Spegillinn 8. janúar 2018
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Mark Eldred
Fréttir.
1) Óli Björn Kárason, formaður efnahags og viðskiptanenfdar bregst við gagnrýni ASÍ á skattamalskattbreytingar um áramót.
2) Hver leiðir lista Sjálfsstæðismanna í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Talað við Halldór Halldórsson fráfarandi oddvita Sjálfstæðisflokksins.
3) Álag á bráðamóttöku LSH vegna flensu, Rætt við Önnu Sigrúnu Baldursdóttur.
4) Trump vísar tugþúsundum Salvadora og fólki frá Haítí úr landi. Bjarni Pétur Jónsson segir frá.
5) Varað við hvassviðri í nótt og á morgun. Rætt við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing.
6) Horn unnin í gæludýrafóður í Hnífsdal. Halla Ólafsdóttir segir frá.
7) Hvalreki á Hvalsnesi. Sunna Björk Ragnarsdóttir. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir talaði við hana.
Spegilshluti
1) Stefnt er að því að innleiða otendastýrða persónulega aðstoð á þessu ári en álitamálin eru stór og mörg. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og ræðir við Halldóru Mogensen, formann Velferðarnefndar.
2) Trond Giske, varaformaður norska verkamannaflokksins sagði af sér í kjölfar ásakana um að hafa áreitt ungar stúlkur. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Gísla Kristjánsson um Giske.
3) Sjóðsfélagar sem greiða iðgjöld í opinbera lífeyrissjóði geta væntanlega innan skamms látið hluta af iðgjaldinu renna í séreignarsparnað eins og sjóðsfélagar á almenna vinnumarkaðinum geta nú þegar. Beðið er eftir því að sett verði lög. Arnar Páll Hauksson ræðir við Hauk Hafsteinsson, framkvæmdastjóra LSR.