Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Útsendingarstjórn: Valgerður Þorsteinsdóttir
Hælisleitandi frá Palestínu, sem til stóð að senda til Grikklands, fær mál sitt endurupptekið samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Dómurinn getur haft fordæmisgildi fyrir tugi ef ekki hundruð hælisleitenda, sem vísa átti úr landi í vor.
Alma Ómarsdóttir sagði frá og talaði við Helga Þorsteinsson Silva.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir enga þörf á frekari umfangsmiklum árásum á Úkraínu í bili. Sem stendur séu önnur verkefni í fyrirrúmi. Þegar þeim er lokið kemur í ljós hvort sprengjuárásum verður haldið áfram. Hann segir markmið stjórnvalda í Kreml ekki að leggja Úkraínu í rúst. Róbert Jóhannsson sagði frá.
Alvarleg frávik voru á holdafari hesta sem eru taldir hafa sætt illri meðferð í Borgarnesi. Kona sem vakti athygli á ástandi hrossanna hefur áhyggjur af lífshorfum þeirra, þau lifi ekki af veturinn. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir ræddi um málefni hestanna við Steinunni Árnadóttur og Hrönn Ólínu Jörundsdóttur.
Mannúð þarf að vera að leiðarljósi í móttöku flóttafólks. Þetta segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra sem segir fullyrðingar dómsmálaráðherra um málaflokkinn ekki eiga við rök að styðjast. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við hann.
Ný ríkisstjórn var kynnt í Svíþjóð í dag. Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við háskólann í Malmö, segir að hinn umdeildi þjóðernisflokkur Svíþjóðardemókratar hafi fengið mörg stefnumál sín í gegn, þrátt fyrir að eiga ekki beina aðild að stjórninni.
Lögreglan á Vestfjörðum hefur hætt rannsókn á bílveltu í Óshlíð, milli Bolungarvíkur og Hnífsdals, árið 1973.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Eistlandi ytra í undankeppni EM á morgun. Bjarki Már Elísson segir liðið hafa undirstrikað það síðustu mánuði að það sé komið á mjög góðan stað.
Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, rak Kwasi Kwarteng fjármálaráðherra úr starfi í dag og tilkynnti að hætt hefði verið við að lækka skatta á bresk fyrirtæki. Stjórnmálaskýrendur segja að sviptingar dagsins í stjórnmálalífi séu einhverjar þær háðuglegustu sem sögur fara af. Fjármálaráðherrann fyrrverandi sé horfinn af hinum pólitíska vígvelli og Liz Truss forsætisráðherra liggi helsærð eftir. Ásgeir Tómasson tók saman.