Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Aldrei las ég Laxness / Úngfrúin góða og Húsið
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga mánaðarins er Úngfrúin góða og Húsið en hún er stutt verk sem Halldór skrifar um efri stétt í þorpinu Eyvík og tilraunum hennar til að stjórna narratífunni um sjálft sig. Sagan er talin byggð á raunverulegum atburðum sem og upplifunum Halldórs sjálfs þegar hann sigldi ungur til Kaupmannahafnar. Sögumaður verksins er fjarlægur persónunum, samtöl og senur eru fáar og lesandi þarf sífellt að vera að púsla atburðunum saman í gegnum óbeinar upplýsingar héðan og þaðan svo erfitt er að ákveða hverju maður trúir og hverju ekki.
    Samlesari klúbbsins að þessu sinni er Elínborg Una Einarsdóttir, blaðamaður hjá Morgunblaðinu, sviðshöfundur og samfélagsrýnir. En síðasta haust birti hún grein í Morgunblaðinu með titilinn „Laxness hverfur úr skólum landsins“ og olli hún nokkru fjaðrafoki í samfélaginu og átti sinn þátt í að kveikja á þessum bókaklúbbi.
    Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður Heimsljós; dagsetning verður nánar auglýst síðar.
    Grafík; Silvía Sif Ólafsdóttir
    54 min
  • Ísland í fjarska, Köngurváfa og Ingeborg Bachmann
    Í Víðsjá dagsins höldum við á Listasafn Íslands og heimsækjum þar listfræðing og forverði til að forvitnast um málverkasafn danska 18. aldar greifans Otto Thott. Meðal þeirra gersema sem hann lét eftir sig voru yfir 30 olíumálverk af íslensku landslagi eftir óþekktan höfund sem hafði greinilega aldrei komið til Íslands því fátt minnir á íslenska náttúru í verkunum. Listasafn Íslands fékk þessi verk að gjöf árið 1928 en eru þau nú sýnd saman í fyrsta sinn í Safnasafninu á Svalbarðsströnd. Sýningin kallast Ísland í fjarska, við heyrum meira um hana í þættinum.
    Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir, fjallar um ljóðabók sem kom kom út á vordögum, Köngurváfa eftir Arndísi Þórarinsdóttur.
    Einnig hugum við að austuríska ljóðskáldinu Ingeborg Bachmann. En í ár 2026 eru hundrað ár liðin frá fæðingardegi hennar og af því tilefni birtast þýðingar á tíu ljóðum hennar í nýjasta hefti Skírnis. Kristján B. Jónasson, bókmenntafræðingur, þýðir og ritar stuttan kafla um ævi Bachmanns. Hann heimsækir okkur í hljóðstofu og segir frá þessu mikla skáldi.
    53 min
  • Samfélag í bleyti til Feneyja, Sinfóárið framundan, Haukur Þorgeirs pistill #11
    Sinfóníuhljómsveit Íslands sendi frá sér dagskrárbækling fyrir næsta tónleikaár og verður þar ýmsu til tjaldað. Nýr Aðalhljómsveitarstjóri, Barbara Hannigan, tekur við. Nýr staðarlistamaður og staðartónskáld taka til starfa og margar stórstjörnur sígildrar tónlistar koma að utan. Guðni Tómasson, framkvæmdarstjóri sveitarinnar, heimsækir okkur og segir frá tónleikaárinu.
    Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor fræðir okkur um sagnakvæðið Gullkársljóð en þar segir frá konungsdótturinni Æsu sem verður ástfangin af álfi í skarlatsklæðum.
    En við byrjum á arkitektúr. Í síðustu viku var tilkynnt hverjir fara fyrir Íslands hönd á tvíæringinn í arkitektúr í Feneyjum, en verkefni Basalt arkitekta, Samfélag í bleyti, hefur verið valið framlag Íslands. Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, kemur í heimsókn og segir frá því sem koma skal.
    57 min
  • James Merry, Rót/rýni og Maístjarnan
    Við lítum við á sýningu James Merry, sem opnaði um liðna helgi í Listasafni Íslands og hefur yfirskriftina Ummyndlingar. Þar eru til sýnis grímur sem James hefur búið til á 15 ára tímabili, að stórum hluta í samstarfi við Björk Guðmundsdóttur, en sýning hennar, Echolalia er sýnd í safninu samhliða. Við heyrum líka umfjöllun Trausta Ólafssonar um brúðuleiksýninguna Rót, sem sýnd er í Tjarnarbíói í tilefni af Listahátíð í Reykjavík, og rifjum upp umfjöllun og lestur úr vinningsbók Maístjörnunnar, Mara kemur í heimsókn, eftir Natöshu S.
    53 min
  • Fischersund / Svipmynd
    „Það er í raun mjög fyndið að við höfum öll farið þessa leið,“ segja systurnar Lilja, Ingibjörg og Sigurrós Birgisdætur um leiðina inn í myndlistina, en þær stofnuðu ásamt Jónsa bróður sínum ilmhúsið Fischersund sem hefur sprungið út sem hálfgerð sköpunarverksmiðja þar sem ilmvörur en líka myndlist og tónlist streyma út. „Pabbi er vélsmiður og mamma sjúkraliði, en það er kannski þetta traust og þetta frelsi sem að þau veita okkur sem gerir þetta að verkum. Þau eru ofboðslega skapandi og án þess að vera beint að skapa listaverk, þá eru þau lausnamiðuð og gera hlutina sjálf.“
    Fischer systur eru gestir Víðsjár í dag og við ræðum ilmtónleika og hugmyndir að baki ilmi Listahátíðar Reykjavíkur en líka allt milli himins og jarðar; æskuna í Mosfellssveti, landasala, húsanda, útiveru og skapandi leiki. Lyktina af náttúru Íslands, minningarnar sem hún kveikir og lífið sem hún hefur gefið fjölskyldunni í formi sköpunarverka en einnig samveru og nýrra minninga.
    49 min
  • Samfélag heilagra, Franziscuskóli á Skriðuklaustri, Haukur Þorgeirs pistill #10
    Í Víðsjá dagsins rennum við upp að herrasetrinu á menningar- og sögustaðnum Skriðuklaustri og hittum þar Oddnýju Eir Ævarsdóttur, nýjan forstöðumann Gunnarsstofnunar, sem tók við því starfi í janúar síðastliðnum. Meðal þess sem hún er með í farvatninu er glænýr skóli fyrir skrifandi fólk sem hún kallar Franziscuskóla. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkue frá Kálfi munki á 14. öld sem orti ekki bara helgikvæði heldur samdi líka barnaefni. Og við kynnum okkur nýútkomið bókverk úr smiðju Birtings, hóps rithöfunda í Ritlist við Háskóla Íslands og tveggja ritstjóra úr Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við sama skóla. Bókin Samfélag heilagra er sagnasveigur sem hverfist um rannsókn á mannlegu samfélagi þar sem umbreytandi tímamót í lífi og dauða fólks eru krufin.
    51 min
  • Í beinni á Listahátíð
    Sameiginleg bein útsending Víðsjár og Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík.
    Viðmælendur í þættinum eru
    Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chloe Loftus og Florent Devlesaver.
    52 min
  • Heyr himna og glænýir nýræktarstyrkhafar
    Við lítum í heimsókn í sögufrægt hús hér í borg, Englaborg við Klambratún, þar sem myndlistarmaðurinn Sigtryggur Bjarni Baldvinsson býr ásamt fjölskyldu sinni. Jón Engilberts og eiginkona hans Tove Engilberts byggðu húsið eftir heimkomu frá Kaupmannahöfn en örlögin höguðu því þannig að Sigtryggur og fjölskylda keyptu Englaborg af Engilberts-fjölskyldunni. Stór hluti hússins er vinnustofa og í dag opnar Sigtryggur Bjarni sýningu á vinnustofunni. Við fáum líka innlit frá glænýjum handhöfum nýræktarstyrkja frá Miðstöð íslenskra bókmennta, en tilkynnt var um styrkhafa þeirra í Gunnarshúsi kl 16 í dag.
    53 min
  • Svipmynd af Skaftfelli á Seyðisfirði
    Menningarmiðstöðin Skaftfell á Seyðisfirði var stofnuð árið 1998 og er ein langlífasta sjálfstæða listamiðstöð á landinu. Skaftfell hefur frá upphafi staðið fyrir öflugu sýningahaldi með áherslu á samtímalist og þar hefur líka verið starfrækt veitingahús og gestavinnustofa, sem að öllum líkindum er sú fyrsta sinnar tegundar á landinu. Að baki stofnun Skaftfells stóð öflugur hópur einstaklinga úr ólíkum áttum sem lagði til ómælda vinnu og mikla ástríðu til þess að sjá Skaftfell verða að veruleika. Við ætlum í svipmynd dagsins að huga að þessari merkilegu listamiðstöð, menningarhjarta Austurlands. Rætt er við Tinnu Guðmundsdóttur, myndlistarkonu, fyrrum forstöðukonu og höfund nýrrar bókar um tilurðarsögu Skaftfells, en auk þess Þóru Guðmundsdóttur, arkitekt og frumkvöðul, Pétur Kristjánsson, þjóðfræðing, myndlistarmann og fyrrum forstöðumann Tækniminjasafnsins á Seyðisfirði, Unu Björgu Magnúsdóttur, myndlistarkonu, Þóri Höskuldsson, myndlistarmann og Önnu Margréti Ólafsdóttur, verkefnastjóra í Skaftfelli.
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners