Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Múslimar á Íberíuskaga og Skuggi sem mælieining
    Saga múslima á Íberíuskaga spannar níu aldir, en lauk árið 1614 þegar hundruð þúsunda múslima höfðu verið flutt nauðungaflutningum frá Spáni. Áhrif þessa tíma má sjá um gervallann skagann, bæði á Spáni og í Portúgal, en þrátt fyrir það hefur ekki alltaf ríkt sátt um umfang þessara áhrifa eða þýðingu. Nýlega kom út hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur smáritið Al-andalus, saga múslima á Íberíuskaga. Höfundur bókarinnar, Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Háskóla Íslands, er gestur þáttar. Einnig heimsækjum við Listamenn gallerí við Skúlagötu til að ræða við myndlistarmanninn Helga Hjaltalín um einkasýningu hans, Skuggi sem mælieining. Þar fer Helgi í hugmyndaferðalag um hernumin svæði Evrópu, trúarbrögð, allskonar elda og stórkarlalegan hugsunarhátt.
    50 min
  • Saga múslima á Íberíuskaga spannar níu aldir, en lauk árið 1614 þegar hundruð þúsunda múslima höfðu verið flutt nauðungaflutningum frá Spáni. Áhrif þessa tíma má sjá um gervallann skagann, bæði á Spáni og í Portúgal, en þrátt fyrir það hefur ekki alltaf ríkt sátt um umfang þessara áhrifa eða þýðingu. Nýlega kom út hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur smáritið Al-andalus, saga múslima á Íberíuskaga. Höfundur bókarinnar, Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Háskóla Íslands, er gestur þáttar. Einnig heimsækjum við Listamenn gallerí við Skúlagötu til að ræða við myndlistarmanninn Helga Hjaltalín um einkasýningu hans, Skuggi sem mælieining. Þar fer Helgi í hugmyndaferðalag um hernumin svæði Evrópu, trúarbrögð, allskonar elda og stórkarlalegan hugsunarhátt.
    50 min
  • DRIPP, María Magdalena og Bústaðurinn/rýni
    María Magdalena var fyrst til þess að hitta Jesú upprisinn, og fyrir henni treysti hann boðskap sínum. Í frumkristni var skrifum um hana ýtt til hliðar og í gegnum söguna hefur ímynd hennar sem aukapersónu orðið ofan á. Síðustu ár hafa ýmsir viljað rétta hlut hennar og bent á árþúsunda áhrif feðraveldisins í söguskoðun kristninnar. Meðal þeirra er Þórey Guðmundsdóttir, sem lítur við í hljóðstofu í síðari hluta þáttar. Trausti Ólafsson rýnir í nýtt leikverk Þórs Tulinius, sem heitir Bústaðurinn og við lítum líka við í Y-gallerí í Hamraborginni, til að ræða þar við myndlistarmanninn Sæmund Þór Helgason um sýninguna DRIPP, sem opnaði um liðna helgi.
    52 min
  • Sólveig Aðalsteinsdóttir - svipmynd
    Sólveig Aðalsteinsdóttir, myndlistarkona, segist dragast að því sem vekur hjá okkur tilfinningu fyrir hinum stóra tíma. Þannig afhjúpar útlistaverkið hennar Streymi tímans til dæmis fyrir okkur jökulsorfnar klappir og minnir á smæð okkar í jarðsögulegu samhengi. Í verkum sínum umbreytir Sólveig gjarnan hversdagslegum hlutum á fínlegan og næman hátt, þannig að úr verða ljóðrænir skúltúrar, verk sem fá okkur til að endurhugsa hvernig við skynjum og skiljum umhverfi okkar og tilveru. Sólveig Aðalsteinsdóttir hlaut nýverið Gerðarverðlaunin, verðskuldaða viðurkenningu fyrir ríkulegt framlag sitt til höggmyndalistar, og hún er gestur Víðsjár í svipmynd dagsins.
    48 min
  • Tónfölsunarverkstæðið, BSÍ, Óresteia/rýni og Huldukonan/rýni
    Á sunnudag tekur svokallað Tónfölsunarverkstæði yfir Salinn í Kópavogi. Á verkstæðinu starfar hópur ungs tónlistarfólks sem hefur sérhæft sig í svokölluðum sögulegum spuna, en hópurinn býður áheyrendum upp á tónlist af fjölbreyttu tagi og stíl, en af óljósum uppruna. Við lítum inn á Tónfölsunarverkstæðið og forvitnumst nánar um málið. Við höldum líka áfram með bókarýnina, að þessu sinni rýnir Soffía Auður Birgisdóttir í skáldsögu Fríðu Ísberg, Huldukonuna. Katla Ársælsdóttir fjallar um hina umtöluðu Óristeiu, í leikstjórn Benedicts Andrews, sem frumsýnd var í Þjóðleikhúsinu um jólin og við förum á flakk í dag með Henný Hafsteinsdóttur minjaverði Reykjavíkur. Að þessu sinni hittum við Henný framan við byggingu sem eitt sinn var mikil umferðamiðstöð og hálfgert móttökuhúsnæði borgarinnar fyrir ferðamenn. Þetta er að sjálfsögðu BSÍ, sem Gunnar Hansson hannaði um miðja síðustu öld.
    50 min
  • Smekkleysa og Laurie Anderson, Gunnhildur Þórðardóttir og Brúðubíllinn/rýni
    Heimsókn Laurie Anderson til Íslands markar lok viðamikillar sýningar á verkum Steinu Vasulka í Listasöfnunum í bænum, en líka upphaf afmælisárs Smekkleysu, sem fagnar í ár 40 ára tilveru sinni. Ásmundur Jónsson, eða Ási í Smekkleysu, lítur við í hljóðstofu, til að rifja stuttlega upp fyrir okkur tilurð Smekkleysu og segja okkur af goðsögninni Laurie Anderson.
    Trausti Ólafsson rýnir í nýja sýningu Brúðubílsins sem frumsýnd var í Tjarnarbíó um jólin, í leikstjórn þeirra Harðar Bent Steffensen og Lárusar Blöndal. En við hefjum þáttinn á því að fara úr húsi og hitta Gunnhildi Þórðardóttur, myndlistarkonu og skáld. Gunnhildur opnaði sýninguna Kerfi í Gallerí Göngum í desember og gaf einnig nýverið út ljóðabók sem kallast Vetrarmyrkur.
    53 min
  • Drífa Viðar
    Í Víðsjá dagsins rifjum við upp þátt frá því í mars á þessu ári, þar sem við fjölluðum um myndlistarkonuna, rithöfundinn og gagnrýnandann Drífu Viðar. Þá var verið að leggja lokahönd á stóra og veglega bók um Drífu, bók sem nú hefur komið út og sem er tilnefnd til Fjöruverðlauna í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis. Þær Elísabet Gunnarsdóttir, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Auður Aðalsteinsdóttir eru ritstjórar bókarinnar og þær eru allar viðmælendur í þættinum, auk þess sem leikin er tónlist og rifjað upp gamalt efni úr safni Ríkisútvarpsins.
    52 min
  • Jólalag Ríkisútvarpsins 2025, Leikárið 2025, Ósmann/rýni, Þyngsta frumefnið/rýni,
    Hreiðar Ingi Þorsteinsson er höfundur Jólalags Ríkisútvarpsins árið 2025. Lagið samdi hann við gamla þjóðvísu, Kerling heitir Grýla, sem birtist án tilgreinds höfundar í Stafrófskveri handa börnum, útgefnu á Akureyri, árið 1873. Hreiðar Ingi er jafnframt stjórnandi kammerkórsins Huldar, sem flytur lagið, en Huldur er óvenjulegur kór sem frumflutt hefur fjölda íslenskra kórverka á skammri ævi sinni. Hreiðar Ingi leit við í hljóðstofu fyrir frumflutninginn.
    Gauti Kristmannsson og Soffía Auður Birgisdóttir rýna síðustu tvær bækurnar fyrir jól, Ósmann Joachims Schmidt og Þyngsta frumefni Jóns Kalmans, en við eigum þó eftir að heyra fleiri umfjallanir um bækur eftir áramót, enda jólabókaflóðið langt í frá uppurið.
    En við byrjum á því að gera upp leikárið, með Trausta Ólafssyni.
    47 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners