Spegillinn 8.apríl 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Hærri sektir fyrir sóttkvíarbrot og aukið eftirlit er meðal þess sem sóttvarnalæknir leggur til í aðgerðum á landamærunum. Frá og með miðnætti verða allir sem koma til landsins að fara í fimm daga sóttkví og tvisvar í sýnatöku. Heimasóttkví er heimil að uppfylltum skilyrðum.
Aðeins einn af hverjum nokkur hundruð þúsund fær aukaverkanir af AstraZeneca bóluefninu segir sóttvarnalæknir. Fólk sem ekki telst í áhættuhóp verður áfram bólusett með efninu hér á landi.
Yfirvöldum í Tékklandi er heimilt að skylda ung börn í bólusetningu við ýmsum sjúkdómum, samkvæmt úrskurði Mannréttindadómstóls Evrópu í dag. Málið hófst áður en COVID-faraldurinn skall á.
Almannavarnir og Veðurstofan ætla að taka saman upplýsingar um hættur sem kunna að leynast göngufólki á gosstöðvunum á Reykjanesskaga. Litlar breytingar hafa orðið á gasmyndun gossins síðustu daga.
Heilbrigðisyfirvöld Evrópuríkja fylgja hvert sinni stefnu um notkun á bóluefni AstraZeneca. Mörg einskorða notkunina við eldra fólk, en allur gangur er á hvar mörkin liggja.
Snjóflóð féll á skíðasvæðinu í Skálafelli rétt fyrir klukkan tvö í dag. Einn maður lenti í flóðinu en fannst fljótt, heill á húfi.
Norðsnjáldri af ætt svínhvala fannst rekinn dauður í síðustu viku í svokallaðri Bót við bæinn Höfða II, skammt sunnan við Grenivík í Eyjafirði.
Andrésar Andar leikunum sem hefjast áttu á sumardaginn fyrsta á Akureyri hefur verið frestað um þrjár vikur
Lengri umfjöllun:
Jóhanna Jakobsdóttir lektor í líftölfræði við Háskóla Íslands segir að þrátt fyrir að mörg lönd í Evrópu hafi gripið til harðra sóttvarnaraðgerða í Covidfaraldrinum, og náð góðum tökum á honum, þá hafi stjórnvöld gert þau mistök að slaka of fljótt á. Þess vegna sé staðan eins og hún er í álfunni. Jóhanna er í hópi vísindamanna sem gert hafa spálíkan um þróun faraldurisns nánast frá upphafi hans. Kristján Sigurjónsson talar við Jóhönnu.
Óeirðir á Norður-Írlandi eru aftur orðnar fréttaefni, fleiri en 50 lögreglumenn eru slasaðir eftir átök undanfarna daga og í gær voru átök þar sem hverfi sambandssinna og lýðveldissinna mætast. Við aldalanga óeirðasögu bætist Covid við, eða öllu heldur umdeild jarðarför byltingarsinna úr Sinn Fein í fyrrasumar. Og svo ekki síst Brexit, eða sú lausn sem Boris Johnson forsætisráðherra kaus varðandi Norður-Írland. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Vinnuvikan styttist um næstu mánaðamót hjá allt að 9 þúsund opinberum starfsmönnum sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum. Í sumum tilfellum get