Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Ásta Fanney, Álfheiður Erla og Ása Bríet
    Lady Lazarus, tónleikar sópransönkonunnar Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur og píanistans Kunal Lahiry, eru lokatónleikar á svokallaðri ECHO Rising Stars tónlistarhátíð, sem fer fram í Hörpu um helgina. ECHO Rising Stars er verkefni á vegum samtaka evrópskra tónleikahúsa sem gefur ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram á bestu tónleikasviðum Evrópu, þar á meðal í Hörpu. Við heyrum nánar af verkefninu og tónleikum þeirra Álfheiðar Erlu og Kunan í þætti dagsins. Við tökum einnig á móti Ásu Bríeti Brattaberg, fata og textílhönnuði, en hún býr í París þar sem hún starfar við prjónadeild Dior tískuhússins. Ása Bríet sýnir og segir frá masterslínu sinni frá París í tengslum við Hönnunarmars í Norræna húsinu á morgun, en sú lína er innblásin af tímabili í Íslandssögunni sem við köllum Ástandið. En við hefjum þáttinn á því að hringja til Feneyja, þar sem allt iðar af lífi, myndlist og spennu því stærsti myndlistarviðburður heims opnar dyr sínar á laugardag, 9.maí. Ásta Fanney Sigurðardóttir er fulltrúi okkar á æringnum, en við hringjum í fulltrúa menningarþátta Rásar 1 á svæðinu, Kristján Guðjónsson, til að heyra af stemningunni í aðdraganda opnunar.
    56 min
  • Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður
    Endurfluttur þáttur frá 2024:
    Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er fædd í Reykjavík árið 1960 en bjó um árabil í Frakklandi, Ítaliu og Bandaríkjunum. Hún stundaði nám í fatahönnun í París og við Parson School of Design í New York. Eftir útskrift starfaði hún hjá erlendum tískuhúsum á borð við Calvin Klein, Ralph Lauren, La Perla og Gucci, en ákvað árið 2000 að flytja heim til Íslands og stofna sitt eigið merki: Steinunn. Síðan þá hefur Steinunn einnig rekið verslun í verbúðunum á Granda, þar sem hún framleiðir í takt við eftirspurn vel sniðin föt úr hágæðaefnum. Hún segist lifa í núinu þökk sé fjölfötluðum syni sem hefur kennt henni meira um lífið en allt annað, hún klæðist ull frá toppi til táar alla daga, allan ársins hring og helst bara svörtu.
    45 min
  • Forvitin rauð á Hönnunarmars, Freyja heimspekipistill, Innblástur-rýni
    Síðastliðin misseri hafa tveir grafískir hönnuðir, þær Hólmfríður Benediktsdóttir og Una María Magnúsdóttir kafað ofan í heim tímaritsins Forvitin rauð, málgagn íslensku rauðsokkahreyfingarinnar. Tímaritið kom út einu sinni til tvisvar á ári frá 1972 til 1982, og voru umfjöllunarefnin jafnréttismál, stjórnmál og bókmenntir. Þær Hólmfríður og Una María opna sýningu á afrakstri rannsóknarvinnu sinnar á Hönnunarmars og þær segja frá vinnunni og áhrifum kvenna sem prenta saman í þætti dagsins.
    Trausti Ólafsson rýnir í Innblástur og Freyja Þórsdóttir veltir fyrir sér mikilvægi tungumálsins og sannleikans, m.a. í samhengi við tímana sem við lifum og einkennast af upplýsingaóreiðu, tíma eftirsannleikans.
    51 min
  • Suðurríkjaherforingi frá Big Sur, Margot Gamm, Haukur Þorgeirs pistill#6
    Í þætti dagsins ræðum við við Þórð Sævar Jónsson, þýðanda og skáld, um þýðingu sem hann var að senda frá sér á skáldsögu bandaríska rithöfundarins Richard Brautigans, Suðurríkjaherforingi frá Big Sur.
    Haukur Þorgeirsson fer með okkur aftur til hins kaþólska Íslands og heyrum við brot úr Katrínardrápum og öðrum kvæðum um heilagar meyjar.
    Við sláum einnig á þráðinn austur á Höfn í Hornafjörð en þar opnaði nýverið sýningin Hlýja og handverk í Svavarssafni þar sem gefur að líta verk eftir kennarann og handverkskonuna Margot Gamm en hún auðgaði líf menningarlíf Hornarfjarðar með listfengi sínu í áratugi.
    51 min
  • Salka: Ástin og dauðinn
    Í þættinum tökum við örlítið forskot á bókaklúbbinn Aldrei las ég Laxness og ræðum fyrsta hluta Sölku Völku og sýninguna Salka; Ástin og dauðinn, við leikkonuna, leikskáldið og leikstjórann Unni Ösp Stefánsdóttur. Sýningin er einleikur á vegum þjóðleikhússins og Landnámsseturs Íslands, byggður á fyrsta bindi skáldsögunnar og hefur vakið umtalsverða athygli undanfarna mánuði.
    56 min
  • Alþjóðlegi dansdagurinn og svipmynd af Ástu Fanney
    Í þættinum flytur Steinunn Ketilsdóttir, danshöfundur og framkvæmdastjóri Dansverkstæðisins, ávarp í tilefni af Alþjóðlega dansdeginum 2026. Einnig endurflytjum við svipmynd sem Víðsjá gerði af feneyjafara Íslands í ár Ástu Fanneyju Sigurðardóttur.
    Svipmyndin er frá 2024.
    54 min
  • Þykjó, Sölvi Kolbeinsson, +1 og stígvél
    Í Víðsjá dagsins hittum við Sigríði Sunnu Reynisdóttur, einn af hönnuðum Þykjó, og ræðum við hana um hönnunarteymið og hljóðfærasmiðju sem þær standa fyrir í Jazzþorpinu í Garðabæ.
    Við heyrum einnig af verkum Sölva Kolbeinssonar og Ingibjargar Elsu Turchi og Hróðmars Sigurðssonar en öll koma þau fram í Jazzþorpinu.
    Þá rifjum við upp fimm ára ráðgátu frá ströndum þar sem forláta stígvéli skolaði þar á land árið 2021.
    54 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners