Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Roman Signer á Seyðisfirði, Hljóð í ljóði og Tu Ha? Tu Bjö!
    Þáttur dagsins er að mestu tileinkaður jazzi, enda Jazzhátíð í Reykjavík að hefjast í kvöld. Við kynnum okkur tvær jazzplötur sem koma út um þessar mundir, útgáfum sem verður fagnað sérstaklega á hátíðinni.
    Tilrauna- og rannsóknarverkefnið Tu Ha? Tu Bjö! sendi frá sér plötu um liðna helgi. Hljómsveitin er skipuð tveimur trompetleikurum og tveimur tenór saxófónleikurum; þeim Tuma Torfasyni, Hannesi Arasyni, Tuma Árnasyni og Björgvini Ragnari Hjálmarssyni.
    Við fáum líka til okkar í hljóðstofu sellóleikarann og tónskáldið Þórdísi Gerði Jónsdóttur, en hún gaf út plötu með eigin tónsmíðum fyrr í mánuðinum. Platan heitir Hljóð í ljóði og ber nafn með rentu, en lögin samdi Þórdís út frá gömlum og nýjum ljóðum íslensk ljóð þannig að stemning hvers ljóðs var þýdd úr texta yfir tónlist.
    En áður en við vindum okkur alfarið í jazzinn heyrum við pistil frá myndlistarrýninum Völu Sigþrúðar- Jónsdóttur, um sýningu Romans Signers í Skaftfelli á Seyðisfirði, sem stendur yfirút septembermánuð.
    56 min
  • Brotnar línur, Heyrðu mig og The Band
    Nú fyrir helgi kom út fyrsta ljóðabók Védísar Evu Guðmundsdóttur, Brotnar línur. Ljóðsagan segir frá ungri konu sem heldur úr borginni út á land til að vinna í sláturhúsi. Þar kynnist hún köldum veruleika blóðugrar matvælaframreiðslu í neonlýstum slátursalnum, en jafnframt fólkinu í þorpinu og samfélaginu að baki. Védís Eva heimsækir hljóðstofu og segir frá bókinni.
    Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræðingur, flytur sinn fyrsta pistil sem sviðslistarýnir. Hún fjallar um danssýninguna Heyrðu mig, eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur, sem sýnt er í Ásmundarsal um þessar mundir. Verkið i er innblásið af lífi dansarans Diljár Sveinsdóttur, sem fæddist heyrnarlaus en hefur á sinn einstaka hátt skapað sér leið sem atvinnudansari og listakona.
    Nú á miðvikudag stendur til að sýna í Sambíóunum hina klassísku kvikmynd The Last Waltz í leikstjórn Martin Scorsese frá árinu 1978. Við munum því að gefnu tilefni rifja upp eitt afar furðulegt atvik úr sögu þessarar sveitar.
    50 min
  • Örn Alexander, Sjónarafl og Skriftamál einsetumannsins
    Síðustu ár hefur á Listasafni Íslands verið unnið að metnaðarfullu fræðsluverkefni í myndlæsi undir yfirskriftinni Sjónarafl. Þar fá nemendur og áhugasamir spurningar og lykla sem opna dyr að heimi myndlistar fyrir alla að njóta. Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslu- og útgáfustjóri Listasafns Íslands, upplýsir okkur nánar um verkefnið.
    Sölvi Halldórsson rýnir í sögufrægt verk eftir Sigurjón Friðriksson sem kom fyrst út árið 1929 og nefnist Skriftamál einsetumannsins. Að lokum lítum við inn í Kling & Bang, en þar opnar á morgun einkasýning Arnar Alexanders Ámundasonar sem nefnist því greinargóða nafni; Sýning sem verður kannski tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna. Þar tekst Örn á við umræðuna um gangverk listheimsins sem fer oftast fram í hálfhljóði.
    56 min
  • Margrét Hallgrímsdóttir í Viðey og Hist Highness
    Í ár eru 800 ár síðan klaustrið í Viðey hóf starfsemi sína árið 1226, en klaustrið var stofnað af höfðingjum þjóðveldisaldar, Snorra Sturlusyni og Þorvaldi Gissurarsyni. Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur og fyrrum þjóðminjavörður, fór fyrir fyrstu fornleifarannsókninni á minjum miðaldaklausturs í Viðey á árunum 1987-1995 og vinnur nú að bók um niðurstöður rannsóknanna, sem eru um margt merkilegar og gefa upplýsingar um samfélag og sögu langt út fyrir strendur eyjunnar. Víðsjá mælti sér mót við Margréti í Viðey en auk þess líta meðlimir hljómsveitarinnar Hist og...við í hljóðstofu, þau Róberta Andersen og Eiríkur Orri Ólafsson, til að segja frá nýrri hljómplötu sem heitir Hist Highness.
    53 min
  • Jarðvegur Önnu Rúnar, Mamma mjöll og draugapennar
    Á einkasýningu Önnu Rúnar Tryggvadóttur, Jarðvegi, taka á móti gestum fagurlega mótaðar vatnslitamyndir, órætt, líkamlegt landslag sem rennur til og ofan í jarðveginn. Að baki býr leynifélag kvenlegra gilda og viska sem byggir á tilfinningu, alúð og reynslu frekar en á hlutlausri, fjarlægri athugun. Síðustu ár hefur Anna Rún gjarnan unnið með náttúruleg fyrirbæri og ferli og beint með því sjónum okkar að stóra samhenginu. Við lítum við í gallerí Þulu í Víðsjá dagsins, heyrum rýni Gauta Kristmannsonar í venezúelsku skáldsöguna Mamma mjöll og minningar hennar og rifjum upp hugleiðingar Tómasar Ævars um draugapenna.
    52 min
  • Ásta Dóra, María Qing og Henry Threadgill
    Fyrsti þáttur haustsins er tileinkaður tónlist úr mjög ólíkum áttum. Þær Ásta Dóra Finnsdóttir og María Qing Sigríðardóttir eru meðal stærstu vonarstjarna okkar á sviði klassískrar tónlistar. Ásta Dóra stundar nám í Curtis, einum virtasta tónlistarháskóla heims, og María er eftirsóttur sellisti í Þýskalandi, þar sem hún er búsett. Þrátt fyrir að vera rétt um tvítugt hafa þær báðar leikið einleik með fleiri en einni sinfóníuhljómsveit og framundan eru spennandi tækifæri hér heima og erlendis. Þær líta við í hljóðstofu en í framhaldinu höldum við svo áfram að huga að tónlistarmanninum Henry Threadgill og heyrum af tónleikum sem hann hélt með hljómsveit sinni Air í Gamla bíói árið 1982
    55 min
  • Hverafugl, Himna, viðkvæmni og Harðindi
    Freyja Þórsdóttir fjallar í pistli sínum um viðkvæmni og styrk út frá ólíkum sjónarhornum. Það sem virðist viðkvæmt eða sterkt við fyrstu sýn getur fengið á sig annan blæ í víðara samhengi. Til dæmis þegar það er skoðað gegnum linsu djúptíma. Með þetta í huga lítur hún meðal annars til máttarins sem býr í blómum.
    Vala Sigþrúðar Jónsdóttir, myndlistarmaður, kom við á sýningunni Himnu í Norræna húsinu og flytur hún rýni um sýninguna í þættinum.
    Tumi Árnason, tónlistarmaður, ferðaðist yfir fjöllin til Hveragerðis og heimsótti hátíðina Hverafugl sem fór fram um síðustu helgi og mun hann gefa okkur skýrslu af sinni upplifun.
    Við hringjum til útlanda og heyrum í íslenskum rithöfundi sem var að senda frá sér sína fyrstu skáldssögu. Vilhjálmur Pétursson á sigurbók Nýrra radda hjá Forlaginu og nefnist hún Harðindi og segir frá ævintýrum manns og merar í martraðarkenndum eftir-heimsenda-veruleika hér á Íslandi.
    54 min
  • Davíð Þór á Gljúfrasteini
    Í Víðsjá dagsins komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum, í sérstökum aukaþætti Aldrei las ég Laxness, um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og tilverunnar. Einnig verður leikið á flygilinn beint upp úr textum Halldórs og snert á sönglögum sem samin hafa verið við kvæði hans.
    51 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners