Spegillinn 9. febrúar 2018
Sérsveit ríkislögreglustjóra og lögreglan á Norðurlandi eystra handtóku fimm, í umfangsmiklum aðgerðum í miðbæ Akureyrar í dag. Fólkið er grunað um alvarlega líkamsárás og frelsissviptingu í gærdag.
Búist er við stormi, lélegu skyggni, slæmri færð og samgöngutruflunum víða um land um helgina.
Íslensk fyrirtæki eiga engin einkaleyfi í jarðvarmaiðnaði og eru ekki með nein slík leyfi í vinnslu. Erlendir aðilar eru með rúmlega 40 slík leyfi í vinnslu hér á landi.
Skólafólk ber ekki eitt ábyrgð á því hvernig menntun er hér á landi, foreldrar og stjórnmálamenn bera hana líka, segir varaformaður Kennarasambandsins.
Farið verður í yfirlitsflug til að mæla yfirborðsbreytingar á Öræfajökli við fyrsta tækifæri. Í morgun varð skjálfti upp á 3,6 í jöklinum
Stærri skjálfti hefur ekki mælst þar frá upphafi mælinga árið 1976.
Ef yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum telur viðmið um notkun sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum of rúm á hann að koma með tillögur að nýjum. Það er ekki á ábyrgð Landlæknisembættisins. Þetta segir starfandi landlæknir. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Leif Bárðarson.
Kynferðisofbeldi gegn börnum er mjög alvarlegt vandamál á Grænlandi. Yfirvöld þar hafa nú tekið höndum saman við Unicef, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, og hrundið af stað herferð gegn ofbeldi sem börn eru beitt. Bogi Ágústsson tók saman, lesarar auk hans voru Sigyn Blöndal, Ísgerður Gunnarsdóttir og Eiríkur Guðmundsson.
Í fimmtíu ár hefur sólin staðið í hádegisstað þegar klukkan er um hálf tvö á Íslandi, árið um kring. Sól rís og sest um kukkutíma seinna hér á landi en ef við fylgdum því sem kallað er rétt tímabelti. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Björgu Þorleifsdóttur.