Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Diddú / Svipmynd
    Diddú steig fyrst á svið sem söngkona 19 ára gömul með Spilverki þjóðanna og hefur verið þar nær stanslaust síðan. Hún stefndi á leiklist en var bent á það í söngnámi í London að til Ítalíu skyldi hún fara til að þjálfa sína háu sópranrödd.
    Eftir nám í Mílanó sneri Diddú aftur heim og fór beint upp á svið í Íslensku óperunni sem Olympia í Ævintýrum Hoffmans. Hún segir mikið líf hafa verið í Íslensku óperunni á þeim tíma og næg tækifæri fyrir unga söngvara til að stíga sín fyrstu skref. Sorglegt sé að fylgjast með því sem er að gerast í þeirri stofnun í dag, grasrótin reyni að halda senunni á floti, en það sé ekki nóg. Diddú er hvergi nærri hætt að stíga á svið, hún gerir raddæfingar alla morgna og ráðleggur ungum listamönnum að trúa á sjálfa sig og hætta aldrei að leita. Diddú verður gestur okkar í svipmynd dagsins.
    51 min
  • Usli Hallgríms Helgasonar, Límonaði frá Díafani-rýni, Blómljóð
    Uslavaldið er eina valdið sem listin hefur, segir Hallgrímur Helgason en yfirlitssýning á verkum hans opnaði um liðna helgi á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni, sem nefnist Usli, má sjá hvernig Hallgrímur þroskast sem listamaður í Reykjavík, Munchen, New York og París. Verk Hallgríms eru pólitísk, kaldhæðin og fyndin en líka leitandi og persónuleg, bæði hvað varðar viðfangsefni og stíl. Mörg hver eru úrvinnsla áfalla og sjálfur segist Hallgrímur greina umbreytingu á stílbrögðum eftir að hafa sagt opinberlega frá kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir sem ungur maður. Við hittum Hallgrím við verkin í þætti dagsins.
    Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Límonaði frá Díafani eftir Elísabetu Jökulsdóttur og Sigurður Bragason segir okkur frá hljómplötunni Blómljóð.
    55 min
  • Ófeigur Sigurðsson um Skrípið, Magnea Guðmundsdóttir-pistill, ljóðabækur Skriðu
    Í skáldsögunni Skrípinu, eftir Ófeig Sigurð, segir frá ónefndu og ástríðufullu tónskáldi sem ætlar sér að endurskapa sögulega tónleika píanóleikarans Vladimirs Horowitz með heilmyndarflutningi á Eldborgarsviði Hörpu. Tónskáldið dreymir um endurreisn evrópskrar menningar og finnst að allt hafi verið betra árið 1986, þegar fólkið var ekki eins sjúkt í deyfð og flatneskju og stjórnmálamenn hlustuðu á tónlist og lásu bókmenntir. Víðsjá mælti sér mót við rithöfundinn Ófeig Sigurðsson á koníakstofunni á Hótel Holti í morgun.
    Magnea Guðmundsdóttir arkitekt fjallar um arkitektúr í fortíð og framtíð, skjái, gler, vindhviður og táknmyndir í módernískum arkitektúr.
    Á dögunum komu út tvær ljóðabækur hjá Skriðu bókaútgáfu sem staðsett er á Patreksfirði. Það eru bækurnar Svefnhof eftir Svövu Þorsteinsdóttur og Heimkynni eftir Þórð Sævar Jónsson. Báðar bækur eru afar fallegir gripir sem prentaðir eru á prentverkstæði Skriðu fyrir vestan. Tómas Ævar tekur höfunda bókanna tali í þætti dagsins.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    52 min
  • Örn Alexander Ámundason, Víkingur Heiðar og Yuja Wang, State of the Art-rýni
    Víkingur Heiðar kemur í heimsókn og segir frá tónleikaferð þeirra Yuja Wang sem hefst í Hörpu um helgina. Bæði teljast þau til stórstjarna í hinum alþjóðlega tónlistarheimi, en það er óvenjulegt að tveir píanóleikarar fari í tónleikaferð saman, hvað þá listamenn af þessu kaliberi. Meira um það í þætti dagsins.
    Við heyrum líka af forvitnilegri sýningu Arnar Alexanders Ámundasonar sem nú stendur yfir í Skaftfelli. Sýningin, sem kallast Titill á sýningu, inniheldur eiginlega ekkert nema ímynduð viðbrögð við sýningunni í fjölmiðlum og á facebook, og sum gagnrýnin er ansi óvægin.
    Arndís Björk Ásgeirsdóttir rýnir í tvo viðburði sem fram fóru á State of the Art hátíðinni og við heyrum einnig brot úr viðtali við nýbakaðan verðlaunahafa Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar.
    56 min
  • Svipmynd / Linda Vilhjálmsdóttir
    Linda Vilhjálmsdóttir er fædd árið 1958 og ólst upp á Seltjarnarnesi. Hún fann ung að hún væri góð í að setja saman orð, hóf að skrifa ljóð í barnaskóla og las allt sem hún komst í á bókasafni Seltjarnarness. Hún var líka ung þegar hún fór að vinna fyrir sér, fyrst með barnapössun og síðar í fiski. Þegar hún hóf nám við Menntaskólann í Reykjavík upplifði hún í fyrsta sinn stéttarvitund en uppgötvaði svo síðar á lífsleiðinni að það sem hafði mótað hana mest var að alast upp sem stúlka í feðraveldi. Linda lærði til sjúkraliða og starfaði lengi við fagið og segir það einnig hafa opnað augu sín fyrir nýjum veruleika.
    Linda hefur hlotið mikið lof fyrir ljóð sín og ýmis verðlaun og viðurkenningar hafa fallið henni í skaut. Það er óhætt að segja að rödd Lindu sé einstök í landslagi íslenskra bókmennta og það er mikill fengur að nú sé komið út heildarsafn allra ljóðabókanna níu. Við ætlum að ræða þetta splunkunýja heildarsafn við Lindu í þætti dagsins, og auðvitað margt fleira.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    51 min
  • Yo-Yo Ma, Ólafur Sveinn Gíslason, Óskaland/rýni
    Á laugardaginn næsta í Hörpu munu sellóleikarinn Yo-Yo Ma, í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Marvöðu og fjölda annarra listamanna, flytja listgjörningi í anda helgiblóts. Sellóleikarinn heimsfrægi átti frumkvæði að verkinu, sem kemur úr hugsmiðju leikstjórans Arnbjargar Maríu Danielsen og tónskáldsins Viktors Orra Árnasonar. Við ræðum við þau Arnbjörgu og Viktor Orra í þætti dagsins.
    Við kynnum okkur einnig myndlistaverk eftir Ólafa Svein Gíslason sem sýnt er um þessar mundir í félagsheimilinu Félagslundi í Flóahreppi.
    Verkið kallast Undirliggjandi minni og er leikið kvikmyndaverk sem byggist á æskuminningum þriggja einstaklinga sem ólust upp í Flóahreppi. Verkið er, líkt og myndlist Ólafs í gegnum tíðina, tilraun til að þenja mörk listarinnar og færa listina nær lífinu sjálfu.
    Og Trausti Ólafsson rýnir í Óskaland eftir Bess Wohl sem frumsýnt var um liðna helgi í Borgarleikhúsinu.
    57 min
  • Gerður Helgadóttir / Hamskipti
    Sýningin Hamskipti á Gerðarsafni leggur áherslu á skúlptúrverk Gerðar og varpar ljósi á sköpunarkraft, framúrstefnu og tilraunamennsku listakonunnar. Sýningarstjóri er Cecilie Cedet Gaihede og segir hún titil sýningarinnar bera vitni um margbreytileika og sterka þróun listakonunnar. Við ræðum við Cecilie í þætti dagsins, en einnig heyrum við í Benedikti Hjartarsyni, Hallgerði Hallgrímsdóttur, Brynju Sveinsdóttur, Unnari Erni Auðarsyni, Knúti Brún og Kristínu Jónsdóttur frá Munkaþverá. Einnig heyrum við gamla upptöku þar sem Gerður ræðir list sína.
    50 min
  • Nóbelsverðlaun í bókmenntum, Listasafn Íslands 140 ára, Miguel Atwood-Ferguson, Undir-rýni
    Við hefjum þáttinn að sjálfsögðu á stórfréttum dagsins, Nóbelsverðlaununum í bókmenntum. Rétt fyrir hádegi var tilkynnt um handhafa verðlaunanna við hátíðlega athöfn og í beinu streymi Sænsku akademíunnar. Nóbelinn í ár hlýtur Suður-kóreski rithöfundurinn Han Kang. Kang, sem fæddist árið 1970, er þekkt fyrir ljóðrænan prósa, sem dregur fram söguleg áföll og afhjúpar viðkvæmni mannlífsins. Hún vakti fyrst alþjóðlega athygli með skáldsögunni Grænmetisætunni, sem kom út árið 2007, og er eina verk Kang sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. Jóhannes Ólafsson tók þýðanda hennar, Ingunni Snædal, tali.
    Annað kvöld leikur Kammersveitin Elja ásamt þverfaglega listamanninum Miguel Atwood-Ferguson á tónleikum í Fríkirkjunni. Tónleikarnir eru hluti af listahátíðinni State of the Art sem haldin er í þessari viku á höfuðborgarsvæðinu, en henni er ætlað að skapa nýjan vettvang til aukins samstarfs milli listamanna og blöndun strauma og stefna. Tómas Ævar ræðir við Miguel Atwood-Ferguson í lok þáttar.
    Við hlið Fríkirkjunnar stendur Listasafn Íslands og þar stendur líka mikið til, því á laugardaginn opnar þar viðamikil sýning í tilefni af 140 ára afmæli safnsins. Á sýningunni, sem hefur yfirskriftina Innsýn -Útsýn, gefst gestum tækifæri á að berja augum verk eftir hátt í 100 listamenn, mikilsverðar gjafir sem safninu hafa borist og verk sem það hefur keypt í tímans rás. Samhliða kemur út vegleg bók þar sem fjallað er um valin listaverk úr safneigninni, 140 talsins. Við hittum fyrir Ingibjörgu Jóhannsdóttur, safnstjóra Listasafns Íslands, sem segir okkur nánar af bókinni og sýningunni.
    Þá fáum við rýni frá Kötlu Ársælsdóttur, sem fjallar að þessu sinni um leikverkið Undir, eftir Adolf Smára Unnarsson.
    Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Íslenski bærinn / Svipmynd
    Að Austur-Meðalholtum í Flóa stendur einn af fáum varðveittum torfbæjum landsins. Myndlistarmennirnir Hannes Lárusson og Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir búa í Austur-Meðalholti og reka þar Íslenska bæinn. Hann hefur að geyma, auk gamla torfbæjarins, sýningarrými, samkomustað, vinnustofur, verkstæði, timburhús af þeirri tegund er spratt úr torfbænum, og einnig hýbýli þeirra sjálfra. Við heimsækjum þau Hannes og Bryndísi Hrönn í þætti dagsins og drögum upp svipmynd af torfbænum.
    50 min
  • Ummælagreining, Magga Eddudóttir og Herbergi Giovanni
    Við kynnum okkur viðamikið verkefni, Ummælagreiningu, sem gefur almenningi tækifæri til að móta færni íslenskrar gervigreindar og stuðla að því að gagnasöfn íslenskra gervigreindarforrita endurspegli íslenskt gildismat og menningu. Verkefnið felst í því að skoða ummæli af internetinu og meta ýmsa þætti eins og tilfinningalegt innihald, kurteisi og það hvað telst óviðeigandi eða særandi orðræða. Þau Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, og Hafsteinn Einarsson, dósent við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands, segja okkur frá verkefninu.
    Gauti Kristmannsson fjallar um skáldsögu James Baldwin, Herbergi Giovannis. Bók Baldwin vakti mikla athygli og braut blað í bókmenntasögunni með sterkum og einlægum lýsingum á ást tveggja karlmanna. Herbergi Giovannis kom nýverið út í þýðingu Þorvalds Kirstinssonar.
    En við hefjum þáttinn í Listasal Mosfellsbæjar, þar sem myndlistarkonan Magga Eddudóttir sýnir ný verk. Sýninguna kallar hún Please revolt, eða Vinsamlegast gerðu uppreisn. Verkin eru unnin í ólíka miðla; textíl, vatnsliti, kermik og frauðplast. Magga hefur í sinni myndlist unnið mikið með mannslíkamann og tilfinningar sem tengjast frelsi, og hafa mjúkar línur og pastel litapalleta verið einkennandi í verkum hennar, en þau hafa breyst töluvert síðastliðið ár. Undanfarið hefur málstaður Palestínu átt hug hennar allan og segist hún hafa átt erfitt með að bregðast ekki við þjóðarmorðinu í Palestínu í myndlistinni.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners