Samtökin GRECO vilja að settar verði reglur um samskipti ráðherra og hagsmunaaðila, og að vitund ráðherra um opinber heilindi verði efld.
Upptök eldsvoðans í Miðhrauni í Garðabæ í síðustu viku voru við eldvegg í miðrými hússins, þar sem lager Icewear er til húsa. Þetta er niðurstaða vettvangsvinnu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem lauk í dag.
Þingmaður Vinstri grænna skorar á fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir lausn á kjaradeilu ljósmæðra við ríkið.
Forstjóri Persónuverndar segir að með nýjum persónuverndarlögum geti fólk fengið að vita hverjir vinna persónuupplýsingar um það og í hvaða tilgangi.
Óvinnufærir einhleypir karlar eru meirihluti þeirra sem fá fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg til að framfleyta sér. Þetta kemur fram í lykiltölum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, sem birtar verða á næstunni.
Árið 2019 er stefnt að því að Ísland geti gert Sameinuðu þjóðunum grein fyrir því hvernig gengur að framfylgja fjórtánda heimsmarkmiðinu um sjálfbæra þróun. Ísland er eina Norðurlandaþjóðin sem ekki hefur skilað slíkri greinargerð.
Hrein peninga- og skuldabréfaeign heimilanna hefur ekki verið meiri frá því árið 2003, þegar Hagstofan hóf að taka tölurnar saman. Eignirnar námu tæpum 3.736 milljörðum króna og hækkuðu um rúman 421 milljarð frá árinu áður.
Hópur fólks mótmælti með þögninni að hætta eigi fjárframlögum til Hugarafls í dag , utan við velferðarráðuneytið. Samtökin hafa unnið með teyminu Geðheilsu-eftirfylgd. Formaður Hugarafls segir að með þessu sé verið að skerða þjónstu við notendur.
Togararnir Breki og Páll Pálsson eru nú á heimleið frá Kína þar sem þeir voru smíðaðir. Eftir um það bil tvo sólarhringa fara þeir um þekkt sjóræningjasvæði. Þrír þungvopnaðir hermenn eru því um borð og munu þeir fylgja áhöfninni til Rauðahafsins.
Ísland vann Færeyjar 5-0 í undankepppmn HM kvenna í Þórshöfn í dag.
Svifryk frá flugeldum um áramótin verður að teljast afar varasamt. Það mælist afar hátt, stór hluti þess virðist mjög fínn, það er málmríkt, kolefnisríkt, brennisteinsríkt og klórríkt. Þetta er niðurstaða mælinga sem Umhverfisstofnun í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, gerði um áramótin. Mengunin um miðnætti er sú mesta sem mælst hefur á höfuðborgarsvæðinu og jafnast á við menguðustu borgir Kína. Kristján Sigurjónsson talar við Þorstein Jóhannsson sérfræðing í loftgæðamálum hjá Umhverfisstofnun.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er hlynnt því að draga línur milli viðskiptabanka og f