Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Bókmenntir Venesúela, viðgerð á brothættri skál, Haukur Þorgeirs pistill #9
    „Það sem bókmenntin hefur er að draga fólk saman. Við getum ekki elskað það sem við kunnum ekki. Þannig að það er minn heiður að geta gefið eitthvað út frá Venesúela, sem kannski kynnir fyrir Íslendingum hvernig við erum sem þjóð í Venesúela,“ segir Helen Cova rithöfundur og bókaútgefandi hjá Karíba útgáfunni, en hún var að gefa út fyrstu íslensku þýðinguna á skáldsögu frá Venesúela, Mamma mjöll og minningar hennar eftir Teresu da la Parra í þýðingu Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur. Þær verða báðar gestir okkar í dag en á morgun verða þær einnig með erindi í Veröld á viðburði um bókmenntir Venesúela og svo aftur um helgina á Bókmenntahátíð Flateyrar. Meira um hana og Mömmu Mjöll í þætti dagsins. Einnig er sviðslistakonan Steinunn Knúts Önnudóttur heimsótt og Haukur Þorgeirsson flytur pistil um rímur frá 15.öld um frúna Ólíf
    53 min
  • Skáldaþing í Múlaþingi, Ómur í Selárdal, Nína Hjálmars um Feneyjatvíæring
    Í gær hófst 11 daga ljóðahátíðin Skáldaþing, með viðburðum á Egilsstöðum, Hallormsstað og Seyðisfirði, en á hátíðinni verða ýmsar ljóðatengdar uppákomur og viðburðir, myndlistarsýningar og gjörningar. Víðsjá byrjaði daginn á því að hlusta á ljóðalestur í sundi á Egilsstöðum og ræða við þær Kötlu Rut Pétursdóttur og Gunnhildi Þórðardóttur, skáld, myndlistarkonur og verkefnastjóra ljóðahátíðanna Skáldasuðs og Skáldaþings, og forstöðumann Sláturhússins á Egilsstöðum, Ragnhildi Ásvaldsdóttur.
    Við heyrum einnig í meðlimum Listvinnzlunnar sem opna sýninguna Ómur, í Selárdal í Arnarfirði um helgina, í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Og Nína Hjálmarsdóttir flytur pistil um Feneyjatvíæringinn þar sem hún spyr meðal annars; Geta lönd átt í diplómatískum samskiptum á sviði listarinnar í skugga þjóðarmorðs?
    52 min
  • Yrsa Roca Fannberg / Svipmynd
    Yrsa Roca Fannberg er gestur Víðsjár í dag en hún er tilnefnd til Edduverðlauna sem leikstjóri ársins. Yrsa er fædd í Reykjavík árið 1973 en hefur búið stóran hluta ævi sinnar á Spáni og í Svíþjóð. Hún ólst upp við ferðalög og ævintýri á jafn ólíkum eyjum og Formentera og Flatey, svo forvitni og áhugi á eðli manneskjunnar varð snemma hluti af lífinu. Hún sökk inn heim kvikmyndanna þegar hún var við nám í myndlist í London en eftir að hafa séð verk armenska leikstjórans Harutyun Khachatryan á kvikmyndahátið í Edinborg, þá var ekki aftur snúið. Við tók nám í heimildamyndagerð í Barcelona þar sem hún hóf vinnu við sína fyrstu mynd, Salóme. Myndin átti að vera portrett af móður hennar, veflistakonunni Salóme E. Fannberg, en varð á endanum mynd um samband þeirra mæðgna og um eðli heimildamynda. Árið 2019 kom Síðasta haustið, sem fjallar um síðasta haust ábúenda á afskekktum sauðfjárbæ á Ströndum og í fyrra frumsýndi Yrsa sína þriðju mynd, Jörðin undir fótum okkar. Hún gerist á dvalarheimilinu Grund og fjallar um síðasta æviskeið lífsins. Yrsa hefur starfað á Grund undanfarin 13 ár meðfram því að búa til heimildamyndir og kenna skapandi heimildamyndagerð við Háskóla Íslands.
    53 min
  • Rót brúðusýning, Huldur Í fossgljúfri og Nína Hjálmars í Feneyjum
    Kammerkórinn Huldur var stofnaður fyrir um fimm árum síðan. Kórinn samanstendur að mestu af fyrrverandi meðlimum kórs Menntaskólans við Hamrahlíð en stofnandi kórsins og kórstjóri er Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Huldur hefur nú gefið út plötu sem kallast Í fossgljúfri en meirihluti verkanna er saminn af meðlimum kórsins. Við fáum tvo þeirra til að segja okkur frá plötunni, þá Kormák Loga Bergsson og Arvid Ísleif Jónsson Schirmacher.
    Rót er ný ljóðræn brúðuleiksýning fyrir alla fjölskylduna sem sýnd verður á Listahátíð í Reykjavík. Verkið er úr smiðju Handbendi, margverðlaunaðs brúðuleikhúss á Norðvesturlandi sem stofnað var árið 2016 af Gretu Clough leikstjóra, leikara og flytjanda. Þau Sigurður Arent Jónsson, leikari og brúðuleikari heimsækja hljóðstofu.
    Nína Hjálmarsdóttir, menningarrýnir, segir okkur frá sinni upplifun af Feneyjatvíæringnum, en hún er nýkomin heim eftir að hafa verið á svæðinu að skoða myndlist í heila fimm daga.
    53 min
  • Jöklaminni, Tumi Árna um Jazzþorpið, Haukur Þorgeirs pistill #8
    „Við reiðum okkur á gögn sem eru útreiknuð í samhengi við náttúru og veðurfar og erum auðvitað griðarlega þakklát fyrir það. En að sama skapi þá býr það til þessa fjarlægð, og þessa kannski stjórnunaráráttu okkar gagnvart náttúru og umhverfi. Að halda að við getum nýtt okkur þessi gögn að öllu leyti, sem er auðvitað ekki rétt. Og það er kannski þetta hráa og berskjaldaða í okkur sem þarf að vera til, af því að það býr til rás inn í ímyndunaraflið og kraft inn í það að geta hugsað í lausnum.”
    Þær Julie Sjöfn Gasiglia, Vala Sigþrúðar Jónsdóttir og Þóranna Björnsdóttir segja frá þverfaglegu verkefni sem kallast Art/Earth: Jöklaminni. Í því mætast lista og vísindafólk frá Íslandi og Belgíu til að rannsaka loftslagsbreytingar á svæðum þar sem áhrifin eru þegar orðin áþreyfanleg. Við sögu koma skógarbotnar, vindar, ár og bjórar.
    Í þætti dagsins segir Tumi Árnason einnig frá Jazzþorpinu í Garðabæ og Haukur Þorgeirsson fer með okkur í heim rímna á 14.öld.
    55 min
  • Aldrei las ég Laxness / Salka Valka
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Salka Valka sem kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932, og segir verkið sögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, en hún elst upp á Óseyri við Axlarfjörð, á miklum umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar.
    Samlesari Sölku Völku og sérstakur gestur þáttar er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari.
    Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður smáskáldsagan Úngfrúin góða og húsið; dagsetning verður nánar auglýst síðar.
    57 min
  • Í hæfilegu magni, leturgerðin Rúna og Mzungo/rýni
    Ljóðskáldið Heiða Vigdís Sigfúsdóttir gaf nýverið út ljóðabókina Í hæfilegu magni hjá Forlaginu. Þar fylgir lesandi konu sem virðist í upphafi falla að öllum helstu viðmiðum samfélagsins, en reynist eftir því sem á líður búa yfir fjölbreyttari karaktereinkennum en þar rúmast. Við ræðum við Heiðu í þætti dagsins og kynnum okkur einnig nýja leturgerð sem kallast Rúna en það er grafíski hönnuðurinn og myndlýsarinn Elías Rúni sem hannaði letrið upp úr handskrift listakonunnar Rúnu, en hún féll frá 99 ára að aldri í byrjun mánaðarins. Og Gauti Kristmannsson fjallar um skáldsöguna Mzungu, eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur og Simon Okoth Aora, sem kom út hjá Angustúru fyrr í vetur
    49 min
  • Gabríela Friðriksdóttir, Hinsegin Salka Valka, Haukur Þorgeirs pistill #7
    „Ef maður er ekki alltaf að, þá er hjartað manns ekki opið fyrir tækifærunum. Í gamla daga voru menn oft að vinna bara fyrir ákveðnar sýningar, en ég held að þetta sé öfugt. Þú bara gerir og gerir og þá kemur sýningin til þín. Þetta er þannig sem þetta virkar,“ segir Gabríela Friðriksdóttir. Í vikunni verður sýndarveruleika innsetningin Playing with Fire, sem hún gerði í samstarfi við píanóstjörnuna Yuja Wang og leikstjórann Pierre-Alain Girraud, frumsýnd í Cannes, en verkið er tilnefnt til Gullpálmans í flokki alltumlykjandi innsetninga. Verkið var frumflutt í Fílharmóníunni í París fyrr í vetur og verður sýnt víða um heim í framhaldinu, en Gabríela segir það vera einskonar mannkynssögu fyrir skilningarvitin. Meira um það í þætti dagsins.
    Ásta Kristín Benediktsdóttir, bókmenntafræðingur, lítur einnig við og segir frá hinsegin lestri á skáldsögunni Sölku Völku eftir Halldór Laxness, og Haukur Þorgeirsson veltir fyrir sér raunveruleikanum á bak við helgikvæði um konur sem dóu fyrir trúarsannfæringu sína.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners