkar leiðir í söngnum en hefur lengið dreymt um að syngja saman. Nú verður sá draumur að veruleika, því á tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði býðst gestum að hlýða á sérsniðna tónleika með tónlist Kurt Weill í útsetningum Þórðar Magnússonar, þar sem þær stöllur syngja saman og sín uppáhalds númer. Við heyrum af vináttu og verkefni söngvinkvennanna í þætti dagsins.
    Óskar Arnórsson flytur okkur líka sinn fjórða pistil í nýrri pistlaröð og fjallar um arkitektúr og umhverfi. Þá kynnum við okkur viðburð sem vafalaust verður meðal leikhúsviðburða sumarsins, en í kvöld og annað kvöld verður dansleikhúsverkið Life in this house is over sýnt í Tjarnarbíói. Leikstjóri er hin bandaríska Samantha Shay en verkið er samstarf Grotowski Institute, Pina Bausch Zentrum og Teatr Zar, með miklum fjölda dansara og leikara.
    Í lok þáttar rifjum við svo upp aðdragandann að kosningarétti kvenna og kjörgengi til Alþingis með kistubroti úr þætti Helgu Birgisdóttur og Brynhildar Heiðar og Ómarsdóttur um sögu íslenskrar kvennabaráttu á 20. og 21. öldinni.
    54 min
  • Sending frá Svalbarðseyri - Safnasafnið
    Við leggjum land undir fót í þætti dagsins og rifjum upp heimsókn á Safnasafnið á Svalbarðseyri. Þetta stórmerkilega safn fagnar í ár 30 ára afmæli og af því tilefni hefur verið efnt til sýningar úr safnkosti þess í Reykjavík. Sýningin, Sending frá Svalbarðseyri, opnaði í Nýlistasafninu þann 7. júní og stendur fram yfir verslunarmannahelgi, en þar má sjá verk vel á þriðja tugs listamanna sem Safnasafnið hefur hlúð að síðustu áratugi. Safnasafnið á Svalbarðseyri er höfuðsafn myndlistar sjálflærðra listamanna, myndlistar sem oft er kölluð alþýðulist eða utangarðslist. Það var stofnað árið 1995, af hjónunum Níelsi Hafstein, myndlistarmanni og Magnhildi Sigurðardóttur, geðhjúkrunarfræðingi, sem unnið hafa ótrúlegt starf við að byggja safnið upp og varðveita um leið menningararf sem hefði annars glatast. Halla Harðardóttir brunaði norður í lok síðasta sumars og ræddi við þau Níels og Magnhildi um allt milli himins og jarðar, þar á meðal upphaf safnsins, söfnunaráráttu, skilgreiningar á hugtökum, tengsl alþýðulistar og nútímalistar, blóm og dúkkur og margt, margt fleira.
    51 min
  • Íslenski þjóðbúningurinn, Tímaskjól og veðurvélin
    Íslenski þjóðbúningurinn á sér langa sögu og ýmsar myndir. Umræðan um hefðir og reglur í kringum notkun þjóðbúninga hefur verið fjölbreytt og raddirnar ólíkar, sumir vilja halda fast í menningararf og hefðir en öðrum finnst mikilvægara að halda menningunni lifandi þannig að hún endurspegli samtímann. Í þættinum veltum við fyrir okkur íslenska þjóðbúningnum og ræðum við þjóðfræðinginn Önnu Kareni Unnsteins, en hán hefur rannsakað hvernig kynbundnar hugmyndir hafa mótað gerð og notkun búninganna og velt fyrir sér hvernig þjóðbúningur framtíðarinnar gæti litið út ef hann endurspeglar fjölbreytileika kynjanna og hinsegin veruleika.
    Við heyrum af verðlaunabók þar sem fólk getur valið sér tímabil til að dvelja í og umhverfi þar sem því líður best. Nýverið kom út hjá Dimmu íslensk þýðing Vesku A. Jónsdóttur og Zophoníasar O. Jónssonar á skáldsögu búlgarska höfundarins Georgi Gospodinov, Tímaskjóli. Gauti Kristmannsson rýnir í bókina í þætti dagsins.
    Einnig rifjum við upp innslag frá árinu 2020 þar sem tíðni rigningar á þjóðhátíðardaginn er rannsökuð sem og möguleg lausn við henni; veðurvélin.
    56 min
  • Draumaland Kjarvals, dulvísindi í Sorbonne, arkitektúr og kynþættir.
    Við erum með hugann við dagdrauma og dulspeki í þætti dagsins og rifjum upp viðtal Svövu Jakobsdóttur, rithöfundar, við unga íslenska stúlku sem er í þann mund að flytja til Parísar til að hefja nám í dulvísindum við Sorbonne háskóla. Við heyrum líka af dulspekilegum og trúarlegum vísunum og táknmyndum í verkum Jóhannesar Sveinssonar Kjarval, og hittum fyrir sýningarstjóra Draumalands á Kjarvalsstöðum, Eddu Halldórsdóttur.
    Óskar Örn Arnórsson, arkítekt og doktor í arkitektúr, flytur okkur svo þriðja pistilinn í pistlaröðinni Arkitektúr og... og veltir að þessu sinni fyrir sér arkitektúr og kynþætti.
    55 min
  • Kári Egilsson, heimspeki um ljós og skugga og Engel Lund
    Þáttur dagsins er flétta heimspekilegra hugmynda, tónlistar og dans. Við heyrum djúphugsaða hugleiðingu úr brunni Freyju Þórsdóttur, sem í dag veltir fyrir sér samspili ljóss og skugga og gildi þess að horfast í augu við myrkrið. Í beinu framhaldi heyrum við brot úr viðtali við Pál Skúlason heitinn, þar sem hann veltir fyrir sér hlutverki heimspekingsins í samfélaginu, en nýverið stóð Háskóli íslands að málþingi Páli til heiðurs.
    Í síðari hluta þáttar lítur tónskáldið og píanóleikarinn Kári Egilsson við í hljóðstofu, en hann hefur vakið mikla athygli síðustu misseri fyrir tónlist sína, bæði á sviði jazz og popptónlistar, og vinnur um þessar mundir að sínum fjórðu og fimmtu plötum, aðeins 23 ára gamall. Við hugum líka að Grímuverðlaununum, sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gær. Hringir Orfeusar og annað slúður, sýning Ernu Ómarsdóttur og Íslenska dansflokksins, var þar valin sýning ársins. En fyrst gröfum við upp 65 ára hljóðritanir Göggu Lund, og heyrum brot úr þætti Sigrúnar Björnsdóttur, Söngkonan á svarta kjólnum, frá árinu 1997.
    56 min
  • Skjaldborg, leiksýningin Skot og Skálds saga
    Þáttur dagsins er að mestu tileinkaður tveimur nýafstöðnum hátíðum sem marka upphaf sumars; Reykjavík Fringe Festival og Skjaldborgarhátíðinni. Svo mætir í hljóðstofu eitt höfuðskáld bókmenntasenunnar, Steinunn Sigurðardóttir, og rifjar upp tilurð Skálds sögu, í tilefni af viðburði Forlagsins á Fiskislóð á fimmtudag. Leiksýningin Skot, eftir Júlíu Gunnarsdóttur var sýnd í tvígang á Reykjavík Fringe Festival. Trausti Ólafsson, leikhúsrýnir, fór á sýninguna og segir okkur af sinni upplifun. Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda var haldin í átjánda sinn um helgina. Dómnefndarverðlaun Skjaldborgar hlaut myndin Paradís amatörsins eftir Janus Braga Jakobsson og við rifjum upp viðtal við Janus í upphafi þáttar.
    55 min
  • Búðarkirkja vinsæll áfangastaður og Revolta í Eldborg
    Af einhverjum ástæðum hefur Búðakirkja orðið gríðarvinsæll áfangastaður erlendra ferðamanna undanfarin ár. Kirkjan er ein af mest mynduðu kirkjum á Íslandi og ferðast fólk oft langar leiðir til þess að gefa sig saman í henni. Við kynnum okkur málið nánar í þætti dagsins og skoðum sömuleiðis sögu kirkjunnar en í henni kemur fyrir sterk kvenpersóna, Steinunn Sveinsdóttir, sem fer sínar eigin leiðir og sendir kirkjuyfirvöldum 19. aldar fingurinn með einum mjög svo táknrænum dyrahring.
    Sinfónía og hip hop dans mætast í fyrsta sinn á Íslandi í Eldborgarsal Hörpu þann 14. júní þegar hljómsveitin Geneva Camerata og krömpdansarar sameinast í einu meistaraverki tónlistarsögunnar, fimmtu sinfóníu Dmitris Shostakovítsj. Brynja Pétursdóttir danshöfundur og Þorbjörg Daphne Hall lektor litu við í hljóðstofu og segja okkur betur frá þessum merkilega viðburði.
    Viðmælendur: Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir, kirkjuvörður Búðakirkju, Brynja Pétursdóttir, danshöfundur, Þorbjörg Daphne Hall, lektor.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir
    56 min
  • Svipmynd af Hildi Ásu Henrýsdóttur
    Hildur ólst upp á Þórshöfn á Langanesi, hefur frá útskrift úr Listaháskóla Íslands unnið málverk, skúlptúra og gjörninga en listsköpun hennar gefur einlæga sýn inn í mannlegan reynsluheim. Hún afbyggir aktíft hugmyndir um fullkomnun og rannsakar persónuleg tengsl sem fólk skapar sín á milli, líkamlega og tilfinningalega. Hún hefur sýnt víða, meðal annars í Hafnarborg, Gerðarsafni, Listasafni Akureyrar og á sýningum í Berlín, London og Antwerpen. Nýverið opnað hún sýningu í Gallerí undirgöngum á Hverfisgötunni. Við mælum okkur mót við listakonuna og fáum að skyggnast inn í líf hennar og list.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir
    54 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners