Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Tumi Magnússon/svipmynd
    Tumi Magnússon er fæddur í Reykjavík 1957 en ólst upp við jaðar Mosfellsbæjar í stórum bræðrahóp. Á heimilinu var myndlist upp um alla veggi og hugur Tuma stefndi alltaf í þá átt. Hann fór í Myndlista og handíðaskólann en ákvað að hætta eftir fornámið og klára námið í Hollandi. Hann langaði í nýtt umhverfi en svo hafði það líka áhrif að faðir hans, myndlistarmaðurinn Magnús Pálsson, var þarna orðin lykilmaður í kennslu við skólann. Magnús varaði son sinn reyndar við því að feta þessa leið en Tumi tók ekki mikið mark á því.
    Hann er ekki mikið gefinn fyrir að staðsetja sig á einum stað í listinni, en aðspurður segist hann kannski alltaf vera á slóðum konseptlistarinnar, og að kannski megi líka tengja hann við Fluxus hreyfinguna. Tími, skynjun og hversdagslegar athafnir eru meðal hans helstu viðfangsefna og oft má greina leikgleði og húmor í verkunum.
    Meðfram listinni hefur Tumi kennt bæði við Listaháskóla Íslands og við Konunglegu dönsku listaakademínuna en hann hefur búið í Kaupmannahöfn síðustu 20 árin. Frá sinni fyrstu sýningu á Akureyri 1981 hefur Tumi verið ötull í sýningarhaldi, hér á landi og víða um heim. Um þessar mundir sýnir hann í Listasafni Reykjanesbæjar og kallast sýningin Héðan þaðan þangað hingað.
    48 min
  • Meyjar og völd, kínversk handrit og arkitektapistill Magneu
    Bambusinn þjónar mikilvægu hlutverki í handritasögu Kínverja, sem skrifuðu gjarnan frekar á bambus en silki, áður en pappírinn var fundinn þar upp. Prentlistina eigum við líka Kínverjum að þakka, en elstu minjar um skrifað mál eru frá því um 13 öldum fyrir okkar tímatal. Jón Egill Eyþórsson er einn okkar fremsti sérfræðingur á sviði austur-asískra fræða og uppfræðir okkur um kínverska handritamenningu.
    Konungsdóttirin Mábil sterka frá var ein af fræknustu hetjum íslenskra bókmennta í 500 ár. Hún var öðrum fremri í riddaralistum og drýgði miklar hetjudáðir í bardögum. Hetjudáðir hennar voru sagðar í Mábilar rímum sem komu fyrst fram í handriti á fimmtándu öld, en mjög fá dæmi eru um konur sem aðalpersónur í rímum þess tíma. Nú hafa þessar rímur birst í fyrsta sinn á prenti, í bókinni Meyjar og völd - Rímur og saga af Mábil sterku, eftir Valgerði Kr. Brynjólfsdóttur, sem einnig er gestur í þætti dagsins. Einnig fáum við pistil frá Magneu Guðmundsdóttur, arkitekt.
    52 min
  • Hamlet og Galdrakarlinn í Oz
    Sýningum Hamlet lauk fyrr í mánuðinum en uppsetning Borgarleikhússins vakti mikla athygli og mikið umtal í haust. Við mælum okkur mót við leikstjóra verksins, Kolfinnu Nikulásdóttur og ræðum um sýningartímabilið og séreinkenni þessarar tilteknu uppsetningar. Trausti Ólafsson, leikhúsrýnir segir einnig frá Galdrakarlinum í Oz, sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á laugardag.
    52 min
  • Una Björk Kjerúlf handhafi Ljóðstafs Jóns úr vör, fyrsta útvarpssendingin, Tumi Árnason/pistill
    Una Björk Kjerúlf hlaut í gær Ljóðstaf Jóns úr Vör, en verðlaunin hafa verið veitt frá ár­inu 2001 í minn­ingu skálds­ins Jóns úr Vör. Ljóð Unu Bjarkar kallast Framlag mitt í minningabanka nærri útdauðra ljóðaen í rökstuðningi dómnefndar segir að það sé listilega lipurt og leikandi en efni þess sé nokkuð kvíðablandið þegar betur er að gáð. Við ræðum við Unu Björk Kjerúlf í þætti dagsins.
    Einnig minnumst við fyrstu útvarpssendingarinnar á Íslandi sem fór fram í Fríkirkjunni í Hafnarfirði fyrir 100 árum síðan. Þetta var fyrir daga ríkisútvarpsins en Ottó B. Arnar símfræðingur hafði fengið leyfi til að stofna og starfrækja útvarpsfélag og stóð að þessari útsendingu. Til að minnast þessa stórviðburðar höfðu þeir Sigurður Harðarson, rafeindavirki og formaður Hollvina um sögu útvarps á Íslandi og Birgir Arnar, sonur Ottós B Arnar, frumkvæði að því að útvarpsguðsþjónustu frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði verður útvarpað beint hér á Rás 1 á 100 ára afmælinu næstkomandi sunnudag. Þeir verða gestir okkar í dag.
    Einnig flytur Tumi Árnason pistil þar sem meðal annars ný plata Sölva Kolbeinssonar kemur við sögu.
    53 min
  • Óskar Árni Óskarsson / Svipmynd
    Gestur svipmyndar er Óskar Árni Óskarsson. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1950 og var ekinn heim af spítalanum á feiknar stórum, rauðum olíubíl frá Esso. Hann ólst upp í Þingholtunum nánast í bakhúsi Borgarbókasafnsins en flutti síðan í Skipholtið á unglingsárum en þar las hann uppgötvaði helstu skáld samtíma síns. Óskar hefur lengi fengist við ljóðagerð, smáprósagerð, myndljóðasmíði, útgáfu og þýðingar. Árið 1986 sendi hann frá sér sína fyrstu ljóðabók, Handklæði í gluggakistunni og 1997 sína fyrstu smáprósabók, Vegurinn til Hólmavíkur. Á ferli sínum hefur Óskar hlotið Ljóðstaf Jóns úr Vör og viðurkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins og árið 2008 var bók hans, Skuggamyndir úr ferðalagi, tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
    53 min
  • Blind date í Ásmundarsal og frönsk kvikmyndahátíð
    Á sýningunni Blind date, sem opnaði í Ásmundarsal um helgina, umbreytist innihald pennaveskis í himingeiminn, alda gleypir harmónikkuslóð á kínverskri strönd, plútóblýantur mætir jafnóðum strokleðrum í yfirstærð og tilfinningin fyrir víðáttunni í hversdagsleikanum er kitluð úr öllum höfuðáttum. Við bregðum okkur í hlutverk þriðja hjólsins með myndlistarmönnunum Kristínu Karólínu Helgadóttur og Sigurði Guðmundssyni í þætti dagsins. Við kynnum okkur líka dagskrá Frönsku kvikmyndahátíðarinnar, sem haldin verður í tuttugasta og sjötta skiptið dagana 23. janúar til 1. febrúar, og ræðum við Ásu Baldursdóttur, dagskrárstjóra Bíó Paradís. Til að brúa bilið milli umfjallana rifjum við auk þess upp hugleiðingar Páls Skúlasonar um Útlending Alberts Camus.
    53 min
  • Ólöf frá Hlöðum, Didda les bréf Ólafar, Freyja Þórsdóttir pistill
    Ólöf frá Hlöðum er meðal umfjöllunarefna í þætti dagsins. Tilefnið er að út er komin í bókarformi grein sem hún skrifaði við upphaf síðustu aldar, og sem birtist fyrst í Eimreiðinni árið 1906. Bernskuheimilið mitt kallast þessi litla fallega græna bók sem Flóra menningarhús á Akureyri gaf út í haust.
    Og af þessu tilefni verður endurfluttur pistill sem önnur skáldkona, Didda, flutti hér í Víðsjá árið 2021. Þann veturinn fjallaði Didda hér um ólíkustu hluti undir yfirskriftinni listin að þrífast og í eitt skiptið rifjaði hún upp bréfaskriftir Ólafar frá Hlöðum við ekkju Þorsteins Erlingssonar.
    Og svo ljúkum við þætti dagsins á því að heyra nýjan pistil frá Freyju Þórsdóttur, heimspekingi, en hún verður með mánaðarlega hugleiðingar hér í þættinum fram á vorið. Að þessu sinni fjallar Freyja um framfarahugsun, tæknivæðingu og ljóðræna skynjun á heiminn. Við sögu kemur gervigreindar paradísin Ísland og ljóð eftir Mary Oliver og Emily Dickinson.
    53 min
  • Heimahöfn Eirúnar Sigurðardóttur, Kim Hyesoon í Mengi og Sjá dagar koma/rýni
    Í dag opnar einkasýning myndlistarkonunnar Eirúnar Sigurðardóttur í Grafíksal Hafnarhússins. Sýninguna nefnir hún Heimahöfn, en hún samanstendur af fjórum viðamiklum útsaumsverkum, auk grafíkverks. Heimahöfn er í raun framhald af einkasýningu Eirúnar á Svavarssafni á Höfn í Hornafirði í fyrra, og báðar byggja á hugleiðingum um það að eiga einhvers staðar heima. Skáldin Fríða Ísberg og Brynja Hjálmsdóttir líta líka við í hljóðstofu til að segja okkur af stærsta ljóðskáldi Kóreu, Kim Hyesoon, sem kemur fram á ljóðaviðburði í Mengi á laugardagskvöld. Og Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í nýútkomna skáldsögu Einars Kárasonar, Sjá dagar koma.
    54 min
  • Hrafnhildur Arnardóttir Shoplifter / Svipmynd
    „Þetta er einhver huglæg efnafræði. Að blanda saman elementum og sjá hvaða líðan maður upplifir út frá því,“ segir Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, um starf listamannsins. Hún segir vinnustofuna vera einskonar rannsóknarstofu þar sem allt í einu, eins og fyrir einskæran galdur, passi allt og úr verður verkið sem átti að koma. „Og maður er bara fullviss, án þess að hafa nokkuð fyrir sér í því nema tilfinninguna.“
    Hrafnhildur hefur vakið mikla athygli fyrir verk sín úr hári, hefur sýnt víða um heim og var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2019. Hún fann snemma út að henni leið best skapandi og leiðin að listinni var nokkuð greið. U-beygjuna í Verslunarskólann segir hún hafa verið góðan skóla því það sé hollt að finna sig á rangri hillu. Annar góður skóli var að starfa meðfram listnámi í Fríðu frænku. Þar lærði Hrafnhildur líka að stefna hátt og dreyma stórt. Draumarnir fóru svo að rætast eftir framhaldsnám í New York þar sem Hrafnhildur hefur nú búið hálfa ævina.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners