Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Ljóðajól
    Víðsjá dagsins verður undirlögð af ljóðum og tónlist, en fyrst og fremst ljóðum. Fimm höfundar sem öll hafa gefið út bók á árinu segja frá bókunum og lesa ljóð:  Eiríkur Örn, Guðmundur Andri Thorsson, Móheiður Hlín Geirlaugsdóttir, Natasha S. og Sigurlín Bjarney Gísladóttir. Tónlist þáttar er sömuleiðis fengin af hljómplötu sem kom út á árinu, HIK-Translations, úr smiðju þeirra Unu Sveinbjarnardóttur og Arngerðar Maríu Árnadóttur.
    55 min
  • Huldukona Fríðu Ísberg, myndlistarrýni Rögnu Sigurðar og Lausaletur/rýni
    Rithöfundurinn Fríða Ísberg segir útgangspunkt skáldsögunnar Huldukonunnar hafa verið klisjan og að fjörðurinn, 20.öldin, sveitarómantíkin og hið eilífa sumar hafi svo komið í eðlilegu framhaldi. En tilfinningin um klisjuna átti þó eftir að umbreytast í sköpunarferlinu og rannsóknin hafi breyst í mikla glímu, ekki síst vegna innbyggðra fordóma Fríðu sjálfrar gagnvart því hvað alvöru bókmenntir eru. Við ræðum við Fríðu í þætti dagsins um Huldukonuna, sem nýverið hreppti verðlaun bóksala sem besta skáldsaga ársins.
    Einnig heyrum við rýni Rögnu Sigurðardóttur í tvær sýningar í Marshallhúsinu, samsýningu 9 ungra listamanna í Kling og Bang, Frásögnin er dregin í hlé, og sýningu Helgu Páleyjar Friðþjófsdóttur í Gallerí Þulu, Í hringiðu alls. En við hefjum þáttinn á bókarýni, Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Lausaletur Þórdísar Helgadóttur.
    53 min
  • Jólakveðja Arnar Magnússonar, Rauði fiskur Rúnu og Vegur allrar veraldar/rýni
    Í jólabókaflóðinu þetta árið er að finna bók fyrir allra yngstu lesendurna sem er algjör perla. Bók sem kom fyrst út árið 1972 en hefur nú verið endurútgefin, Rauði fiskurinn eftir Rúnu. Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur myndsköpun Rúnu fundið sér farveg innan leirlistar, bókskreytinga, málverks og hönnunar. Rúna er fædd í nóvember árið 1926 svo hún verður hundrað ára á næsta ári, en hún flutti nýverið á Hrafnistu í Hafnarfirði þangað sem Víðsjá heimsótti hana.
    Fyrir hver jól, frá því að hann tók við tónlistarstjórn í Breiðholtskirkju fyrir 14 árum, hefur Örn Magnússon útsett jólalög úr íslenskum tónlistararfi fyrir kór Breiðholtskirkju, hljóðfæraleikara og einsöngvara. Nú eru þessi jólalög komin út á plötu og við báðum Örn um að líta við í hljóðstofu og segja okkur nánar af tilkomu hennar.
    Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Veg allrar veraldar eftir Sigríði Hagalín
    48 min
  • Vegur allrar veraldar, arkitektúr og geðheilbrigði #4 og Andrými/rýni
    Vegur allrar veraldar, síðara bindi stórvirkis Sigríðar Hagalín um Ólöfu ríku Loftsdóttur, höfðingja og húsfreyju á Skarði, kom út fyrr í haust. Þungamiðja sögunnar er víg Björns Þorleifssonar, hirðstjóra konungs á Íslandi, sem Ólöf kona hans hefndi grimmilega, en sögunum af því ber ekki endilega saman og ekki sama hver segir frá. Af einhverjum sökum er lítið um heimildir um sögulega atburði á á 15. öld, en sú þögn sem lagðist yfir Ísland á ensku öldinni svokölluðu gefur aukið rými fyrir skáldskap. Sigríður segir okkur nánar af því þætti dagsins. Hildigunnur Sverrisdóttir flytur líka síðasta pistil af fjórum þar sem hún fjallar um samband geðheilbrigðis og arkitekurs og Gauti Kristmannsson fjallar um Andrými, kviksagnasafn Eiríks Jónssonar, sem nýverið hlaut tilnefningu til Íslensku Bókmenntaverðlaunanna.
    47 min
  • Stúlka með fálka, Gerðarverðlaun, Móðurást:Sólmánuður/rýni
    Þórunn Valdimarsdóttir, sagnfræðingur, rithöfundur og skáld, sendi nýverið frá sér bókina Stúlka með fálka, sem hún skilgreinir sem Skáldævisögu - fullorðinsminningar til aðgreiningar frá fyrri ævibók. Þórunn á 40 ára höfundarafmæli á næsta ári en í þessu verki fer hún í gegnum störf sína og ævi en eins og hún segir sjálf í inngangi bókarinnar er „ævisaga afbragð til að skoða kjarna þess að vera maður.”
    Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns kemur í þáttinn og segir frá nýbökuðum Gerðarverðlaunahafa: Sólveigu Guðmundsdóttur.
    Og við heyrum einnig rýni í þætti dagsins. Að þessu sinni rýnir Soffía Auður Birgisdóttir í bók Kristínar Ómarsdóttur, Móðurást: Sólmánuður.
    48 min
  • Blái pardusinn Hljóðbók, La Boheme Óðs, Hlaðan / rýni
    Sigrún Pálsdóttir er gestur Víðsjár í dag og segir frá skáldsögu sinni Bláa pardusinum hljóðbók, sem hefur verið tilnefnd til bæði Fjöruverðlauna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Bókin segir frá þremur persónum sem allar eru að hlusta á sömu hljóðbókina, Bláa pardusinn, og sem allar upplifa söguna mjög ólíkt. Líf þessara þriggja einstaklinga fléttast svo saman á óvæntan hátt undir lok sögunnar. Innan sögu Sigrúnar eru margar sögur og einnig margir höfundar og óhætt er að segja að lesturinn opni á skemmtilegar vangaveltur um lestur og hlustun, mörk skáldskapar og sagnfræði, túlkun og stöðu höfundarins.
    Trausti Ólafsson rýnir í uppfærslu Óðs á La Boheme í Borgarleikhúsinu og Gauti Kristmannsson rýnir í Hlöðu Bergsveins Birgissonar.
    48 min
  • Ósmann, arkitektúr og geðheilbrigði #3 og Kosmískt skítamix/rýni
    Við Vesturós Héraðsvatna um aldamótin 1900 bjó heljarmennið Jón Magnússon sér byrgi, og þar starfaði hann í 40 ár við að ferja menn og skepnur yfir stórfljótið. Ósmann var einstakur karakter, mannvinur, veiðimaður og skáld, og saga hans vakti áhuga rithöfundarins Joachim Schmidt, sem búsettur hefur verið á Íslandi síðustu 20 ár. Joachim segir okkur af skáldsögunni Ósmann í síðari hluta þáttar. Hildigunnur Sverrisdóttir verður einnig með okkur í dag og flytur sinn þriðja pistil af fjórum um samhengi geðheilbrigðis og arkitektúrs, en við hefjum þáttinn á leikhúsinu: Katla Ársælsdóttir fór að sjá Kosmískt skítamix í Tjarnarbíói.
    48 min
  • Morðhórur, Ó eilífi foss og Útreiðartúrinn/rýni
    Ófeigur Sigurðarson lítur við í hljóðstofu, en hann þýddi nýverið smásagnasafn chileska rithöfundarins Roberto Bolaño, Putas asesinas, eða morðhórur í íslenskri þýðingu Ófeigs. Smásögurnar í safninu eru álitnar með því besta sem höfundurinn gaf frá sér og í því koma öll hans helstu einkenni og efnistök; kynferðismál, ofbeldi, ljóðlist, glötuð æska og umkomuleysi í framandi heimi. Ó eilífi foss sem rambar á fossvegum guðs er yfirskrift nýútkominnar hljómplötu og tónverks eftir Kolbein Bjarnason. Yfirskriftin er fengin úr ljóði Steinunnar Sigurðardóttur, og raunar er tónverkið allt byggt á skáldskap hennar, því Kolbeinn settist niður með 10 ljóðabækur Steinunnar sem komu út á fimmtíu ára tímabili og ákvað að velja úr þeim jafnmörg ljóð til tónsetningar. Hann segir frá ferlinu í síðari hluta þáttar, en um miðbik þáttar rýnir Gréta Sigríður Einarsdóttir í Útreiðartúrinn, eftir Rögnu Sigurðardóttur.
    50 min
  • Í ísbúð Steinunnar Arnbjargar og Bach-að um jólin með Davíð Þór og Tómasi Guðna
    Við kynnum okkur nýútkomna plötu sellóleikarans og ljóðskáldsins Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur, sem hún kallar Í ísbúð/Radość życia. Platan er eins konar portrett af Íslandi, sprottin úr tónleikaferð sem hún hélt í, ásamt tveimur öðrum flytjendum sem búsettir eru á Norðurlandi. ,,Einu sinni áttu öll börn á Íslandi sveit. Nú á Ísland mörg tungumál," - segir Steinunn, og útskýrir með því efnisskránna, sem er að tíunda hluta á pólsku, ásamt því að eitt lag er sungið á svahílí, völdum fulltrúa fjölda annarra tungumála.
    Svo fáum við einnig í heimsókn til okkar tónlistarmennina og vinina Tómas Guðna Eggertsson orgelleikara og Davíð Þór Jónsson píanóleikara. Þeir félagar hafa í mörg ár haldið tónleika í aðdraganda jólanna þar sem þeir túlka jólasálmaforleiki Bachs. Þessi kyrrðarstund fer fram í Hallgrímskirkju í hádeginu á laugardag.
    50 min
  • Söngfjelagið, Dugguvogur 42 og myndlistarrýni Rögnu Sigurðardóttur
    Við hefjum þáttinn á því að líta út úr húsi með Henný Hafsteinsdóttur minjaverði, til að ræða Dugguvog 42, hús sem Gunnar Guðmundsson byggði fyrir G.G. hf. Húsið er hluti af listasögu borgarinnar því Gunnar fór í samstarf við enga aðra en Gerði Helgadóttur sem útfærði vegglistaverk á Dugguvog 42, innblásin af vélum og bílavarahlutum.
    Hilmar Örn Agnarsson, kórstjóri Söngfjelagsins, lítur við í hljóðstofu, ásamt kórfélaga og höfundi nokkurra jólalaga sem samin hafa verið sérstaklega fyrir kórinn, Hjörleifi Hjartarsyni. Tilefnið er síðstu jólatónleikar Söngfjelagsins sem Hilmar Örn stjórnar, en hann stjórnaði á tímabili 10 kórum og á að baki sérlega farsælan feril sem organisti og kórstjori.
    Ragna Sigurðardóttir, myndlistarrýnir Víðsjár, fjallar í dag um tvær yfirstandandi sýningar, sýningu Eggerts Péturssonar í Hafnarborg sem ber nafnið Roði og málverkasýningu Huldu Vilhjálmsdóttur í Laboutique.is á Mýrargötu í Reykjavík.
    51 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners