Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Ymur, Máría, Éditions Grasset og Pissuskálin
    Friðrik Margrétar-Guðmundsson sendi frá sér plötuna Ymur um helgina. Hann verður gestur Víðsjár og segir frá tilurð verksins og umfjöllunarefni hennar.
    Haukur Þorgeirsson, málfræðingur og rannsóknarprófessor við Árnastofnun, heldur áfram að fjalla um íslenska ljóðlist fyrri alda, í dag segir Haukur okkur frá Máríu, móður guðs, í kvæðum íslenskra skálda á miðöldum.
    Við heyrum af pólitískum menningarvendingum í Frakklandi sem varða Éditions Grasset útgáfufyrirtækið og rifjum upp pistil um Pissuskálina, listaverk sem jafnan hefur verið eignað franska listamanninum Marcel Duchamp en gæti hafa verið úr smiðju myndlistakonunnar Elsu von Freytag-Loringhoven
    55 min
  • Katrín Elvarsdóttir / Svipmynd
    Katrín Elvarsdóttir heillaðist af kvikmyndalistinni sem unglingur og það var sá áhugi sem leiddi hana á slóðir ljósmyndunar, en ljósmyndin hefur alla tíð verið hennar miðill í myndlistinni. Mikill Frakklands áhugi dró Katrínu á allar franskar kvikmyndahátíðir sem buðust og franska nýbylgjan og David Lynch áttu síðar eftir að hafa djúp áhrif á fagurfræði verka hennar. Hún eignaðist sína fyrstu myndavél um tvítugt og fór í framhaldinu í nám í ljósmyndun til Bandaríkjanna þar sem hún lærði einnig myndlist. Ljósmyndun hélt áfram að vera hennar miðill og í dag sér hún vinnuna með myndavélina sem framlengingu á sjálfri sér. Forvitni Katrínar og áhugi á ólíkum menningarheimum hefur dregið hana víða og veitt innblástur í gegnum árin. Við ræðum þetta allt og margt fleira í svipmynd vikunnar í Víðsjá dagsins
    51 min
  • Feneyjatvíæringur, 850 ára refilssaumuð ástarsaga og Ég, Jóhanna/rýni
    Hin 850 ára saga af Flóres og Blankiflúr var eins konar metsölubók miðalda og gífurlega vinsæl um alla Evrópu, meðal annars hér á landi. Nýverið hafði lítið félag í þorpinu Assenede í Belgíu frumkvæði að því að sagan yrði saumuð út í 93 metra refil og hafði samband við fræðimenn þeirra 12 landa þar sem eldgamlar þýðingar á sögunni hafa fundist. Síðasta árið hafa þrjár íslenskar konur setið við og saumað út senu úr sögunni, sem þær munu afhenda í Belgíu í næstu viku. Við hittum eina þeirra, refilssaumskonuna Kristínu Bjarnadóttur, í síðari hluta þáttar. Trausti Ólafsson rýnir í sýninguna Ég, Jóhanna, sem sýnd er í Tjarnarbíói, og við lítum til Feneyja, því það styttist í opnun á Feneyjatvíæringnum í myndlist. Ásta Fanney Sigurðardóttir fer fyrir Íslands hönd og hefur sýning hennar fengið titilinn Pocket Universe, en verkið samanstendur af vídeóverki, hljóðverki, skúlptúrum og gjörningum. Sýningarstjórar eru þau Margrét Áskelsdóttir og Unnar Örn og við sláum á þráðinn til þeirra í þætti dagsins.
    53 min
  • Staðarandi og steinsteypa, Tálkvendi í 79 af stöðinni, Haukur Þorgeirs pistill#5
    Í þætti dagsins ræðum við við Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, rithöfund, um erindi sem hún flutti á aldarafmælismálþingi um rithöfundinn Indriða G. Þorsteinsson, þar sem hún greindi persónu Gógóar í skáldsögunni 79 af stöðinni sem tálkvenndi. Birgitti heimsækir þáttinn og skýrir frá greiningunni.
    Haukur Þorgeirsson, málfræðingur, heldur áfram með sína vikulegu pistla um íslenska ljóðlist fyrri alda. Í dag segir hann frá refhvörfum og listrænni togstreitu í heimi síðustu hirðskáldanna.
    Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, veltir fyrir sér staðaranda og steinsteypu í pistli sínum og þeim úrelta hugsunarhætti að rífa byggingu eftir að notkun hennar er hætt.
    52 min
  • Terta í Elliðaárstöð, Þórdís Erla Zoega í Berg Contemporary
    Meðal verðlaunahafa á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025 var þverfaglega hönnunarteymið Terta. Hópurinn endurhannaði Elliðaárstöð og umhverfi hennar fyrir Orkuveituna og úr varð eftirtektarverður áfangastaður, svæði sem var áður afvikið iðnaðarsvæði en iðar nú af lífi árið um kring. Við hittum tvo meðlimi Tertu, þær Brynhildi Pálsdóttur, hönnuð og Evu Huld Friðriksdóttur, arkitekt í þætti dagsins.
    Við lítum við líka í Gallery Berg og ræðum við Þórdísi Erlu Zoega um sýningu hennar Domestic Sci-fi. Þar vinnur Þórdís meðal annars með þá tilfinningu að nútíminn sé löngu farinn fram úr þeirri framtíðarsýn sem við ólumst upp við. Hið heimilislega er orðið að vísindaskáldskap.
    54 min
  • Aldrei las ég Laxness / Vefarinn mikli frá Kasmír
    Bókaklúbbur Víðsjár heldur áfram: Vefarinn mikli frá Kasmír gaf Halldór Kiljan Laxness út árið 1927 við alls konar undirtektir. Sagan hverfist um unga manninn Stein Elliða sem haldinn er miklu hugarvíli og núrótík og leitar lausna við kvillum sínum í stóru hugmyndakerfum heimsins. Í þættinum ræða Tómas og Natasha S., skáld og rithöfundur, bókina sín á milli.
    57 min
  • Bókumbók, artivismi og arkitektúr, Sæmundur Fróði/rýni
    Sigrún Perla Gísladóttir, arkitekt, vill hugsa um arkitektúr sem afl til umbreytinga í átt að meira réttlæti, vellíðan og sjálfbærni. Í tillögu hennar að verndun hafsvæða við landið dregur hún meðal annars fram með sjónrænum hætti neðanjarðarborgir og kórallahella sem eru tengdari okkur en við höldum. Perla mun kynna verkefnið á málþingi um Artivisma í Norræna húsinu á morgun og við ræðum við hana í þætti dagsins. Einnig kynnum við okkur Bókumbók, forvitnilega bókverkabúð og sýningarrými sem opnaði um miðjan febrúar dyr sínar við Njálsgötu 11. Katla Ársælsdóttir rýnir auk þess í óperuna Sæmund Fróða sem sýnd er í Tjarnarbíói.
    55 min
  • Heiðvirðir einstaklingar í Hafnarborg, Lunga skólinn, Haukur Þorgeirs pistill #4
    Í Hafnarborg sýnir um þessar mundir pólska listamanna tvíeykið Austur-Íslendingar, en það skipa þau Weronika Balcerak og Lukas Bury. Titill sýningarinnar, Heiðvirðir einstaklingar, er sóttur í auglýsingu sem birtist í smáauglýsingablaði Tímans árið 1991, en sýningin hverfist um samskipti á milli Póllands og Íslands. Samskipti, sem hófust með viðskiptum löngu áður en Pólverjar urðu stærsti hópur innflytjenda á Íslandi. Við ræðum við Lukas og Weroniku í þætti dagsins.
    Karólína Rós Ólafsdóttir segir frá listamannadvöl í Lunga lýðháskólanum á Seyðisfirði og Haukur Þorgeirsson fer með okkur inn í heim norrænna ljóða á 12.öld.
    51 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners