Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Lingering Space í Listval, íslensk myndlist í Buffalo, Arkitektúruppreisnin á Íslandi
    Málverkasýningin Lingering Space hefur staðið opin í Listval frá 16. mars en þar sýnir Steingrímur Gauti Ingólfsson óhlutbundin málverk sem skoða samspil sköpunar, egósins og andlegs þroska með innsæið að leiðarljósi. Við kíkjum í Listval í þættinum.
    Hildigunnur Sverrisdóttir verður einnig með okkur í þættinum en í dag beinir hún sjónum að facebookhópnum Arkitektúruppreisnin á Íslandi; byggjum fallegt aftur - en þar gjarnan fram hitaumræður um stöðu byggingalistar á Íslandi.
    Einngi kynnum við okkur listasýningu í Bandaríkjunum þar sem stór hópur listamanna frá Norðurlöndunum veltir fyrir sér stöðu landslagsmálverksins á tímum loftslagsbreytinga. Sigurður Ámundason er þeirra á meðal og er gestur okkar í dag.
    54 min
  • Hjartabrostnar borgir, Hjartadrottning og Möguleg æxlun
    Í þættinum förum við í Gerðarsafn í Kópavogi og ræðum við Sóleyju Ragnarsdóttur um sýninguna Hjartadrottning sem verður opnuð næsta laugardag. Hún segir okkur frá servíettusafni ömmu sinnar og hvernig það hefur orðið að innblæst fyrir myndlistarverk og plastdrasli sem hún hefur týnt á ströndum Danmerkur þar sem hún er búsett.
    Jakub Stachowiak, rithöfundur, hefur verið að flytja okkur esseyjuseríuna hjartabrostnar borgir þar sem hann segir frá ferðalagi sínu til Ítalíu til að skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg. Í síðustu pistlum heyrðum við af sárri höfnun sem Jakub varð fyrir þegar hann reyndi að taka þráðinn upp aftur með sínum fyrrverandi í Róm. Og af því þegar hann til borgarinnar Napólí til að reyna að dreifa huganum frá sorginni. Í síðasta pistli sínum í dag heldur hann til Amsterdam en er ekki svo heppinn með veður.
    Einnig náum við tali af myndlistarmanninum Brák Jónsdóttur um sýninguna Möguleg æxlun eða Possible Oddkin sem hún hlaut hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir í mars. Að mati dómnefndar þóttu skúlptúrar Brákar og gjörningatengsl hennar við marga þeirra slái áhugaverðan tón í myndlistinni og að í þeim kjarnist margar af mikilvægari spurningum samtímans um tengsl manns og náttúru.
    55 min
  • Hjartabrostnar borgir og svipmynd af leikmyndahönnuði
    Svipmynd dagsins verður af Ilmi Stefánsdóttur sem er leikmyndahönnuður og myndlistarmaður. Hún ólst upp á frjóu og skapandi heimili og kviknaði áhugi hennar á listum snemma. Fyrir henni lá það nokkuð beint við að nema myndlist og hóf hún námi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands snemma á 10 áratug síðust aldar og lauk svo meistaranámi í myndlist frá Goldsmiths College í London árið 2000.
    Ilmur hefur haldið fjölda einka- og samsýninga og lagði stund á gjörningalist hérlendis og erlendis. Í list sinni skoðar hún hið óvænta, til dæmis með því að útbúa hljóðfæri úr straubretti eða ryksuga á sér eyrað. Hún er hluti af sviðslistahópnum Common Nonsense sem unnið hefur töluvert með stökkbreytta hluti og hegðun fólks. Hún segir leikhúsið nefnilega snúast um fólk.
    Í þættinum heldur Jakub Stachowiak, rithöfundur, áfram esseyjuseríunni Hjartabrostnar borgir þar sem hann segir frá ferðalagi sínu til Ítalíu til að skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg. Í síðustu pistlum heyrðum við af sárri höfnun sem Jakub varð fyrir þegar hann reyndi að taka þráðinn upp aftur með sínum fyrrverandi í Róm. En nú ferðast hann með okkur til borgarinnar Napólí þar sem hann reynir að dreifa huganum frá sorginni.
    53 min
  • Eftirpartí, Draumadoc, ást og ástarsorg í Róm
    Ásrún Magnúsdóttir og Forward Youth Company frumsýna verkið Eftirpartí í Tjarnarbíói á fimmtudag. Verkið semur hún líkt og svo oft áður, í samstarfi við dansara verksins, en verk Ásrúnar miða að því að teygja á ríkjandi hefðum innan dansins t.d með því að vinna með fólki sem vanalega dansar ekki, ásamt því að beina sjónum að röddum og líkömum sem komast vanalega ekki upp á svið. Við hittum Ásrúnu tvo meðlimi Forward Youth Company í þætti dagsins.
