Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Hörður í Gerðarsafni, Dúkkuverksmiðjan, Barn náttúrunnar
    Hörður Ágústsson er lykilpersóna í íslenskri menningarsögu. Hann var í framvarðarsveit myndlistar á síðustu öld, leiðandi rödd módernismans og lykilmaður í þróun abstraktsins hér á landi. Hörður var einnig mikilvirkur fræðimaður á sviði íslenskrar húsagerðalistar og brautryðjandi í bókahönnun og auglýsingagerð. „Í mér eru arkitekt og ljóðskáld, og þeir eru sífellt að rífast,“ sagði hann eitt sinn, en á nýrri sýningu um listamanninn í Gerðarsafni er fókusinn settur á arkitektinn Hörð, og dregin fram verk sem sýna fyrst og fremst nálgun hans á form og litafræði. Sýningarstjórar eru þau Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns og grafísku hönnuðurnir Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir. VIð hittum þau á safninu í þætti dagsins.
    Einnig rýnir Gauti Kristmannsson í Dúkkuverksmiðjuna eftir Júlíu Margréti Einarsdóttur og við þjófstörtum Aldrei las ég Laxness bókaklúbbinum.
    56 min
  • Á milli mála í Skáldu, Sumé- fyrsta grænlenska heimildamyndin, Minnisblöð veiðimanns /rýni
    Við heimsækjum bókabúðina Skáldu þar sem útgáfu nýs bókverks var fagnað um síðustu helgi. Bókverkið kallast Á milli mála: fiður, fingur, fálmarar og höfundar eru þær Agnes Ársælsdóttir og Anna Andrea Winther. Bókin er hluti af listrannsókn sem hófst með kexi fyrir bæði hunda og menn. Einn hluti verksins voru keramíkskúlptúrar sem settir voru upp við Tjörnina í Reykjavík í tengslum við Listahátíð 2024. Víðsjá ræddi við þær um skúlptúrana á sínum tíma þar sem þær sögðust vera dáldið hræddar um, svona í ljósi listasögunnar við Tjörnina. Og það vildi einmitt til að í miðju samtali sáum við unga drengi reyna að stela hluta af verkinu, en það er sennilega í eina skiptið sem listrán hefur átt sér stað í beinni útsendingu á Rás1. Við rifjum ránið upp í þætti dagsins og heyrum af nýju bókinni.
    Einnig rifjum við að gefnu tilefni upp umfjöllun um fyrstu grænlensku heimildamyndina, Sumé-The sound of Revolution og Gauti Kritsmannsson rýnir í Minnisblöð veiðimanns eftir Túrgenev.
    55 min
  • Íslensku bókmenntaverðlaunin 2025
    Víðsjá dagsins er tileinkuð Íslensku bókmenntaverðlaunum sem afhent verða á Bessastöðum í kvöld. Við heyrum brot úr viðtölum við höfunda sem tilnefndir eru í flokki skáldverka, þau Eirík Jónsson, Sigrúnu Pálsdóttir, Þórdísi Helgadóttir, Hauk Már Helgason og Jón Kalman Stefánsson
    55 min
  • Jötungíma kveður, Gárur og Garður-Paradísarfuglar ÍD/rýni
    Um helgina frumsýnir sviðslistahópurinn Díó leiksýninguna Jötungíma kveður í Turninum í Elliðaárstöð. Hugmyndin að verkinu kom til Aðalbjargar Árnadóttur á gönguferð á Laugarnestanga, en þá sá hún allt í einu manninn sinn, Hannes Óla, fyrir sér í hlutverki sjarmerandi risasvepps að kveða minningarorð um mannkynið. Við hittum þau hjónin í þætti dagsins, en hugum líka að sviðslistum á öðrum vettvangi með rýni Trausta Ólafssonar í nýjar sýningar Íslenska dansflokksins, Garðinn og Paradísarfuglinn. Tómas Ævar heldur svo í Norræna húsið til að ræða við Ásthildi Jónsdóttur, sýningarstjórann á bak við Gárur: umbreytingar á Norðurslóðum.
    52 min
  • Katti Frederikssen um Grænland, Tilboð mánaðarsins, Ekki hugmynd/rýni
    „Við höfum alltaf horft á Dani sem nýlenduherra en okkur hefur alltaf verið kennt að Danir séu góðir nýlenduherrar. Og sumir trúa því enn,“ segir Katti Fredrikssen bókaútgefandi, skáld og fyrrverandi menningarmálaráðherra Grænlands. Katti er málfræðingur að mennt og hefur um árabil verið ötul talskona grænlenskrar tungu. Víðsjá hitti Katti í Norræna húsinu og ræddi við hana um upphaf ástríðunnar fyrir tungumálinu og um áhrif stjórnmálahræringa síðustu missera á Inúita.
    Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar fer fram viðburður í Tjarnarbíói sem kallast Tilboð mánaðarins. Þetta er leiklestrarröð þar sem vel valdir leikarar flytja æfða leiklestra en listrænir stjórnendur eru þær Anna María Tómasdóttir og Gígja Hilmarsdóttir. Þær líta í hljóðstofu.
    Katla Ársælsdóttir rýnir í leikverkið Ekki hugmynd, sem Gaflaraleikhúsið sýnir nú á fjölum Borgarleikhússins.
    53 min
  • Á. Birna í BERG, Myrkir/rýni, Fröken Dúlla/rýni og Sölvi Kolbeins
    „Ég kalla þessi stóru leirker stundum bara táraglös, þau minna á stundaglös, en telja tár og tengjast okkar innri sjó, okkar innri sjávarföllum,“ segir Á. Birna Björnsdóttir um einkasýninguna Þegar ég lít upp hefur tunglið breytt um lögun, sem opnaði nýverið í gallerí Berg við Klapparstíg. Við lítum við í Berg Contemporary í Víðsjá dagsins. Sölvi Kolbeinsson lítur einnig við í hljóðstofu og segir frá einu lagi af nýju plötunni, Collage. Við heyrum líka rýni Tuma Árnasonar í Myrka músíkdaga og Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um Fröken Dúllu Kristínar Svövu Tómasdóttur.
    53 min
  • Svipmynd af þorpi: Eyrarbakki
    Hjónin Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson hlutu menningarviðurkenningu Árborgar árið 2025 fyrir áratuga starf í þágu menningarlífsins í sveitarfélaginu. Þau gáfu nýverið út bók um horfin hús á Eyrarbakka, en af þeim 300 húsum sem þar stóðu á blómaskeiði þessa sögufræga verslunarstaðar standa aðeins 120 þar enn í dag. Við sækjum menningarhjónin Ingu Láru og Magnús Karel heim í Víðsjá dagsins.
    53 min
  • Gyrðir í Glerhúsinu, Hanna Dís í Hakk og Þegar ég sé þig/rýni
    Það kom ýmsum á óvart þegar Gyrðir Elíasson tók sig til og opnaði myndlistarsýningu í Garði á Reykjanesi fyrir tæpum tveimur árum og sýndi þar hvorki meira né minna en 1200 myndverk. Gyrðir segir Reykjanesið hafa kynnt undir myndlistarmanninum í sér, þótt hann hafi raunar lengi í sér blundað. Nýverið opnaði hann aðra einkasýningu sína, sem hann nefnir Í morgunbirtu, í Glerhúsinu við Vesturgötu og þangað höldum við í þætti dagsins.
    Trausti Ólafsson leikhúsrýnir verður einnig með okkur í dag, að þessu sinni rýnir hann í leikverkið Þegar ég sé þig, sé ég mig, nýtt íslenskt samsköpunarverk sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi. En við hefjum þáttinn á því að lita inn í Gallerý Hakk við Óðinsgötu 1 þar sem hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead opnaði nýja sýningu í síðustu viku. Þar sýnir Hanna Dís ólíka muni sem dansa á mörkum hönnunar og myndlistar en sem eiga það sameiginlegt að nýta strá sem efnivið.
    53 min
  • Hús sem hverfa, Rubin Pollock, Ormstunga/rýni
    Síðastliðnar vikur hefur Víðsjá ferðast um borgarlandslagið með Henný Hafsteinsdóttur minjaverði Reykjavíkur og byggingar sem gætu verið á leið í niðurrif. Í dag hittum við Henny á miklum uppbyggingarreit, Borgartúni 5, sem í daglegu tali er kallaður Vegagerðarreiturinn. Þarna er að finna lágreistar iðnaðarbyggingar frá miðri síðustu öld sem eru meðal fárra minja um liðna tíma innan um háreistar nýbyggingarnar í Borgartúninu.
    Rubin Pollock sem getið hefur sér gott orð sem gítarleikari rokkhljómsveitarinnar Kaleo sendi frá sér plötuna Tongue Tied. Á plötunni er þó ekki finna rokktónlist heldur safn ósunginna laga, sem blanda saman tónlistarstefnum á afar lífrænan hátt. Við heyrum í Rubin Pollock í þættinum.
    Katla Ársælsdóttir rýnir í Ormstungu, sem frumsýnd var í síðustu viku.
    52 min
  • Myrkir músíkdagar, Blómstrandi framtíð og Mergur/rýni
    Í dag hefjast Myrkir músíkdagar, sem standa yfir fram á sunnudag. Við lítum við á æfingu fyrir upphafstónleika Myrkra hér í upphafi þáttar og hittum fyrir þær Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Báru Gísladóttur, sem báðar eiga ný hljómsveitarverk sem frumflutt verða á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg í kvöld. Katla Ársælsdóttir rýnir í Merg, nýtt íslenskt tón og leikverk eftir Katrínu Lóu Hafsteinsdóttur, og við lítum inn í Hafnarhús þar sem Katrín Elvarsdóttir opnaði sýninguna Blómstrandi framtíð um liðna helgi. Þar mætast heimar ólíkra plantna sem allar hafa ríkulega sögu að segja.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners