Það var enginn frjáls á Bitru, segir fatlaður maður sem var vistaður í fangelsinu á níunda áratugnum. Formaður Þroskahjálpar segir það hreina hörmung, að fangelsi hafi verið nýtt sem neyðarúrræði fyrir fatlaða.
Landsfundur Samfylkingarinnar er haldinn í Reykjavík í dag og á morgun undir yfirskriftinni frelsi, jafnrétti, samstaða. Logi Einarsson formaður er einn í kjöri til formanns.
Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að það beri að virða þá alþjóðlegu sáttmála sem Ísland hefur undirgengist. Hann var utanríkisráðherra þegar vopnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var samþykktur.
Bæði Eiríkur Jónsson og Jón Höskuldsson hafa höfðað mál gegn ríkinu þar sem þeir voru ekki skipaðir landsréttardómarar þrátt fyrir að vera metnir meðal 15 hæfustu í dómaraembætti.
Tveir eru látnir eftir skotárás á skólalóð Central Michigan háskólans í Bandaríkjunum, á þriðja tímanum í dag.
Samgöngustofa fjallar fyrst og fremst um flugöryggi og það er ekki hennar hlutverk að leggja pólitískt mat á þróun alþjóðamála og ástand í ákveðnum heimshlutum. Stofan hefur heldur ekki fengið nein tilmæli um að gera slíkt mat. Þórólfur Árnason forstjóri Samgöngustofu, fulltrúar hennar og utanríkisráðuneytisins gengu í morgun á sameiginlegan fund umhverfis- og samgöngunefndar og utanríkismálanefndar um vopnaflutninga. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Þórólf og Ara Trausta Guðmundsson.
Svisslendingar greiða atkvæði um það á sunnudaginn í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort afnema eigi afnotagjald eða skylduáskrift að ríkisútvarpinu. Þau sem styðja tillöguna segja gjaldið of hátt og ekki eigi að skylda fólk í slíka áskrift. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir tók saman.
Aðbúnaður fatlaðra fanga í Ástralíu er skelfilegur samkvæmt skýrslu frá mannréttindasamtökunum Human Rights Watch. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.
Spegillinn 2. mars 2018
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir