Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Tilfinningasteinar, Auðlindagarðar og Jón Nordal tónleikar Caput
    Samsýningin Auðlindagarðar fjallar um venslin á milli stóriðju og stafrænna innviða samtímans, þar sem stórar ákvarðanir um náttúruauðlindir eru teknar í sterílu skrifstofuumhverfi og sú náttúra sem flest okkar sjá er á skjáhvílum vinnutölvanna okkar. Listamennirnir, þau Agnes Ársælsdóttir, Hrafkell Tumi Georgsson, Sölvi Halldórsson og Eleni Iermia, vinna staðbundið inn í Slökkvistöðina, sem var áður hluti af Áburðarverksmiðju ríkisins. Við lítum þar við í síðari hluta þáttar. Tumi Árnason fjallar um nýafstaðna tónleika Caput hópsins í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli Jóns Nordal. Og við komum við í Höggmyndagarðinum þar sem myndlistarkonan Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason sýnir um þessar mundir skúlptúra sem hún kallar Tilfinningasteina, en þeir eru afsprengi rannsóknar hennar á tilfinningalegum orðaforða, sem hún segist ekki vera neitt sérstaklega góð í sjálf.
    52 min
  • Aldrei las ég Laxness / Undir Helgahnúk
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar, Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga þáttarins er að þessu sinni Undir Helgahnúk sem kom út árið 1924. En verkið skrifaði Halldór í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið sem er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer því að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfundur, og Halldór Guðmundsson, rithöfundur.
    Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Vefarinn mikli frá Kasmír en fjallað verður um hana í Víðsjá 15. apríl, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér:
    https://www.facebook.com/groups/1247768283945537
    55 min
  • Dómur Finns Arnars, Ljóðamót á Akureyri og Mömmó/rýni
    Dómur kallast sýning Finns Arnars Arnarssonar í Ásmundarsafni, þar sem hann hefur búið í tjaldi síðustu vikur og varið dögunum í að mála kúlulaga hvelfinguna á eftri hæð safnsins. Finnur er nýfluttur úr tjaldinu en vistarverurnar standa eftir sem vitnisburður um líf listamannsins og í kúlunni birtast okkur hugmyndir um karlmennsku og hlutverk okkar í jarðvistinni. Við lítum við í síðari hluta þáttar, en hefjum leikinn fyrir norðan, þar sem Ljóðaklúbbur Akureyrar undirbýr Ljóðamót kvöldsins í fornbókabúðinni Svörtum bókum. Þá rýnir Katla Ársælsdóttir í leiksýninguna Mömmó, sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu fyrir helgi.
    55 min
  • Áning Elínar Elísabetar í Þulu, The Wall, Gæðablóð / rýni
    Elín Elísabet Einarsdóttir hefur um árabil starfað sem teiknari en í Covid ákvað hún að nú væri komin tími á að gefa myndlistinni meira pláss. Og þegar hún fór að mála úti í náttúrunni var ekki aftur snúið. Líkt og æðarkollan sem sækir í sama hreiður kynslóð eftir kynslóð sækir Elín Elísabet í staði á landinu sem hún tengist fjölskylduböndum. Þar vappar hún um í kyrrð og einveru með fuglum og plöntum og upplifir staðinn, allt þar til ákveðin sjónarhorn byrja að færast yfir á strigann. Ferlið skapar ástand sem Elín Elísabet líkir við hálfgerðan trans. Við hittum listakonuna í gallerí Þulu á Hafnartorgi þar sem hún sýnir ný verk.
    Einnig rýnum við, að gefnu tilefni, í eitt lag af The Wall, plötu Pink Floyd og skoðum textatengsl þess við breska dægurlagatónlist á fjórða áratug síðustu aldar.
    Og Trausti Ólafsson rýnir í leikverkið Gæðablóð sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu.
    53 min
  • Mömmó í Borgó og myndlist á tímum kalda stríðsins
    Annað kvöld verður leikritið Mömmó frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Leikritið er eftir hinn rómaða leikhöfund Paulu Vogel, sem hefur óhikað tekið fyrir flókin félagsleg og pólitísk mál og sló í gegn hér á landi og víðar með leikriti sínu Ökutímar. Agnar Jón Egilsson leikstýrir verkinu og segir okkur nánar af sýningunni í fyrri hluta þáttar. Á morgun hefst líka hugvísindaþing Háskóla Íslands, þar sem því helsta úr fræðunum er miðlað í fyrirlestrum og málstofum. Ein af fjölmörgum áhugaverðum málstofum er sú sem setur fókus á bókmenntir og listir hér á landi á tímum kalda stríðsins, þegar orðræðan einkenndist oft af myndmáli sem skipaði heiminum í tvo andstæða póla. Heiða Björk Árnadóttir listfræðingur hefur undanfarið rannsakað hugmyndir um hlutverk myndlistarinnar í þessu samhengi og er gestur í síðari hluta þáttar.
    55 min
  • Guðrún Kristjánsdóttir / Svipmynd
    Guðrún Kristjánsdóttir er fædd árið 1950 og nam myndlist í Reykjavík og Aix-en-Provence. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1986 og hefur síðan sýnt víða, hér á landi og erlendis. Nýverið opnaði yfirlitssýning á verkum Guðrúnar á Kjarvalsstöðum og það er þar sem Víðsjá hitti listakonuna sem er gestur þáttar í Svipmynd vikunnar.
    Þær fáu minningar sem Guðrún á úr bernsku tengjast náttúrunni. Hún man til að mynda útsýnið úr bílnum þar sem hún sat í aftursætinu á leið út í náttúruna með föður sínum frístundamálaranum. Seinna tóku við ferðir inn á hálendið með eiginmanni og börnum sem áttu eftir að vera innblástur að listaverkum í ólíka miðla. Guðrún vinnur oft lengi að hverju verki, nálgast það eins og rannsakandi úr ólíkum áttum en leyfir oftar en ekki innsæinu að stýra ferlinu. Hún hefur þróað sitt eigið tungumál í listinni og lagt í það endalausa þolinmæði, enda segir hún tímann vera einn stærsta þáttinn í myndlistariðkun. Og Víðsjá tók sér góðan tíma til að ræða allt þetta og margt annað við Guðrúnu á Kjarvalsstöðum. Ferðir um hálendið, áhrif Karls Kvaran og Matisse, línuna á milli hins óhlutbundna og hlutbundna, þokuna, surtarbrand,sjóndeildarhringinn, útsýni og innsæi. Þolinmæði og tíðaranda. Meira um það í þætti dagsins.
    53 min
  • Aðflæði Guðmundar Ármann og leikhústónlist Hjálmars H Ragnarssonar
    Guðmundur Ármann á að baki langan feril í myndlist og myndlistarkennslu og nýlega opnaði yfirlitssýning á verkum hans á Listasafni Akureyrar, undir yfirskriftinni Aðflæði. Guðmundur flutti til Akureyrar árið 1972, eftir prentmyndasmíðanám, nám í Myndlista- og handíðaskólanum og við Valand-listaháskólann í Gautaborg. Víðsjá mælti sér mót við Guðmund Ármann á sýningunni, sem einkennist af fjölbreyttri leit listamannsins að túlkunarformi. Öll veröldin er leiksvið - tónleikar með leikhústónlist Hjálmars H. Ragnarssonar verða haldnir í Norðurljósasal Hörpu annað kvöld. Að tónleikunum koma margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar til þess að halda upp á ævi og lífsstarf Hjálmars. Meðal þeirra er söngkonan Hallveig Rúnarsdóttir, sem kemur í hljóðstofu til þess að segja nánar af viðburðinum.
    59 min
  • Dýrkun, Birtingur og Heima
    Í Víðsjá dagsins heyrum af nýjum bókaklúbbi fréttastofunnar á Rúv. Þau eru nýbúin að lesa eitt þekktasta rit upplýsingarinnar, Birting eftir Voltaire, sem kom fyrst út í Frakklandi á því herrans ári 1759. Gauti Kristmannsson rýnir í Heima eftir þýska rithöfundinn Judith Hermann og við veltum upp tengslum Steins Elliða, aðalpersónu Vefarans mikla frá Kasmír eftir Halldór Kiljan Laxness og áhangendum tónlistarmannsins Bob Dylans.
    54 min
  • Brothætt, Nína Sæmundsson og tónlistarpistill Tuma Árnasonar
    Við hefjum þáttinn á því að heimsækja sviðslistakonuna Steinunni Önnu Knútsdóttur, sem stendur þessa dagana að þátttökuverkefni um hið brothætta og ófullkomna, og safnar bæði brotnu leirtaui og sögum í aðstöðu sinni á Dansverkstæðinu við Hjarðarhaga. Tumi Árnason flytur svo sinn hálfsmánaðarlega pistil um miðbik þáttar og fjallar meðal annars um stafrænan draugagang píanóleikara í parís og rými innan í rými í Hafnarborg.
    Upplýsingar óskast um listakonuna Nínu Sæmundsson. Áttu verk eftir Nínu Sæmundsson, eða upplýsingar um líf hennar og feril? Svo hljóðar auglýsing sem Listasafn Reykjanesbæjar setti nýverið í loftið, en fyrirhuguð er sýning á verkum Nínu í safninu í haust. Sýningarstjórar eru þær Ynda Eldborg og Viktoría Guðnadóttir, en samkvæmt þeim er enn margt á huldu þegar kemur að lífi og list Nínu.
    56 min
  • Björn Steinar Sólbergsson - svipmynd
    Björn Steinar Sólbergsson tók við stöðu organista við Akureyrarkirkju árið 1986, þá nýkominn heim úr námi í Evrópu, aðeins 25 ára gamall. Þar starfaði hann í 20 ár, og hefur starfað í önnur 20 við Hallgrímskirkju í Reykjavík, þar sem hann er nú tónlistarstjóri og organisti, ásamt því að kenna við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Að sögn Björns Steinars eigum við orgelinu stóra í Hallgrímskirkju mikið að þakka, hvað varðar úrval og alþjóðlega stöðu íslenskrar orgel- og kirkjutónlistar, en það er ljóst að þar á hann líka stóran þátt sjálfur, með metnaðarfullu starfi sínu sem tónlistarstjóri, organisti og kennari síðustu 40 ár. Björn Steinar Sólbergsson, organisti, er gestur Víðsjár í svipmynd dagsins.
    58 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners