Starfsgreinasambandið krefst þess að lágmarkslaun verði 425.000 krónur í lok samningstíma komandi kjarasamninga. Sambandið krefst þess líka að lægstu laun verði skattfrjáls með tvöföldun persónuafsláttar, hann lækki svo með hækkandi tekjum. Arnar Páll Hauksson ræðir við Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar.
Aðrir kostir en fiskeldi í sjókvíum er ekki raunhæfir nú, segir prófessor í fiskeldi sem telur að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafi gengið of langt þegar hún felldi úr gildi leyfi fyrirtækja sem stunda eldi í Patreks- og Tálknafirði. Jón Þór Kristjánsson ræðir við Helga Thorarensen.
Skipulagsstofnun metur það svo að laxeldisfyrirtæki sem misstu leyfi við ógildingu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála geti skilað inn greinargerð þar sem bætt er úr annmörkum til að sækja um ný leyfi. Halla Ólafsdóttir talaði við Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur.
Heimsbyggðin eyðir jafnmiklu til hernaðar og þarf til að bregðast við í loftslagsmálum, segir Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður VG, peningarnir séu til.
Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður hefur sent rektor Háskólans í Reykjavík bréf fyrir hönd Kristins Sigurjónssonar lektors í efnafræði, þar sem skólanum er gefinn kostur á að hætta við að víkja Kristni frá störfum.
Bakarí á Norður-Írlandi mátti neita að baka köku með slagorði til stuðnings samkynja hjónaböndum. Þetta er niðurstaða hæstaréttar Bretlands í dag. Bjarni Pétur Jónsson sagði frá.
---
Starfsgreinasambandið gerir kröfu um að lágmarkslaun hækki eða verði í lok samningstímans komin í 425 þúund krónur á mánuði. Þau eru nú 300 þúsund krónur með launatryggingu en lægsti taxti er rösklega 260 þúsund krónur. Til að koma í veg fyrir að launahækkanir gangi upp alla launastiga er gert ráð fyrir að ákvæði verði um það að ef einhverjir aðir semji um meiri hækkanir fái launamenn innan raða Starfsgreinasambandisn einnig þá hækkun. Arnar Páll Hauksson ræddi við Björn Snæbjörnsson formann SGS og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar.
Í bókinni Conspiracy & Populism eða Samsæriskenningar og populismi eftir Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor er meðal annars fjallað um Eurabia Doctrine eða Evrabíu kenninguna. Hún gengur út á einhvers konar samsæri Múslima um að ná smám saman völdum í Evrópu. Þessi kenning hefur að mörgu leiti tekið við Gyðingaandúð sem gekk út á að gyðingar stefndu að alheimsyfirráðum í einu allsherjar samsæri. Nú er það Islam. Pálmi Jónasson ræðir við Eirík Bergmann.
Venjulega er á haustin sannkölluð veisla í görðum borgarinnar og skógarþrestir ekki síst fita sig fyrir