Fréttir
Allt að hundrað útköll björgunarsveita eru á hverju sumri vegna ferðamanna sem þvera óbrúaðar ár. Fulltrúi Landsbjargar telur að tjón vegna þessa nemi tugum milljóna og tekur undir með lögreglu að merkingum sé ábótavant. Vegagerðin segir erfitt að merkja breytileg vöð. Sigríður Dögg Auðunsdóttir talaði við Jónas Guðmundsson og Einar Pálsson.
Taugalæknir sérhæfður í Parkinsons-sjúkdómnum tók á móti fyrstu sjúklingum sínum í dag. Þeir þurfa að greiða fullt verð því ráðuneytið hafnaði í síðustu viku beiðni Sjúkratrygginga um að gera við hann samning. Þórdís Arnljótsdóttir ræddi við Önnu Björnsdóttur.
Varahéraðssaksóknari segir að Val Lýðssyni, sem ákærður er fyrir að hafa orðið Ragnari bróður sínum að bana að Gýgjarhóli II um páskana, hafi ekki getað dulist að árásin á Ragnar gæti leitt hann til dauða. Hún krefst sextán ára fangelsis yfir Val.
Stuðningur við ríkisstjórnina er nær hinn sami og hann var í síðasta þjóðarpúlsi Gallups. Rétt innan við helmingur svarenda segist styðja hana. Fylgi flokkanna breytist lítið milli mánaða. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman.
Argentínumenn ætla að grípa til róttækra aðgerða til að koma efnahag landsins á réttan kjöl að nýju. Fækka á ráðuneytum um meira en helming. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Fjármálastjóri Ráðhúss Reykjavíkur skorar á borgina að fella niður stjórnsýslumál vegna meintrar eineltiskvörtunar. Hann segist aldrei hafa lagt slíka kvörtun fram og gagnrýnir vinnubrögð í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar.
Lengri umfjallanir:
Almennir borgarar mega ekki villa á sér heimildir í þeim tilgangi að fletta ofan af hugsanlegum brotamönnum. Lögreglan má einungis beita tálbeitum í ákveðnum tilvikum og að ströngum skilyrðum uppfylltum. Á tímum samfélagsmiðla og sítengingar getur fólk þó vel tekið málin í eigin hendur og það gerði ungur maður nýverið á Snapchat. Arnhildur Hálfdánardóttir fjallaði um málið
Breskir stjórnmálamenn eru að koma úr sumarfríinu en umræðuefnin enn sem fyrr þau sömu. Verkamannaflokkurinn glímir við ásakanir um kynþáttahatur og and-gyðinglega afstöðu. Í Íhaldsflokknum eru það stríðandi Brexit-fylkingar. Theresa May forsætisráðherra situr fast við sinn Brexit-keip en virðist eiga fáa formælendur. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
Það getur verið lamandi að horfa á tölur um fólksfækkun, segir íbúi á Þingeyri, og vissulega ekki skapandi. Um helgina fór fram málþing á Þingeyri. Fjórir íbúar japanska þorpsins Kamiyama vörpuðu þar ljósi á það sem þeir kalla skapandi fólksfækkun, fyrirbæri sem hefur átt sinn þátt í því að gera fimm þúsund manna þorp