    Einnig hugum við að myndlistasýningunni Draumadoc úr smiðju Steingríms Dúa Mássonar, kvikmyndagerðarmanns. Sýningu sem opin er á Facbook og er unnin upp úr draumum Steingríms.
    Og Jakub Stachowiak, rithöfundur, heldur áfram pistlaröðinni Hjartabrostnar borgir þar sem hann segir frá ferðalagi sem hann hélt í síðasta sumar til Rómar að skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg.
    53 min
  • Aðgát á Kjarvalstöðum, Hjartabrostnar borgir, Félagsskapur með sjálfum mér
    Á sýningunni Aðgát á Kjarvalsstöðum varpar sýningarstjórinn Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir ljósi á ríflega sex áratuga langan feril Borghildar Óskarsdóttur. Borghildur Óskarsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1942 og á að baki merkan listferil. Hún vakti fyrst athygli fyrir leirverk á áttunda áratugnum en móðir jörð og tengsl okkar mannanna við hana hafa verið Borghildi hugleikin allan hennar feril. Hún vann, og vinnur enn, verk sín í fjölbreytta miðla en leirinn og glerið hafa fylgt henni allan ferilinn. Við hittum sýningarstjórann á Kjarvalstöðum í þætti dagsins.
    Við kynnum einnig til leiks pistlahöfund hér í Víðsjá. Jakub Stachowiak, rithöfundur, skrifar okkur fjórar esseyjur um hjartabrostnar borgir; ferðalag erlendis sem hann hélt í síðasta sumar til að skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg. Pistlarnir verða eins konar framhaldssaga og því munum við heyra þann næsta í röðinni á morgun og svo koll af kolli út vikuna.
    En við hefjum þáttinn á því að fara í leikhúsið. Trausti Ólafsson sá verkið Félagsskapur með sjálfum mér í Tjarnarbíói.
    54 min
  • Hring eftir hring, bók/kvikmynd og Tropicália
    Í einu rótgrónasta menningarvígi borgarinnar, Mokka við Skólavörðustíg, stendur nú yfir sýning á málverkum eftir Unnar Ara Baldvinsson. Sýningin kallast Hring eftir hring og þar gefur að líta olíumálverk þar sem hringurinn er í aðalhlutverki. Unnar Ari segir okkur frá því úr hverju hringirnir spretta í þætti dagsins.
    Við ætlum einnig að leiða hugan að kvikmyndaefni sem byggir á bókum en samband bóka og kvikmynda getur verið snúið. Það er oft einhver tilfinning í loftinu fyrir því að dygðugara sé að lesa bókina áður en maður sér kvikmynd unna upp úr téðri bók.
    Við kynnum einnig til leiks nýjan pistlahöfun í þættinum. Þorleifur Sigurlásson, tónlistarmaður en hann ætlar að vera með okkur næstu vikur og skoða tónlistarstefnur í ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt að hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif, bæði á stöðum sem þær spretta fram sem og annarsstaðar í heiminum. Fyrsti áfangastaður hans er í listastefnunni Tropicáliu í Brasilíu.
    55 min
  • Svipmynd af myndlistarmanni / Amanda Riffo
    Amanda Riffo hlaut á dögunum íslensku myndlistarverðlaunin fyrir sýningu sína House of Purkinje í Nýlistasafninu, sýningarstjóri var Sunna Ástþórsdóttir. Amanda er frönsk-sílesk myndlistarkona sem hefur verið búsett í Reykjavík í rúman áratug. Hún ólst að hluta til upp í franskri sveit en fluttist snemma á lífsleiðinni með fjölskyldu sinni til Parísar. Myndlist lék ekki ýkja stórt hlutverk í uppeldi hennar en heimsóknir á söfn og gallerí í París voru tíðar og í raun venjubundnar hjá fjölskyldu hennar. Hún nam við Háskóla hinna fögru lista í París en sá skóli bauð á námsárum hennar upp á ótrúlegt frelsi fyrir nemendur sína sem krafðist þess að þeir skipulögðu sig sjálfir eða flosnuðu upp úr námi. Amanda segist hafa flutt til Íslands fyrir slysni, en hugmyndin að koma hingað í listamannadvöl kviknaði eftir að hún fór á litla íslenska tónlistarhátíð í París um 2007. Hún ætlaði að vera hér í nokkra mánuði en tíminn hljóp frá henni.
    Samkvæmt dómnefnd myndlistaverðlaunanna:
    Á sýningunni House of Purkinje samstillir Amanda ólíkar frásagnir á afar snjallan hátt, allt frá þekkingarfræði og ljósfræði, í gegnum eigin reynslu sína af listtengdu bútasaums-hagkerfi til gagnrýnnar skynjunar á samtímalistinni og gangverki þess. Það er mat dómnefndar að House of Purkinje sé einstaklega áhugaverð sýning sem virðist í upphafi vera hlé á uppsetningarferli sýningar á meðan hvert smáatriði í glundroða slíkra ferla er listaverk, sem endurspeglar á snjallan hátt vinnusiðferði innan listheimsins og skapar breyttan veruleika þar sem hver hlutur er sviðsett útgáfa af sjálfum sér, rétt eins og á kvikmyndasetti.
    49 min
  • Afneitun og raunveruleikaflótti, Mancini og Vaughan, sjóræningjalög og 1. apríl
    Á Jazzklúbbnum Múlanum verða haldnir tvöfaldir heiðurstónleikar á morgun. Spilað verður til heiðurs Henry Mancini og Söru Vaughan sem bæði hefðu átt 100 ára afmæli á þessu ári. Á tónleikunum koma fram söngkonan Rebekka Blöndal og píanóleikarinn Karl Olgeirsson ásamt hljómsveit og kafa þau meðal annars ofan í plötuna “Sara Vaughan sings the Mancini Songbook.” Við ræðum við Rebekku og Karl í þætti dagsins.
    Freyja Þórsdóttir veltir tveimur stórum hugtökum fyrir sér: afneitun og raunveruleikaflótta. En í því samhengi lítur hún m.a. til örsögu eftir Edgar Allan Poe og kvikmyndarinnar The Zone of Interest.
    Að gefnu tilefni rifjum við upp innslag um huldulistamanninn G. Weller frá því í haust. G. Weller á að hafa verið stúdíóspilari og meðspilari í mörgum hljómsveitum í Los Angeles á 8. Áratugnum en látið sig hverfa algjörlega úr bransanum og aðeins skilið eftir nokkrar dularfullar kassettuupptökur.
    57 min
  • Svipmynd: Jón Kristinsson, arkitekt og uppfinningamaður
    Arkitektúr er ekki bara að teikna hús, segir Jón Kristinsson arkitekt, heldur svo margt annað. Arkitektúr er að vita hvar sólin kemur upp, hvernig þú athafnar þig við eldavélina, hvernig halda megi húsi hreinu og þurru, hvernig spara megi orku og skilja eitthvað eftir fyrir komandi kynslóðir. Því þú teiknar aldrei hús fyrir sjálfan þig, heldur alltaf fyrir komandi kynslóðir. Í verkum Jóns er formið ekki upphafið, heldur alltaf afleiðing af sjálfbærri hugsun.
    Jón er fæddur á Stýrimannastíg í Reykjavík árið 1936. Eftir stúdentspróf fluttist hann til Hollands þar sem hann nam arkitektúr við Tækniháskólann í Delft. Í Hollandi er Jón landsþekktur maður og hans þekktasta hús, Villa Flora frá 2012, er kallað vistvænasta hús Hollands og þó víðar væri leitað. Jón hefur verið kallaður faðir sjálfbærs arkitektúrs enda hefur hann alla tíð hannað á framúrstefnulegan hátt, með umhverfisvitund og orkusparnað að leiðarljósi.
    Umsjón: Halla Harðardóttir
    50 min
  • Passía, hamfarir og Fragile Magic
    Á föstudaginn langa verður frumflutt í Breiðholtskirkju verkið Passía eftir Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur. Ingibjörg Ýr hefur verið útnefnd sem Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum og í fyrra var verk hennar Fasaskipti tilnefnt sem tónverk ársins. Ingibjörg hefur einnig verið meðlimur í kór Breiðholtskirkju í áratug og er það kveikjan að þessari nýju Passíu sem flutt verður á föstudaginn langa. Við heyrum meira af því í þætti dagsins.
    Tríó Inga Bjarna Skúlasonar gaf út plötuna Fragile Magic í síðustu viku. Fragile Magic sem mætti þýða sem brothættur eða viðkvæmur galdur hverfist um þá hugmynd að uppsretta tónlistar sé alltumlykjandi ráðgáta og það sé hlutverk tónskálda og tónlistarmanna að reyna að afhjúpa hana. Og þegar vel tekst til í því ferli á sér stað einhver afar viðkvæmur galdur. Við ræðum við Inga Bjarna í þætti dagsins.
    Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntarýnir, verður einnig með okkur og að þessu sinnu rýnir hún í fræðiritið Hamfarir í bókmenntum og listum eftir Auði Aðalsteinsdóttur.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners