Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna vonast til þess að fundur leiðtoga Norður-Kóreu og Bandaríkjanna marki tímamót í þeirri viðleitni að gera Kóreuskaga að kjarnorkuvopnalausu svæði. Fjárfestar austan hafs og vestan láta sér fátt um leiðtogafundinn finnast.
Saksóknari krefst þess að maður, sem varð manni að bana á Austurvelli í Reykjavík í desember, verði dæmdur í minnst 18 ára fangelsi.
Þingstörf á Alþingi eru í hnút og óvíst um þinglok.
Meirihlutinn í Reykjavík hyggst fjölga ungbarnaleikskólum til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og vinna áfram að Borgarlínu. Nýr meirihlutasáttmáli var undirritaður í morgun.
Sól hefur ekki sést á himni í Reykjavík sex daga í röð í þessum mánuði. Það hefur ekki gerst áður í júní, sem jafnan er sólríkur.
Nýr meirihlutasáttmáli Viðreisnar, Samfylkingarinnar, Pírata og Vinstri grænna í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir næsta kjörtímabil var kynntur í morgun. Borgarstjóri verður áfram Dagur B. Eggertsson frá Samfylkingu, Formaður borgarráðs verður Þórdís Lóa Þórhallsdóttir frá Viðreisn og Forseti borgarstjórnar Dóra Björt Guðjónsdóttir Pírötum fyrsta árið en Pawel Bartoszek tekur svo við. Sáttmálinn tekur á tíu málaflokkum. Þar má nefna umhverfis- skipulags- og samgöngumálum, húsnæðismálum, veferð og lýðheilsu, skóla og frístundamálum, atvinnu og jafnréttismálum svo dæmi sé tekið og fjármálum og rekstri. Það eru 12 borgarfulltrúar af 23 í mreirihlutanum. Í minnihluta eru 11 borgarfulltrúar, átta frá Sjálfstæðisflokki og svo einn frá þremur flokkum, Miðflokki, Sósíalistaflokki og Flokki fólksins. Til að ræða meirihlutasáttmálann komu í beina útsendingu í Speglinum Þórdís Lóa Þórhallsdóttir frá Viðreisn, sem tekur við embætti formanns borgarráðs þann 19. júní og Vigdís Hauksdóttir, Miðflokki, einn fulltrúa í minnihluta.
Væntingar stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins til næstu sex mánaða hafa ekki mælst minni en frá upphafi mælinga í byrjun aldarinnar. 40% þeirra telja nú að ástandið í efnahagslífinu muni versna á næstu sex mánuðum.Fjármálaráðherra segir að helsta skýringin sé óvissa vegna komandi kjarasamninga. Þetta kemur fram í könnun Gallups fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabankans meðal 400 stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins. Arnar Páll Hauksson talar við Halldór Benjamín Þorbergsson,framkvæmdastjóra SA, Ásdísi Kristjánsdóttur forstöðumann efnahagssviðs SA og Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra um niðurstöðurnar sem kynntar voru á hádegisfundi samtaka atvinnulífins í dag.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Grétar Ævarsson