Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Þórdís Gísladóttir - Maístjarnan, Sköpun í Hallgrímskirkju, Óskar Örn - Arkitektúr og nr 1
    Þórdís Gísladóttir hlaut í gær ljóðaverðlaunin Maístjörnuna fyrir ljóðabókina Aðlögun. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars; Í Aðlögun er atferli nútímamannsins skoðað frá ýmsum sjónarhornum, bæði af kímni og alvöru, í fortíð og framtíð, en þó mest í þessari fremur hversdagslegu nútíð sem flest okkar kalla daglegt líf. Vinningshafinn mætir í hljóðstofu og segir okkur frá bókinni. Doktor Óskar Örn Arnórsson flytur okkur sinn fyrsta pistil í nýrri pistlaröð um arkitektúr sem hann kallar einfaldlega Arkitektúr og... og Finnur Karlsson og Björn Steinar Sólbergsson segja okkur frá frumflutningi á tónverki Finns, Sköpun, og tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur og Kórs Hallgrímskirkju sem fara fram á sunnudag.
    52 min
  • Svipmynd af Lovísu Ósk Gunnarsdóttur
    Lovísa Ósk Gunnarsdóttir byrjaði snemma að dansa en stefndi þó ekki á atvinnudansarann. Hún bjóst við að þurfa að finna sér annað að gera en sá tími kom hins vegar aldrei. Hún hafði verið fullgildur meðlimur Íslenska dansflokksins í 16 ár þegar hún slasaðist illa og var kippt út af sviðinu um hríð. Um svipað leyti hélt Lovísa Ósk að hún væri að byrja á breytingarskeiðinu og opnaði reynslan augu hennar fyrir því hvernig það er að eldast og hvaða áhrif það hefur á sjálfið. Hún lagðist í rannsóknarvinnu og úr varð útskriftarverkefni hennar When the bleeding stops sem hefur nú ferðast um heiminn. Lovísa Ósk, sem tók nýverið við sem listdansstjóri Íslenska dansflokksins, er gestur okkar í svipmynd dagsins.
    50 min
  • Guðrún Bergsdóttir á Gerðarsafni, Silence of Reason og stjörnur í Árósum
    Textíllistakonan Guðrún Bergsdóttir skapaði á jaðrinum en ævistarf hennar hefur markað djúp og mikilvæg spor í íslenskri listasögu. Nýverið opnaði yfirlitssýning á verkum hennar í Gerðarsafni og við hittum þar sýningarstjórann, myndlistarkonuna Hildigunni Birgisdóttur í þætti dagsins. Við heyrum líka viðtal við kvikmyndagerðarkonuna Kumjönu Novakovu um kvikmyndina Silence of Reason, sem fjallar um hina alræmdu þjóðarhreinsun í Bosníu á tíunda áratugnum og sláum á þráðinn hjá tónskáldinu Báru Gísladóttur og danshöfundinum Margréti Bjarnadóttur sem frumsýna á föstudag sviðsverkið Cooler Stars Glow Red á SPOR hátíðinni í Árósum.
    50 min
  • Þóra Jónsdóttir skáld, listakonan Auður Sveinsdóttir Laxness og Jötnar hundvísir /rýni
    Eftir Auði Sveinsdóttur Laxness liggur fjöldi textílverka og greinaskrifa um hannyrðir og textíl, en mörg af verkum hennar eru varðveitt á Gljúfrasteini. Safnafræðingurinn Marta Guðrún Jóhannesdóttir segir okkur frá verkum hennar, en hún vann um þau sýningu og útvarpsþætti árið 2014.
    Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um verðlaunabók Ingunnar Ásdísardóttur, Jötnar hundvísir, Norrænar goðsagnir í nýju ljósi, og við hugum að skáldskap Þóru Jónsdóttur, sem varð 100 ára fyrr á þessu ári. Dætur Þóru, þær Kirstín og Elín Flygenring, líta við í hljóðstofu til að lesa og fjalla um skáldskap móður sinnar, en á sunnudaginn verður haldin ljóðadagskrá Þóru til heiðurs í Gunnarshúsi.
    53 min
  • Málþing um Vasulka hjónin, tónleikar til heiðurs Kurt Weill og Soft Shell/rýni
    Með áherslu á ferlið, fremur en útkomuna, festu hjónin Steina og Woody Vasulka sig í sessi meðal áhrifamestu vídeólistamanna 20. aldarinnar. Á laugardaginn verður haldið málþing í Norræna húsinu þar sem varpað verður ljósi á varanleg áhrif þeirra brautryðjandi starfs á samtímalistir og tækni. Í ár er 125 ára ártíð og 75 ára dánartíð hins merka þýska tónskálds Kurt Weill. Brynhildur Björnsdóttir blæs til tónleika honum til heiðurs í kvöld og við heyrum frá henni. Við heyrum líka af tónleikum til heiðurs ljóðskáldinu Edith Södergran sem tríó Önnu Kruse stendur fyrir í Norræna húsinu.
    Katla Ársælsdóttir fjallar um danssýningu Katrínar Gunnarsdóttur, Soft Shell, sem sýnd var í Tjarnarbíói um liðna helgi.
    54 min
  • Hraunmyndanir - framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr
    Árið er 2150. Við erum stödd í framtíðarsamfélagi þar sem okkur hefur tekist að beisla hraunrennsli, eins og okkur tókst með gufuaflið á 20. öld. Með framsæknum lausnum nýtum við hraun sem byggingarefni og umbreytum staðbundinni ógn í auðlind.
    Þetta er í stuttu máli grunnhugmyndin að Hraunmyndunum, framlagi Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr, sem opnar um helgina. Arkitektastofan s.ap arkitektar, þverfagleg rannsóknarstofa með áherslu á tilgátuverkefni framtíðarinnar, eru höfundar Hraunmyndanna. Listrænn stjórnandi verkefnisins er arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir en auk hennar skipa teymið þau Arnar Skarphéðinsson, Björg Skarphéðinsdóttir, Sukanya Mukherjee, Jack Armitage og Andri Snær Magnason.
    Hópurinn er nú í óða önn við að klára uppsetningu verksins, en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr. Við tileinkum svipmynd dagsins þessu stórmerkilega verkefni, Hraunmyndunum, og tökum púlsinn á teyminu á lokaprettinum fyrir foropnun íslenska skálans í Feneyjum.
    54 min
  • Andrými Jónu Hlífar, Svarthol Tunglsins og heimspekihugleiðing Freyju Þórsdóttur
    „Ég held að líf okkar sé á mörgum tíðnisviðum. Það er einhver tíðni sem ljóðið tilheyrir þar sem ekkert annað er. Ef maður sinnir ekki þessari tíðni verður lífið fátækara og leiðinlegra," segir Ragnar Helgi Ólafsson, en þeir Dagur Hjartarson hafa síðustu tólf ár staðið fyrir ýmsum gjörningum, viðburðum og útgáfu undir formerkjum Tunglsins. Félgarnir koma við í hljóðstofu í Víðsjá dagsins, segja okkur frá nýrri ritröð ljóðaþýðinga sem þeir kalla Svarthol og velta fyrir sér tilvist ljóðsins. Við lítum líka við á einkasýningu Jónu Hlífar Halldórsdóttur, Alverund, í Hafnarborg, og heyrum heimspekihugleiðingu Freyju Þórsdóttur, sem að þessu sinni veltir fyrir sér hverfulleika, varanleika, minni og meðvitund.
    56 min
  • Innrými í Einarssafni, Vík prjónsdóttir og Hús dags, hús nætur/rýni
    Myndlistarmaðurinn Sigurður Guðjónsson er þekktur fyrir tímatengd verk, þar sem hann beinir sjónum að hinu innra í stækkaðri mynd og rannsakar efnisheiminn með hljóðum, ljósum, litum og hreyfingu. Verk hans hafa oftar en ekki verið unnin í hrá rými með skýrum tengingum við ýmis vélræn fyrirbæri, en innsetning hans í Hnitbjörgum Listasafns Einars Jónssonar krafðist annars konar nálgunar, enda salurinn þétt skipaður höggmyndum hins symbólíska höggmyndasmiðar á háum stöllum. Sigurður segir okkur af yfirstandandi sýningu, Innrými, í þætti dagsins. Kolbrún Vaka Helgadóttir ræðir líka við þær Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og Brynhildi Pálsdóttur um hönnunarfyrirtækið Vík prjónsdóttur og Gauti Kristmannsson rýnir í skálsögu Olgu Tokarczuk, Hús dags, hús nætur, í þýðingu Árna Óskarssonar.
    55 min
  • Svipmynd - Janus Bragi Jakobsson
    Janus Bragi er íslenskur heimildarmyndagerðarmaður. Hann útskrifaðist sem leikstjóri frá danska kvikmyndaskólanum árið 2009 og hefur síðan þá framleitt, stýrt og klippt heimildarmyndir fyrir sjónvarp og bíó, sömuleiðis gert auglýsingar og tónlistarmyndbönd. Hann hefur kennt heimildarmyndagerð við Kvikmyndadeild Listaháskóla Íslands, sem og verið stjórnandi Skjaldborgar, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin er ár hvert á Patreksfirði. Janus lauk nýverið við gerð heimildamyndarinnar Paradís amatörsins. Myndin byggir á efni frá fjórum mönnum af mismunandi kynslóðum sem eiga það allir sameiginlegt að hafa deilt persónulegum fjölskylduvídeóum eða myndböndum úr eigin lífi á YouTube. Í myndinni fylgir Janus mönnunum eftir og rýnir í hvernig þeir, með deilingu eigins myndefnis, spegla það sem skiptir mestu máli í lífinu. Janus Bragi er gestur svipmyndar í dag.
    Anna Gyða Sigurgísladóttir stýrir umfjöllun.
    50 min
  • The Clock/Christian Marclay, ROR/Auga og hugleiðing um takt á degi dansins
    Nú á föstudaginn gefst áhugasömum kostur á að leggja leið sína í Listasafn Íslands og berja augum verk sem telst meðal merkustu listaverka 21. aldarinnar. The Clock (2010) eftir svissnesk-bandaríska listamanninn Christian Marclay hlaut gullna ljónið á Feneyjatvíæringnum árið 2011 og hefur síðan farið sigurför um heiminn. Vídeóverk Marclays er klippt saman úr mörg þúsund myndbrotum, sem hvert og eitt skírskotar til ákveðinnar tímasetningar og sem í réttri tímaröð spannar heilan sólarhring, mínútu fyrir mínútu. Tvær sólarhringssýningar verða á verkinu og sú fyrri hefst á föstudaginn kl 17. Víðsjá leit við í Listasafni Íslands í morgun og tók þar púlsinn á listamanninum.
    Við kynnum okkur líka nýlega hljómplötu úr smiðju tónlistarparsins Gyðu Valtýsdóttur og Úlfs Hanssonar, Auga, og rifjum upp hugleiðingu Aðalheiðar Halldórsdóttur um takt í tilefni af alþjóðlegum degi dansins.
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners