Uppsagnir tveggja stjórnenda hjá Orku Náttúrunnar, bæði Áslaugar Thelmu Einarsdóttur og Bjarna Más Júlíussonar, voru réttmætar að mati innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar. Rætt við Helgu Jónsdóttur, starfandi framkvæmdastjóra Orkuveitunnar.
Samvinnu hefur skort milli barnaverndar og heilbrigðiskerfisins, segir Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra. Gripið hefur verið til aðgerða svo að börn með fíknivanda þurfi ekki framar að gista í fangaklefa vegna úrræðaleysis. Jón Þór Kristjánsson rædd við Ásmund Einar.
Fjölga á leikskólaplássum í Reykjavík um 700 til 750 á næstu fimm árum og byggja fimm nýja leikskóla, byggja við fimm skóla þar sem aðsókn er mikil, stækka skóla tímabundið með færanlegum stofum og opna ungbarnadeildir við 32 leikskóla.
Stjórnarformanni bílaframleiðandans Nissan var vikið úr starfi í dag vegna gruns um alvarleg brot í starfi um langt skeið. Hann er sagður hafa nýtt fjármuni fyrirtækisins í eigin þágu og komið háum fjárhæðum undan skatti. Bjarni Pétur Jónsson segir frá.
Skemmdarvargar gengu berserksgang í Kjarnaskógi um helgina, spændu upp grasflatir og brutu rúður á almenningssalernum. Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógæktarfélags Eyfirðinga segir nauðsynlegt að auka eftirlit í skóginum. Ágúst Ólafsson ræddi við Ingólf.
Matvælastofnun hefur kært sölu og markaðssetningu á heimaslátruðu lambakjöti á bændamarkaði Matís til lögreglu. Forstjóri Matís telur engin lög hafa verið brotin. Sunna Valgerðardóttir segir frá.
----
Á leiðtogafundi Evrópusambandsins á sunnudaginn verður rætt um úrgöngusamning ESB við Breta og hann að öllum líkindum samþykktur. Næsta viku skiptir sköpum um málið segir Theresa May forsætisráðherra Bretlands. Sigrún Davíðsdóttur hefur fylgst með þeim málum.
Ákvörðun um að leggja fleiri sæstrengi verður áfram í höndum Norðmanna þó að þriðji orkupakkinn taki þar gildi. Stór hluti umhverfissamtaka í Noregi styður þriðja orkupakkann en verkalýðshreyfingin er á móti. Reynt var að skýra það á hlutlausan hátt á vefnum Faktisk.no. í 11 liðum. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Fyrsti raf- línuveiðibáturinn sem sérstaklega er hannaður fyrir rekstur er á teikniborðinu hjá íslenskri verkfræðistofu. Gert er ráð fyrir að hann verði kominn í notkun eftir þrjú ár. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Bjarna Hjartarson, verkefnisstjóra hjá verkfræðistofunni Navis.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn útsendingar: Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir