Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Gallery Port / Svipmynd
    Þeir Árni Már Þórdísar Viðarsson og Skarphéðinn Bergþóruson stofnuðu Gallery Port í litlu bakhúsi í dimmu porti við Laugaveginn árið 2016. Galleríið hefur fest sig rækilega í sessi á undanförnum árum sem eitt framsæknasta rými borgarinnar, en þar er hlúð að grasrótinni og einblínt á unga og upprennandi listamenn, þó eldri og reyndari listamenn sýni þar líka í bland. Eftir fjögur ár í dimmu skúmaskoti færðu þeir sig í bjartara rými við Laugaveg og í fyrra fluttu þeir svo úr miðbænum og inn í splunkunýtt húsnæði í Laugarneshverfinu. Við ræðum breytingar á húsnæði og breytingar á borginni, málverkið og myndlistarmarkaði, vaxtahækkanir og vináttu og margt fleira við þá félaga í Víðsjá dagsins.
    54 min
  • Innviðir í Árnastofnun, Árið án sumars, Ferðalok
    Húsnæði Árnastofnunnar í Árnagarði hefur verið táknmynd eða hulstur utan um efnismenningu handritasafns Árna Magnússonar í rúm 50 ár. Nú hefur stofnunin verið flutt yfir Suðurgötuna og í Eddu en um liðna helgi stóð hópur listamanna, fræðimanna, hönnuða og arkitekta að sýningu í yfirgefnu húsnæði Árnastofnunnar sem þau kölluðu Innviði. Um sýningarstjórn sáu þeir Marteinn Sindri Jónsson og Unnar Örn Auðarson. Við ræðum við Martein Sindra og fleiri þátttakendur í þætti dagsins.
    Hópur ungskálda bíður af sér óvenjulegan sumarstorm í sveitasetri við Genfarvatn. Þau drepa tímann með ýmsum óhugnaði en þetta kvöld er eitthvað annað og meira sem ásækir þau en bara skáldskapur. Þannig hefst lýsingin á nýjasta leikverki leikhópsins Marmarabarna, sem kallast Árið án sumars. Við lítum inn í Borgarleikhúsið og kynnum okkur verkið.
    Og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Ferðalok eftir Arnald Indriðason.
    55 min
  • Skógarhögg Thomas Berhard, karókílög Alter-Eyglóar á Ölveri, Ungfrú Ísland/rýni
    Við lítum inn á eina elstu krá bæjarins, Ölver sportbar, en þar stendur tónskáldið og sviðslistakonan Eygló Höskuldsdóttir Viborg fyrir viðburðum í vikunni í nafni hliðarsjálfsins Alter-Eyglóar. Í tilraun til þess að snúa á alræði streymisveitanna og finna leið til að lifa á tónlistinni ákvað Eygló, sem stundaði framhaldsnám í tónsmíðum í Berklee og NYU, að skella í nokkur poppkennd karókílög. Á Ölveri gefst gestum viðburðarins kostur á að spreyta sig á þessum glænýju karókílögum og fylgja Alter Eygló inn í hugleiðingar um neyslu á tónlist og vinnuna sem liggur að baki.
    Leikverkið Ungfrú Ísland var frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 17.janúar síðastliðinn. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur en það eru þau Gréta Kristín Ómarsdóttir og Bjarni Jónsson sem unnu leikgerðina, og Gréta Kristín leikstýrir jafnframt verkinu. Við heyrum hvað einum af leikhúsrýnum þáttarins fannst um þessa leikgerð, en að þessu sinni er það Katla Ársælsdóttir sem rýnir.
    En við byrjum þáttinn á því að kynna okkur splunkunýja þýðingu á verki sem kom fyrst út í Austurríki árið 1984. Skógarhögg-geðshræring, eftir Thomas Bernhard, olli mikilli ólgu í menningarlífi Vínarborgar þegar hún kom út og var fjarlægð úr bókabúðum vegna átaka um ærumeiðingar. Bókina þýddi Hjálmar Sveinsson, sem segir bókina eiga einstaklega vel við okkar tíma. Tíma sem einkennist af leit okkar, hér í velmegunarþjóðfélögunum, að sannleika, með ýmsum leiðum, því það sé einhver kjarni sem við söknum úr lífinu. Þrá í sannleika, en einnig fegurð, sé að hans mati kjarni bókarinnar.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    58 min
  • Elín Gunnlaugsdóttir á Myrkum, Anna Rós Árnadóttir ljóðskáld, Rakarinn í Sevilla /rýni, Jelena Ciric pistill
    Við hefjum þáttinn á því að taka á móti Önnu Rós Árnadóttur, handahafa Ljóðstafs Jóns úr Vör. Anna Rós les sigurljóðið Skeljar og segir frá innblæstrinum að baki.
    Myrkir músíkdagar hefjast á morgun og standa yfir fram á sunnudagskvöld með fjölda viðburða. Meðal þeirra eru tvær öróperur Elínar Gunnlaugsdóttur fluttar í stigunum í opnu rými Hörpu. Elín segist hafa sérstaklega gaman af því að leika sér með rými. Það setji klassísk verk eins og öróperurnar hennar í annað samhengi og geri þau aðgengilegri. Elín verður gestur okkar í dag.
    Jelena Ciric fjallar í pistli um tónlistarfólk sem gaf aðeins út eina hljómplötu í fullri lengd á ferlinum, en sem náði samt að setja mark sitt rækilega á tónlistarsöguna. Og Trausti Ólafsson rýnir í Rakarann í Sevilla í uppsetningu sviðslistahópsins Óðs.
    54 min
  • Hjálmar H Ragnarsson / Svipmynd
    Hjálmar H Ragnarsson er fæddur og uppalinn á Ísafirði, sonur Sigríðar Jónsdóttur Ragnar og Ragnars H Ragnar. Faðir hans var skólastjóri tónlistarskólans á Ísafirði, sem þá var hýstur að stórum hluta á heimili þeirra, svo Hjálmar ólst bókstaflega upp umkringdur tónlist. Hann segir þó að ýmislegt annað hafi komið til greina, þegar hann velti fyrir sér framtíðinni, því á heimilinu voru hin ýmsu mál rædd og krufin og áhugasviðin mörg og djúp. Baráttuandi, ástríða og forvitni hafa leitt Hjálmar áfram og hugur hans ekki síst leitað á jaðarinn, til þess smæsta og hins stærsta. Hann hefur alla tíð tekið virkan og leiðandi þátt í félagsstarfi listamanna og menningarpólitík og var fyrsti rektor Listaháskóla Íslands.
    Hjálmar hlaut námsstyrk til að stunda háskólanám í tónlist í Brandais háskólanum í Boston snemma á áttunda áratugnum. Þar kynntist hann raftónlist, sem átti hug hans allan á þeim árum þegar ein tölva fyllti heilt herbergi og tónskáld og áhugafólk um hljóðgjafa voru að taka fyrstu tunglskrefin á sviði raftónlistar. Eftir námsdvöl í sónólógíu í Utrecht í Hollandi snéri hann þó aftur til Bandaríkjanna, þar sem hann lauk námi í tónfræði og tónsmíðum við Cornell háskólann og vann mikilvægt frumkvöðlastarf með rannsóknum sínum á tónlist Jóns Leifs. Hjálmar H Ragnarsson hefur verið atkvæðamikill sem tónskáld hér á landi allt frá námslokum og verkaskrá hans er gífurlega fjölbreytt. Á sunnudaginn flytur Cantoque ensemble úrval kórverka Hjálmars á tónleikum Myrkra músíkdaga í Hallgrímskirkju og frumflytur þar glænýtt verk úr smiðju Hjálmars, sem hann samdi við ljóð Snorra Hjartarsonar, Vakir, vakir þrá mín.
    Hjálmar H Ragnarsson er gestur svipmyndar í Víðsjá dagsins.
    Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
    51 min
  • Listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur, David Lynch og Undir eplatrénu/rýni
    ,,Ég treysti sjálfri mér og hef trú á þessu tæki sem listmeðferðin er. Hún er tæki til að tjá tilfinningar sínar og vinna með og losa sig við erfiðar tilfinningar. Myndsköpunin er þá notuð til að vinna með sig persónulega og til að þroskast í gegnum." - er meðal þess sem haft er eftir myndlistarkonunni og listþerapistanum Sigríði Björnsdóttur í bók þeirra Ágústu Oddsdóttur og Egils Sæbjörnssonar um ævistarf Sigríðar, Art can Heal. Á fimmtudag verður blásið til málþings um listmeðferð til heiðurs Sigríði, á vegum Listasafns Íslands og Myndlistarmiðstöðvar. Þau Ágústa og Egill koma við í hljóðstofu og segja okkur frá eiginleikum listmeðferðar og starfi Sigríðar.
    Við fáum líka pistil frá Gauta Kristmannssyni, sem að þessu sinni fjallar um ljóðasafn norska stórskáldsins Olav Hauge, Undir eplatrénu. Ljóðasafnið er að mestu fengið úr síðustu þremur bókum Hauges en Gyrðir Elíasson íslenskaði og ritaði formála.
    Við höldum líka áfram umfjöllun um kvikmyndaleikstjórann David Lynch. Lynch málaði heiminn í sterkum, dulúðugum og súrrealískum litum, sem virðast á stundum koma úr annari vídd, og bjó til andrúmsloft sem hefur einfaldlega verið kallað lynchían. Við ætlum að velta þessari lynchian tilfinningu fyrir okkur í þætti dagsins með Rúnari Rúnarssyni kvikmyndaleikstjóra, Ásgrími Sverrissyni kvikmyndagerðamanni, Hrönn Sveinsdóttur framkvæmdastýru bíó paradís og Evu Rún Snorradóttur rithöfundi og sviðslistakonu.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    55 min
  • Hallgrímur Árnason/Ró og Æði, David Lynch og árið 2024 í arkitektúr/Magnea Guðmundsdóttir
    David Lynch sótti Ísland heim árið 2009 og þá tók kvikmyndafræðingurinn Sigríður Pétursdóttir viðtal við hann í útvarpsþættinum Kviku. Þau ræddu meðal annars innhverfa íhugun, en David Lynch hefur verið mikill talsmaður hugleiðslu í sinni nálgun. Hann líkti hugmyndum við fiska; Ef þú vilt veiða litla fiska, haltu þig í grunnu vatni. En ef þú vilt ná stórum fiskum þarftu að fara á dýpið, sagði hann meðal annars. Við heyrum brot úr viðtali Sigríðar Pétursdóttur og David Lynch í síðari hluta þáttar og bendum áhugasömum á það að í kvöld, kl 20 á íslenskum tíma, fer fram hóphugleiðsla í nafni afmælisbarnsins um heim allan. Tilvalið tækifæri fyrir lærða og leikna að opna hugann og veiða stóra fiska.
    Við heyrum einnig hugleiðingar Magneu Guðmundsdóttir arkitekts um það sem árið 2024 færði okkur í arkitektúr. Þar ber græna vegginn við Álfabakka auðvitað einna hæst en ef það er eitthvað sem við getum lært af því klúðri, segir Magnea, þá er það að mannvirkjagerð snýst ekki bara um að reisa veggi. Það þarf að gera betur og mennskan og umhverfið ættu alltaf að vera samhengið og forsendan.
    En við byrjum á því að fara vestur á Granda, í Listval, þar sem Hallgrímur Árnason opnaði um liðna helgi sýninguna Ró og æði. Hallgrímur flutti til Vínar fyrir rúmum áratug til þess að læra arkitektúr. Fyrir röð tilviljana, í bland við ást og kórónaveirufaraldur, starfar hann í dag sem myndlistarmaður og er á kafi í málverkinu. Það má þó segja að hann hafi ekki alveg sagt skilið við arkitektúrinn þvi efniskennd og rými eru honum hugleikin á striganum. Sem og áferð og tími. Hann sér endapunkt verkanna aldrei fyrir og segir tilhlökkunina eftir óvæntri útkomunni vera drifkraftinn að baki sköpuninni.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    55 min
  • Gréta Kristín Ómarsdóttir um Ungfrú Ísland, Schoenberg og bruninn í LA, Helen Cova
    Annað kvöld verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu ný leikgerð upp úr skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, Ungfrú Ísland. Sagan hverfist um fjóra einstaklinga í Reykjavík árið 1963 sem allir hafa sína drauma en misjöfn tækifæri til að láta þá rætast. Þetta eru tímar samfélagslegra jarðhræringa og handan við hornið eru baráttur og byltingar. Við ræðum við leikstjórann Grétu Kristínu Ómarsdóttur í þætti dagsins.
    Um liðna helgi bárust okkur fréttir af því að yfir 100.000 nótnahandrit Schoenbergs hefðu glatast í yfirstandandi eldsvoða í Los Angeles. Mörgum var brugðið við fréttirnar, og eins við myndum sem fóru um samfélagsmiðla þar sem Hollywood skiltið fræga stóð í ljósum logum. Við kynnum okkur málin frekar í síðari hluta þáttar.
    Og við heyrum í Helen Cova en ljóði eftir hana var skotið til tunglsins í gær.
    54 min
  • Birnir Jón Sigurðsson
    Birnir Jón Sigurðsson, sviðslistamaður og rithöfundur, segist ekki hafa átt sterkar fyrirmyndir á unga aldri. En hann dáist almennt að listafólki sem er áhugasamt, jákvætt, spennt og drífandi. Honum líður best í óvissunni, þegar það er ekkert handrit, og planar aldrei langt fram í tímann. Kannski þess vegna er hann svo hrifinn af samsköpun í leikhúsinu.
    Birnir hefur gefið út bækurnar Strá og Fuglabjargið og meðal annars sett á svið verkin Kartöflur, Fuglabjargið, Sund og Sýslumann dauðans, en það síðasta var afrakstur vinnu hans sem leikskáld Borgarleikhússins. Birnir hlaut hvatningarverðlaun Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins í síðustu viku og hann er gestur Víðsjár í svipmynd dagsins. Við ræðum meðal annars innblástur og útblástur, umhverfismál og hlutverk listamannsins, samhljóm í listinni og töfra samsköpunar.
    51 min
  • Fermented Friendship, Ljósmyndahátíð Íslands og Veðrun
    Píanóleikarann Magnús Jóhann Ragnarsson og saxófónleikarann Óskar Guðjónsson þarf vart að kynna fyrir hlustendum. Leiðir þessara tveggja listamanna hafa legið saman í gegnum ólík verkefni en nú í vetur gáfu þeir saman út plötuna Fermented Friendship þar sem afrakstur samtals þeirra fær að njóta sín. Við heyrum af samstarfinu í þætti dagsins, og einnig vináttunni sem gerjaðist í sköpunarferlinu.
    Einnig kynnum við okkur Ljósmyndahátið Íslands í þætti dagsins en hún hefst næstkomandi föstudag með sýningunni Veðrun í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Rætt er við formann FÍSL, Maríu Kjartansdóttur.
    52 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners