Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Safnasafnið / svipmynd
    Við Svalbarðseyri í Eyjafirði stendur eitt af forvitnilegri söfnum landsins, Safnasafnið. Þetta höfuðsafn myndlistar sjálflærðra listamanna, myndlistar sem oft er kölluð alþýðulist eða utangarðslist, var stofnað árið 1995 af hjónunum Níelsi Hafstein myndlistarmanni og Magnhildi Sigurðardóttur geðhjúkrunarfræðingi. Víðsjá heimsækir þau Magnhildi og Níels í Safnasafnið í þætti dagsins.
    50 min
  • Sigurhæðir, snjallhljóðfæri, Hildur-rýni
    ,,Gaman að kynnast þér" er yfirskrift tónleika sem fara fram í Mengi í kvöld. Þar mætast sex tónlistarmenn með mjög ólíkan bakgrunn og ólík hljóðfæri; barokkhljóðfæri, víetnömsk hljóðfæri og gervigreindarhljóðfæri. Halla Steinunn Stefánsdóttir, barokkfiðluleikari Nordic Affect, og Nicola Privato, sem leikur á snjallhljóðfærið Stacco segja okkur frá tilraunaverkefninu, sem unnið er í samstarfi við Intelligent Instruments Lab í Reykjavík og víetnamsk-sænska tónlistarhópinn Six Tones.
    Einnig heyrum við ritdóm frá Grétu Sigríði Einarsdóttur. Hún var að lesa Hildi, skáldsögu eftir Satu Remö, sem kom út í Finnlandi 2022 en kom nýverið út í íslenskri þýðingu Erlu Elíasdóttur Völudóttur.
    En við byrjum á Akureyri, í menningarhúsinu Flóru í Sigurhæðum. Þetta er undurfagurt og einstakt hús sem er í eigu Akureyrarbæjar og hýsir ótrúlega fjölbreytta menningarstarfi. Halla hitti Kristínu Þóru Kjartansdóttur, verkefnastjóra og staðarhaldara í Sigurhæðum, sem leiddi hana um húsið.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    56 min
  • Listasafnið Akureyri, Þórunn Jarla í Glerhúsi, eyrnakonfekt, Magnea Guðmundsdóttir
    Á fimmtudag opnaði í Glerhúsinu fyrsta sýning í nýrri sýningaröð um rithöfunda sem stunda myndlist. Það var Þórunn Jarla Valdimarsdóttir sem reið á vaðið og sýnir 17 teikningar í 17 daga. Við ræðum við Kristínu Ómarsdóttur og Þórunni Jörlu í Glerhúsinu. Við lítum í heimsókn í Listasafnið Akureyri og fáum að heyra af fræðslusýningunni Grafísk Gildi þar sem ýmis grafíkverk úr safni eru dregin fram og einnig fáum við að heyra af sýningu á landslagmálverkum eftir Jónas Viðar.
    Einnig segir tónlistarfræðingurinn Helgi Jónsson frá sínu uppáhalds tónverki og Magnea Guðmundsdóttir arkitekt flytur pistil um lestur á húsum.
    54 min
  • Hallgerður Hallgrímsdóttir, Múkk, Rushdie, tónlistarrýni
    Í ár eru liðin 350 ár frá dánardegi Hallgríms Péturssonar og til að heiðra minningu hans verður boðið upp á veglega hátíðardagskrá í kirkjunni fram að áramótum. Liður í þessum hátíðahöldum er myndlistarsýning Hallgerðar Hallgrímsdóttur sem opnaði síðastliðinn sunnudag. Hallgerður vinnur ljósmyndaverkin út frá lífi og list Hallgríms en rauði þráðurinn er hversdagsleikinn með öllu sem hann inniheldur. Halla Harðardóttir ræðir við listakonuna og Irmu Sjöfn Óskarsdóttur sóknarprest í þætti dagsins.
    Við hugum aðeins að alþjóðlegu Bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness, sem verða veitt rithöfundinum Salman Rushdie við hátíðlega athöfn í Háskólabíói á morgun og í þættinum verður líka boðið upp á tónlistarrýni í fyrsta sinn eftir þó nokkuð hlé. Arndís Björk Ásgeirsdóttir segir okkur af upplifun sinni af Wagnerveislu Ólafs Kjartans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og afmælistónleikum Kammersveitar Reykjavíkur. Arndís Björk er hlustendum að góðu kunn, en færri kannski vita að hún hóf feril sinn í útvarpi sem tónlistarrýnir Víðsjár árið 1997, að beiðni upphafsmanns þáttarins, Ævars Kjartanssonar.
    En við hefjum þáttinn á ljóðum. Ljóðasenan á Íslandi er sprúðlandi og von á góðu ljóðahausti. Við boðuðum tvö ung skáld úr ljóðakollektívinu Múkk í hljóðstofu, til þess að ræða ást sína á ljóðum.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Svipmynd - Snæbjörn Brynjarsson
    Í þætti dagsins verður einmitt boðið upp á svipmynd af nýjum leikhússtjóra Tjarnarbíós. Snæbjörn Brynjarsson er fæddur árið 1984, er með BA-próf í fræðum og framkvæmd frá listaháskóla Íslands og BA-próf í japönsku máli og menningu frá Háskóla Íslands. Hann hefur farið mjög víða á sínum ferli, skrifað fantasíur fyrir ungmenni, ferðast um Evrópu með frönskum leikhópi, starfað sem varaþingmaður og leikhúsrýnir og stofnað og rekið gallerí og listahátíð í Kópavogi. Síðustu árin hefur Snæbjörn verið safnstjóri Listasafns Svavars Guðnasonar sem staðsett er á Höfn í Hornafirði. En nú hefur hann snúið aftur til höfuðstaðarins og tekið að sér stöðu leikhússtjóra Tjarnarbíós.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    55 min
  • Feneyjatvíæringur í arkitektúr, uppistand innflytjenda, Sigmar Þór Matthíasson
    Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr fer fram í 19. sinn á næsta ári og Ísland tekur þá þátt í fyrsta sinn. Tilkynnt var um það í síðustu viku að verkefni s.ap arkitekta, Hraunmyndanir hefur verið valið sem framlag Íslands. Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem hefur umsjón með verkefninu og Gerður Jónsdóttir er verkefnastjóri þátttöku Íslands. Við ræðum við hana í þætti dagisns.
    Katla Ársælsdóttir segir frá uppistandinu Belonging þar sem fimm innflytjendur stigu á stokk og fjölluðu á kómískan hátt um reynslu sína af því að búa á íslandi.
    Nýlega sendi tónlistarmaðurinn Sigmar Þór Matthíasson frá sér nýja plötu sem nefnist Uneven Equator, en á henni blandar hann saman jazzi og austrænni heimstónlist. Tómas Ævar ræðir við Sigmar í þætti dagsins.
    52 min
  • Vaka þjóðlistahátíð, Hlynur Hallsson, Líkaminn er skál-rýni
    Víðsjá þáði morgunbolla í sólríkri stofu í miðbæ Reykjavíkur og fékk að heyra ýmislegt um rímnasöng og langspil. Tilefnið er dagur rímnalagsins og þjóðlistahátíðin Vaka, sem fer fram um næstkomandi helgi. Þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster segja okkur af starfi Vökufélagsins og flytja vel valdar rímur.
    Í dag fáum við líka fyrstu leikhúsrýni vetrarsins. Þennan veturinn verða leikhúsrýnarnir þrír, þau Trausti Ólafsson, Nína Hjálmarsdóttir og Katla Ársælsdóttir. Trausti ríður á vaðið, en hann fór að sjá fyrstu frumsýningu vetrarins í Tjarnarbíói síðastliðinn fimmtudag, á leikverkinu Líkaminn er skál, eftir leikhópinn 10 fingur.
    En þátturinn hefst á inniliti í Gallerí Port við Hallgerðargötu, þar sem Hlynur Hallsson opnaði sýninguna Herbergi með útsýni um liðna helgi. Verk Hlyns fjalla oft á tíðum um pólitík í víðu en um leið persónulegu samhengi, samskipti, tungumál og hversdagsleikann, og verkin á þessari sýningu er engin undantekning.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
    54 min
  • Gabríela Friðriksdóttir, Líkaminn er skál, Sigurður Málari
    Myndlistarkonan Gabríela Friðriksdóttir hefur haldið fjölda sýninga um allan heim og var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2005. Hún hefur fyrir löngu skapað sitt einstaka tungumál, sinn eigin myndheim, þar sem ýmsar óræðar kynjaverur eiga heimili og hreyfast á milli teikninga, málverka, skúltúptúra og fleiri miðla. Víðsjá lítur inn á yfirstandandi sýningu á verkum hennar, Zúlógíu, í Listamönnum á Skúlagötu.
    Við höldum einnig inn í heimili sjálfstæðu sviðslistasenunnar. Leikhópurinn 10 fingur hefur um árabil sérhæft sig í listsköpun á mörkum leikhúss og myndlistar og frumsýnir í kvöld nýtt íslenskt leikverk , Líkaminn er skál. Höfundar verksins eru þau Helga Arnalds, Matteo Fargon, Valgerður Rúnarsdóttir og Eva Signý Berger en verkið byggir að stórum hluta til á persónulegri reynslu Helgu af því að verða alvarlega veik.
    En við hefjum þáttinn á því að líta inn á Þjóðminjasafnið, þar sem Heimilisiðnaðarfélagið, í samstarfi við safnið, hefur skipulagt hátíðardagskrá á laugardag í tilefni af 150 ára ártíð Sigurðar málara og degi íslenska þjóðbúningsins. Terry Gunnell, sem ritstýrði ásamt Karli Aspelund bókinni Málarinn og menningarsköpunin, um Sigurð Málara, segir okkur af þessum merkilega hugsjónamanni.
    55 min
  • Ólafur Kjartan Sigurðarson / Svipmynd
    Frægðarsól óperusöngvarans Ólafs Kjartans Sigurðarsonar hefur verið á hraðri uppleið síðustu misserin. Hann hefur sungið burðarhlutverk í óperum Verdis og Wagners í mörgum af helstu óperuhúsum heims, þar á meðal á hinni virtu Bayreuthhátíð í Þýskalandi. Ólafur Kjartan var fertugur þegar hann fékk í fyrsta sinn stórt Wagner hlutverk og leið hans upp á stjörnuhimininn hefur krafist þolinmæði og æðruleysis. Ólafur Kjartan er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands þetta árið og framundan eru hlutverk í óperuhúsum í Leipzig, Santiago de Chile, Prag, Barcelona og Mílano. Við fáum að kynnast þessum raddmikla og auðmjúka stórsöngvara í Víðsjá dagsins.
    46 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners