Þeir sem hafa völdin þurfa að gera sitt til að bæta samskipti milli kynjanna, segir varaformaður Prestafélags Íslands.
Tólf þúsund kjúklingar drápust þegar eldur kviknaði í kjúklingabúi að Oddsmýri í Hvalfirði í dag.
Olíuflekkur fer ört stækkandi á Austur-Kínahafi þar sem íranskt olíuflutningaskip sökk í gær eftir að hafa brunnið í rúma viku.
Óvissustig vegna snjóflóða er enn í gildi á Vestfjörðum en búið er að opna vegi.
Formaður Þjónustusamfélagsins á Héraði líkir miðbæ Egilsstaða við bilaðan löndunarkrana.
Söngkona írsku hljómsveitarinnar the Cranberries, er látin, 46 ára að aldri.
Starfshópar og fræðslufundir, viljayfirlýsingar, kannanir, uppsagnir og áætlanir. Þetta eru nokkur dæmi um ávexti og afleiðingar Me too byltingarinnar. Sögurnar eru orðnar hátt í þúsund talsins, konurnar sem skrifað hafa undir yfirlýsingar skipta þúsundum og sífellt bætist í hópinn, síðast í dag þegar konur í prestastétt stigu fram. En hvað hefur raunverulega breyst? Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Finnborgu Salome Steinþórsdóttur, nýdoktor í kynjafræði.
Fastur liður í hegðan manna eins og kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinsteins og annarra auðugra áhrifamanna var að borga kvenfólki, sem þeir áreittu, svo þær þegðu um athæfið. Sögurnar eru margar og spanna allt frá kynferðislegu áreiti yfir í grófa nauðgun. Sigrún Davíðsdóttir ræddi við Reimar Pétursson formann Lögmannafélagsins um þessi mál í íslensku samhengi.
Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, ætlar að að bæta einum flokki við ríkisstjórn sína. Unnið hefur verið að endurnýjun minnihlutastjórnar hennar frá eftir þingkosningarnar í september. Sátt er um skattalækkanir, málefni nýbúa og umhverfisvernd en stjórnarandstæðingar segja að áherslan hafi færst enn lengra til hægri en áður var. Gísli Kristjánsson.
Spegillinn 15. janúar 2018
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon