Fréttir:
Ríkið hefur enga leið til þess að vega og meta samsetningu sérgreina líkt og nauðsynlegt er, segir heilbrigðisráðherra um nýfallinn dóm um samning Sjúkratrygginga Íslands og sérgreinalækna.
Íslensk stjórnvöld ætla að framselja til Póllands meintan höfuðpaur í Euro Market málinu. Ráðist var í umfangsmiklar aðgerðir vegna þess í þremur löndum og lagt hald á miklar eignir.
Dæmi eru um að leigjendur félagslegra íbúða í Reykjavík, hafi leigt þær ferðamönnum á Airbnb. Það er brot á leigusamningi.
Mikil álag er nú á bráðamóttöku Landspítalans. Yfirlæknir deildarinnar, segir það ekki vegna veikinda eða slysa, heldur þess að hjúkrunarfræðinga vanti til starfa á spítalann.
Fyrrverandi forsætisráðherra Malasíu, var handtekinn í morgun og verður ákærður fyrir fjármálamisferli.
Ekkert varð af endurteknum leik Hugins og Völsungs í annarri deild karla í knattspyrnu sem átti að fara fram í dag. Liðin mættu á sitt hvorn völlinn.
Lengri umfjallanir:
Formaður Læknafélags Reykjavíkur fagnar dómi héraðsdóms í máli sérgreinalæknis en hefur þó áhyggjur af stöðu þeirra almennt. Hann segir einkarekstur á stofum kominn til að vera - óháð þátttöku ríkisins. Arnhildur Hálfdánardóttir.
Kirkjufell er á örfáum árum orðið einn af vinsælustu ferðamannastöðum landsins. Þangað koma bæði þeir sem vilja taka myndir af fjallinu og Kirkjufellsfossi og þeir sem vilja ganga á fjallið, en það er ekki á allra færi, enda mætti líkja því við píramída í útliti.
Erlendur ferðamaður hrapaði í fjallinu í gær og lést en það er annað banaslysið í fjallinu á rúmu ári. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir talaði við Kára Gunnarsson, sem gjörþekkir fjallið og Björgu Ágústsdóttur, bæjarstjóra í Grundarfirði.
Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu og Kim Jong-Un leiðtogið Norður Kóreu undirrituðu í Pyongyang í dag samkomulag um að gera Kóreuskagann kjarnorkuvopnalausan og ýmislegt annað til að draga úr spennu milli ríkjanna. Norður-Kóreumenn ætla að loka aðaleldflaugatilraunasvæði sínu. Moon segir að Kim hafi lýst sig tilbúinn til þess að loka stærsta kjarnorkuveri landsins, Yongbyon. En - Kim setur skilyrði, og þau snúa að Bandaríkjamönnum. Hann er tilbúinn að loka kjarnorkuverinu, að því gefnu að Bandaríkjamenn grípi til viðeigandi gagnaðgerða. Ragnhildur Thorlacius sagði frá.
Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius
Tæknimaður Grétar Ævarsson.