Íslendingar verða að vinna Króata til að eiga von um að komast upp úr riðlinum, fjöldi fólks fylgist með leiknum á útiskjá í Hljómskálagarðinum og þar er Birta Björnsdóttir, fréttamaður.
Skjálfti 3,1 varð í Öræfajökli síðdegis og fylgdu nokkrir minni skjálftar en enginn gosórói.
Það er skylda umhverfisráðherra að skoða vandlega tillögu um friðlýsingu við Drangajökul; Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra segir hana byggjast á nýjum vísindarannsóknum.
Breytt aðalskipulag í Árneshreppi vegna Hvalárvirkjunar hefur verið staðfest af Skipulagsstofnun.
24 ljósmæður hafa sagt upp störfum á Landspítalanum. 11 uppsagnir taka gildi um mánaðamótin. Flestar eru uppsagnirnar á meðgöngu og sængurlegudeild.
Björgunarskipi með á þriðja hundrað flóttamanna var í dag leyft að koma til hafnar á Möltu, eftir að hafa beðið úti á rúmsjó í tæpa viku. Ríki Evrópusambandsins hafa deilt hart um stefnu sambandsins varðandi flóttafólk, og málefni þeirra verða í hámæli á leiðtogafundi ESB síðar í vikunni.
Fornleifafræðingar vinna nú að uppgreftri landnámsskála í Ólafsdal við Gilsfjörð í Dalabyggð. Skálinn er líklega frá 9.-10. öld en hann fannst nokkuð óvænt í fyrra, þegar merki um mannvistarminjar sáust á loftmynd. Engar ritaðar heimildir eru til um búsetu á þessum stað.
---
Íslenskir stuðningsmenn í Rostov voru bjartsýnir fyrir leik Íslendinga við Króata. Guðmundur Björn Þorbjörnsson ræddi þar við þá Loga Geir, Steinar Gauta, Svein Helga og Baldur Sverrisson.
Hangir hann þurr í dag? Þetta er líklega eitt það fyrsta sem málarar á suðvesturhorni landsins spyrja sig að þegar þeir vakna á morgnana þessa dagana. Fyrir þá hefur tíðin verið afleit. Geitungarnir eru líka frekar framlágir en sólarlandaferðir seljast vel. Það má segja að rigningin sé misgóð, sumir græða á henni, aðrir tapa. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá tíðarfarinu og ræðir við Ólaf Sigurmundsson, yfirverkstjóra hjá Malbikunarstöðinni, Höfða, Steinar Smára Guðbergsson, meindýraeyði og Þórunni Reynisdóttur, forstjóra ferðaskrifstofunnar Úrvals Útsýnar.
Kristján L. Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, leggur til, að þó að hætt verði innheimta gjöld í Hvalfarðargöngum í haust, verði eftir hálft eða eitt ár aftur byrjað að innheimta gjöld með rafrænum hætti, til að fjármagna nauðsynlegar vegabætur á Vesturlandvegi að göngunum. Gjaldið gæti numið um 100 krónum á bíl. Arnar Páll Hauksson ræðir við Kristján.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Mark Eldred
Björg Guðlaugsdóttir stjórnaði útsendingu í fyrri hluta