Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Lyktarheimur Íslendinga og áhrif tunglsins á líf og ljóð
    Sagnfræðingurinn Ragnhildur Björt Björnsdóttir hefur síðustu misseri legið yfir heimildum og skrifað ritgerð um lyktarheim Íslendinga á tímabilinu 1870-1920. Við rannsóknir sínar styðst hún við aðferðir svokallaðrar tilfinningafræði, með samanburði á sjálfsbókmenntum og skilgreiningum millistéttarinnar á æskilegri hegðun. Hún heldur fyrirlestur um efnið á Minjasafni Akureyrar á fimmtudag, en lítur við í hljóðstofu í Víðsjá dagsins. Auk þess veltum við fyrir okkur ljóðasöng undir áhrifum tunglsins og hjátrú um tengsl kvartilaskipta tunglsins við ýmsa stóra atburði í lífi manna, svo sem slys, fæðingar og dauða.
    54 min
  • Köln 75, Birtínur og Útvarp Matthildur
    Í þætti dagsins hittum við þá Sævar Jóhannsson, tónlistarmann og Ólaf Sverri Traustason, skiptilykil hjá Bíó paradís, og ræðum um kvikmyndina Köln 75 sem sýnd er næsta laugardag á Þýskum kvikmyndadögum sem og tónleika sem þeir ætla að blása til í kvikmyndahúsinu að lokinni sýningu. Tónleika sem verða eins konar tilbrigði við víðfræga Kölnartónleika bandaríska tónlistarmannsins Keith Jarretts. Trausti Ólafsson rýnir í Birting í uppsetningu Leikfélags Akureyrar og einnig heiðrum við minningu Davíðs Oddsonar með brotum úr útvarpsþættinum Útvarp Matthildur.
    53 min
  • Birtingur, Eliane Radigue og Laxnesssafn Magnúsar Jóhanns
    Birtingur Voltaire verður frumsýndur í nýrri leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar hjá Leikfélagi Akureyrar í kvöld. Í raun er um rokkóperettu að ræða, en tónlistina gerði Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Við hefjum þáttinn á því að taka púlsinn á leikstjóranum og leikhússtjóranum Bergi Þór og heyra af verkinu og aðdragandanum.
    Franska tónskáldið Éliane Radigue lést fyrr í vikunni, 94 ára að aldri. Radigue var frumkvöðull á sviði raftónlistar og minimalisma og þekkt fyrir löng og hugleiðslukennd hljóðverk unnin með hliðrænum hljóðgervlum. Pétur Eggertsson segir okkur nánar af verkum Radigue í þætti dagsins. Og við lítum í heimsókn til Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar, sem sýnir okkur merkilegt safn sitt af verkum Laxness.
    54 min
  • Albína Thordarson arkitekt / Svipmynd
    Albína Thordarson arkitekt er fædd árið 1939 í Reykjavík og það er óhætt að segja að arkitektúrinn sé henni í blóð borinn. Faðir hennar Sigvaldi Thordarson rak um tíma arkitektastofu á heimili fjölskyldunnar í Hlíðunum og Albína sá aldrei neitt annað fyrir sér en að verða arkitekt. Teikniblöð og umræða um hönnun voru alltaf hluti af lífinu og leiðin lá rakleitt í nám í arkitektúr til Danmerkur eftir að að skyldunáminu lauk.
    Albína á að baki langan og fjölbreyttan feril þar sem við sögu koma einbýli, fjölbýli, skólar, skrifstofuhúsnæði, orlofshús, kaffihús og leikskólar. Hún var formaður Arkitektafélags Íslands á árunum 2005–2007 og árið 2015 var hún gerð að heiðursfélaga fyrir ævistarf sitt. Fyrr í vetur hlaut hún heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands fyrir framlag sitt til byggingarlistar.
    Albína er gestur í Svipmynd Víðsjár í dag og við ræðum ferilinn, hús og hönnun en einnig hið byggða umhverfi sem rís í dag. Albína er ekki hrifin af stefnuleysi stjórnvalda í skiplagsmálum og finnst þar vanta alla langtímahugsun. Hún trúir því að húsnæðiskreppan sé ekki bara vegna skorts á íbúðum, heldur einnig vegna skorts á húsnæði sem fólki hugnist sem heimili. Því miður séu gæði ekki lengur sett í fyrsta sæti.
    52 min
  • Caroline Shaw, Söguhringur frásagnarfélag og Síðustu dagar skeljaskrýmslisins
    Bandaríska tónskáldið, fiðluleikarinn og söngkonan Caroline Shaw kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á föstudagskvöld. Shaw er ein sú mest spennandi rödd sem ómar í samtímatónlist og allar hennar viðurkenningar eru til vitnis um það. Á tónleikunum verða flutt fjögur verk og ásamt Shaw sjálfri syngur Kammerkórinn Aurora, undir stjórn Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur. Sigríður Soffía lítur við í hljóðstofu til að ræða við okkur um tónlist Shaw. Gauti Kristmannsson rýnir í nýútkomna skáldsögu Steinunnar G Helgadóttur, Síðustu dagar skeljaskrýmslisins. En við hefjum þáttinn á frásagnarlist, því annað kvöld hefur nýstofnað félag, Söguhringur frásagnarfélag, boðað til kvöldvöku í Mengi. Stofnendur félagsins eru þær Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Karólína Rós Ólafsdóttir og Maó Alheimsdóttir skáld, ásamt Hönnuh Rós Sigurðardóttur Tobin, sagnaþulu, en þær Maó og Hannah mæta í hljóðstofu til að segja okkur af Söguhringnum.
    55 min
  • Klifun Margrétar Jónsdóttur, Henry Threadgill ævisaga
    „Rauði liturinn er blóð. Bara það að vera kona og vera ein, og starfa í myndlist, þar er mjög erfitt. Laun kvenna hafa verið miklu lægri. Það er bara töff að vera í þessu,“ segir Margrét Jónsdóttir um eitt verka sinna sem nú hangir uppi í Listasal Mosfellsbæjar. Verkin á sýningunni eru máluð á ólíkum tímum en tala saman á óvæntan hátt. Stór eldri vatnslitaverk kallast á við nýrri verk þar sem frumur, fræbelgir og heilög sár í rauðum og grænum tónum minna á hringrás lífsins. Víðsjá heimsótti Listasalinn og ræddi við Margréti um sveitauppeldi á Íslandi og sveitalíf í Frakklandi, fegurð og forgengileika, líf myndlistarkonu, blóð, hundaskít, ellibelgi og dýran pappír.
    Tómas Ævar fjallar um brot úr ævi tónlistarmannsins Henry Threadgill, en hann gaf út hálf lygilega ævisögu sína fyrir þremur árum. Á ótrúlegri ævi hleypur hann til að mynda undan kúlnahríði lögreglunnar níu ára, tekur hávær saxófón sóló fyrir trylltan söfnuð uppfullan af heilögum anda þegar hann er táningur, strýkst upp við tígrisdýr í skógum Víetnam og hrærist í margar vikur undir væng sikileysku mafíunnar.
    52 min
  • Kurtág 100 ára, Cantores Islandiae og Carmen/rýni
    Þátturinn er undirlagður af tónlist, þó úr mjög ólíkum áttum sé. Trausti Ólafsson fjallar um uppsetningu Kammeróperunnar á óperu Bizet, Carmen, sem frumsýnd var í Tjarnarbíói um liðna helgi. Við kynnum okkur Gregorssöng, eða sléttsöng, sem sönghópurinn Cantores Islandiae hefur sérhæft sig í og býður áhugasömum að njóta á tónleikum í Breiðholtskirkju á laugardag.
    En við byrjum á því að hringja til Budapest, þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson og eiginkona hans, Halla Oddný Magnúsdóttir, undirbúa sig fyrir tónleika til heiðurs einu merkasta tónskáldi samtímans, György Kurtág, sem fagnar 100 ára afmæli í dag. Kurtág hefur tileinkað Víkingi útsetningar sínar, og Víkingur tileinkaði Kurtág heila plötu, From afar, sem kom út árið 2023, auk þess sem hann frumflytur í kvöld eigin útsetningu á Air eftir Bach, til heiðurs Kurtág. Við hefjum þáttinn á því að heyra rétt aðeins hljóðið í Víkingi og nánar af þessu fallega vináttusambandi.
    53 min
  • Aldrei las ég Laxness / Barn náttúrunnar
    Í dag fer af stað bókaklúbbur Víðsjár sem nefnist Aldrei las ég Laxness, sem hefur það markmið að lesa allar skáldsögur nóbelskáldsins Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Við hefjum leika á því að ræða fyrstu skáldsögu Halldórs, Barn náttúrunnar, með góðum gestum, þeim Vilhelmi Neto, leikara og Halldóri Guðmundssyni, rithöfundi. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans.
    Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Undir Helgahnúk en fjallað verður um hana í Víðsjá 18. Mars, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér:
    https://www.facebook.com/groups/1247768283945537
    56 min
  • Carmen í Tjarnarbíói, Skrifarar sem skreyttu handritin sín, Freyja Þórsdóttir/pistill
    Frægasta ópera franska tónskáldsins Bizet; Carmen, var frumsýnd í útfærslu Kammeróperunnar um liðna helgi og eins og hópsins er von og vísa er um nýstárlega uppsetningu að ræða. Kristín Sveinsdóttir bregður sér þar í hlutverk Carmen og hún lítur við í hljóðstofu ásamt leikstjóra sýningarinnar, Adolf Smára Unnarssyni.
    Freyja Þórsdóttir heimspekingur fjallar um það hvernig umhverfið sem við sköpum okkur og eyðum tíma okkar í hefur áhrif á sálarlífið. Við sögu kemur smásagan Gula veggfóðrið og grísk goðsögn um Erós og Psyche. En við byrjum þátttinn á því að kynnast myndlýsingum í íslenskum pappírshandritum og heyrum í höfundi nýrrar bókar um efnið, sagnfræðingnum Kjartani Atla Ísleifssyni.
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners