Til greina kemur að flýta framkvæmdum á Reykjanesbraut, þar sem banaslys varð í gær, með því að taka þær út úr samgönguáætlun og fjármagna með öðrum hætti. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, Jóhann Bjarni Kolbeinsson fréttamaður ræddi við hann.
Thomas Möller Olsen, sem var dæmdur fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur, hélt í Landsrétti við fyrri framburð um að skipsfélagi hans hefði orðið henni að bana. Alma Ómarsdóttir fréttamaður hefur fylgst með meðferð málsins í Landsrétti.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra telur öllu skipta að umræða um hinn svokallaða þriðja orkupakka verði upplýst. Hún ræddi í dag við kollega sinn Ernu Solberg um orkupakkann sem hefur þegar farið í gegnum norska þingið, sem og viðbrögð við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Birta Björnsdóttir ræddi við Katrínu.
Tveir menn sem handteknir voru í Landsbankanum í Borgartúni í dag eru eru grunaðir um peningafölsun.
Vaðlaheiðargöng verða ekki opnuð fyrsta desember eins og stefnt hefur verið að. Þess er þó vænst að hægt verði að hleypa umferð í göngin fyrir áramót. Ágúst Ólafsson ræðir við Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóra Vaðlaheiðarganga hf.
---
Það þarf að leita fleiri leiða til að fjármagna samgöngubætur í landunu og þeirra er mikil þörf. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Bergþór Ólason, formann Umhverfis- og samgöngunefndar og Jón Gunnarsson varaformannhennar.
Það styttist í stofnun þjóðarsjóðs. Arnar Páll Hauksson segir frá fyrirhuguðum þjóðarsjóði sem gæti orðið 250 til 300 milljarðar innan 20 ára. Í hann rynnu þá arðgreiðslur orkufyrirtækja. Í tímabundnu bráðabirgðaákvæði er gert ráð fyrir að hluti arðgreiðslnanna renni til uppbyggingar hjúkrunarrýma og eflingar nýsköpunar í atvinnulífinu
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Grétar Ævarsson
Stjórn útsendingar í fréttahluta: Björg Guðlaugsdóttir