Umsjón: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Marteinn Marteinsson
Magnús Aron Magnússon, sem er ákærður fyrir að hafa myrt mann í Barðavogi í Reykjavík fyrr í sumar, neitar sök. Mál gegn honum var þingfest í dag.
Mesti hiti ársins hér á landi mældist í dag. Hitinn fór í 25 stig á Mánarbakka á Tjörnesi síðdegis. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir sagði frá og ræddi við Bjarna Sigurð Aðalgeirsson, eiganda tjaldsvæðisins að Mánárbakka, og Birgi Örn Höskuldsson veðurfræðing sem gerir ekki ráð fyrir að hitinn verði meiri það sem eftir er ársins.
Forseti Úkraínu ætlar að sjá til þess að eftirlitssveit Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar komist að kjarnorkuverinu í Zaporizhzhia. Hann hitti í dag forstjóra stofnunarinnar sem fer fyrir hópnum. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá.
Tveir hafa látist það sem af er á ári á Grænlandi eftir tilraunir til að smygla fíkniefnum innvortis til landsins. Slíkt smygl hefur færst í aukana og hafa þrjátíu og þrír verið handteknir á árinu, fleiri en nokkru sinni áður þar í landi. Dagný Hulda Erlendsdóttir sagði frá.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að Úrvinnslusjóður sé lykilþáttur í að koma á almennilegu hringrásarhagkerfi hér á landi. Starfshópur ráðherra, sem skila á tillögum um breytingar á lögum um Úrvinnslusjóð, hefur þegar hafið störf. Oddur Þórðarson ræddi við ráðherra.
Skýrslur hafa verið teknar af öllum fjórum sem hafa réttarstöðu sakborgninga vegna meintra brota á friðhelgi einkalífs. Málið snýr að svonefndri skæruliðadeild útgerðarfélagsins Samherja. Í fyrravor voru birtar fréttir um samskipti fólks sem tengdist Samherja með einhverjum hætti og tilraunir þess til að hafa áhrif á umræðu um fyrirtækið í fjölmiðlum.
Öll aðildarfélög Bandalags háskólamanna koma sameinuð að samningaborði við upphaf kjaraviðræðna í ár. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Friðrik Jónsson, formann BHM, um ástand og horfur í viðræðunum. Einnig heyrðist í Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um þátt ríkisstjórnarinnar í komandi viðræðum.
Að minnsta kosti þrjátíu létust og á sjötta hundrað særðust í blóðugum óeirðum sem brutust út í Bagdad, höfuðborg Íraks. Það gerðist eftir að eldklerkurinn og stjórnmálamaðurinn Moqtada al-Sadr lýsti því yfir að hann væri hættur afskiptum af stjórnmálum.
Reynt er að fá fólk til að hverfa frá samkynhneigð og fara aftur inn í skápinn í fjölda trúfélaga í Svíþjóð. Bælingarmeðferð, eins og hún hefur verið nefnd hér á Íslandi, er bönnuð með lögum í Þýskalandi og rætt hefur verið um að banna hana, bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Kári Gylfason í G