Hæstiréttur sýknaði í dag fimm sakborninga af öllum ákæruliðum í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.
Ragnar Aðalsteinsson lögmaður segir að niðurstaða Hæstaréttar sé auðvitað ánægjuleg en hann hefði viljað að rétturinn viðurkenndi 40 ára gömul mistök.
Klara Bragadóttir, kona Guðjóns Skarphéðinssonar, segir þetta gleðidag, en tilfinningarnar séu blendnar. Hún hefði viljað að Hæstiréttur lýsti Guðjón saklausan.
Sá hluti málsins var ekki endurupptekinn, sem snéri að Erlu Bolladóttur, Kristjáni Viðari og Sævari fyrir að hafa borið rangar sakir á menn, að þeir hefðu átt hlut að dauða Geirfinns Einarssonar og smyglbrotum. Erla ætlar að kæra þá niðurstöðu endurupptökunefndar til héraðsdóms.
Kristín Anna, dóttir Tryggva Rúnars Leifssonar, vill að málið og vinnubrögð þeirra sem komu að því á sínum tíma verði skoðuð nánar. Sonur hennar, nafni Tryggva, segist aldrei hafa tengt jafn sterkt við sársauka nokkurrar manneskju og afa síns. Hann skrifaði meistararitgerð, þar sem fjallað er um þá ímynd sem dregin var upp af afa hans, bæði í dómnum á sínum tíma og í meðförum endurupptökunefndar.
Júlía Marínósdóttir, dóttir Sævars Marínós Cisielski og Erlu Bolladóttur er fædd árið 1975. Málið hefur markað hana alla tíð, frá því hún var kornabarn og foreldrar hennar voru hnepptir í varðhald. Hún fagnar niðurstöðu dagsins.
Spegillinn var helgaður dómi Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.
Umsjónarmenn Spegilsins voru Ragnhildur Thorlacius og Arnhildur Hálfdánardóttir.
Tæknimaður var Jón Þór Helgason.