Spegillinn 15.mars 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
J
arðskorpan á Reykjanesskaga hefur gliðnað um tuttugu sentimetra á tæpri viku. Líklegasti uppkomustaður kviku er enn sunnan Fagradalsfjalls við Nátthaga. Kvikugangurinn hefur færst nær yfirborði seinustu vikur.
Þýskaland, Frakkland og Ítalía bættust í dag í hóp ríkja sem hafa hætt tímabundið að bólusetja fólk við COVID-19 með bóluefni frá AstraZeneca. Lyfjastofnun Evrópu hefur það til frekari rannsóknar vegna hugsanlegra aukaverkana.
Forstjóri Lyfjastofnunar býst við að niðurstöður um mögulegar aukaverkanir bóluefnis AstraZeneca liggi fyrir á fimmtudaginn.
Tillögur um launahækkanir til stjórnarmanna í Arion banka og útvíkkað kaupaukakerfi bera merki um óhóf innan bankans, segir stjórnarformaður Gildis, sem er stærsti hluthafi í bankanum
Ágreiningur er á milli Veitna og verkfræðistofunnar Mannvits um hvort fyrirtækið sé ábyrgt fyrir tjóni sem varð í vatnsleka í Háskóla Íslands í janúar.
Já-fólkið, teiknimynd Gísla Darra Halldórssonar, er tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár.
Lengri umfjöllun:
Samkvæmt samantekt fjármálaráðuneytisins hafa kjör eldri borgara batnað verulega á síðustu árum. Heildartekjur ellilífeyrisþega, sem fá greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, hafa aukist um helming frá 2015, kaupmáttur hefur aukist og hlutfallslega mest hjá þeim tekjulægstu. Þorbjörn Guðmundsson, stjórnarmaður í Landssambandi eldri borgara, segist ekki vilja fara í talnaleik við ráðuneytið. Tölurnar sýni að helmingur, eða 16 þúsund eftirlaunaþegar sem fá greiðslur úr lífeyrissjóðum og bætur frá ríkinu, séu með tekjur undir 400 þúsund krónum á mánuði. Spurningin sé hvort það teljist vera góð kjör. Arnar Páll Hauksson fer yfir samantekt ráðuneytisins og ræðir síðan við Þorbjörn um viðbrögð Landssambands eldri borgara.
Kosið var í tveimur sambandsríkjum í suðuvestur hluta Þýskalands, Baden-Württemberg og Rheinland-Pfalz í gær . Kristilegir demókratar hafa notið mikils fylgis í báðum, en í gær töpu þeir fylgi í báðum ríkjunum, . Flokkur græningja fékk flest atkvæði í Banden-Württemberg og bættu töluvert við sig og Jafnaðarmenn héldu sínu í Rheinland-Pfalz og fengu flest atkvæði þar. Úrslitin eru talin gefa vísbendingar um niðurstöðuna í kosningum til sambandsþingsins í haust. Í síðustu sambandsþingkosningum varð hægri öfgaflokkurinn AFD Valkostur fyrir Þýskaland nokkuð óvænt þriðji stærsti flokkur landsins og úrslitunum fylgdi stjórnarkreppa í nokkra mánuði þar til höfuðandstæðingarnir í þýskum stjórnmálum Kristilegir demókrata og ja