Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Mynd&hand skólasaga, Hildigunnur Sverrisdóttir pistill, Blái pardusinn hljóðbók/rýni
    Saga myndlistar og handíðaskólans, sögur inni í sögum og utangarðssaga fólks með geðræna kvilla, - sögur af ýmsum gerðum einkenna viðfangsefni Víðsjár dagsins. Við kynnum okkur líka jóladagatal Árnastofnunar, sem einmitt inniheldur ýmsa sögulega mola, og minnumst stuttlega hins merkilega myndlistarmanns, Kristjáns Guðmundssonar, sem lést nýverið og markaði mikilvæg spor í sögu íslenskrar myndlistar. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, færir okkur í dag sinn annan pistil í nýrri pistlaröð um samhengi geðheilbrigðis og arkitektúrs og Gauti Kristmannsson rýnir nýútkomna skáldsögu Sigrúnar Pálsdóttur, Blái pardusinn: hljóðbók. Í síðari hluta þáttar tökum við á móti sagnfræðingnum Davíð Ólafssyni, sem er annar höfundur nýrrar bókar um 60 ára skólasögu Myndlistar og handíðaskólans.
    49 min
  • Allt frá hatti oní skó, Hvít hljóð og Allt sem við hefðum getað orðið/rýni
    Í gallerí SÍM við Hafnarstræti 16 stendur nú yfir samsýning myndlistarkonunnar Kristínar Elvu Rögnvaldsdóttur og ljóðskáldsins Guðbjargar Guðmundsdóttur, Hvít hljóð og nokkur Ílát. Þar fá ílát sem alla jafna er hent út á heimilum landsmanna óvænt mikilvægi og teiknaðar tilfinningaveirur stökkva fram úr ljóði sem skrifað var á vökudeildinni. Kvennasagan, og götin í henni, spilar líka stórt hlutverk í nýrri skáldsögu Sifjar Sigmarsdóttur, sem Gauti Kristmannsson rýnir í í þætti dagsins, en við hefjum þáttinn með því að bjóða annan höfund velkominn í hljóðstofu. Einar Már Guðmundsson sendi nýverið frá sér skáldsöguna Allt frá hatti oní skó. Sögusviðið er níundi áratugurinn á meðal Íslendinga í Kaupmannahöfn þar sem ungur maður er að verða að skáldi og rithöfundi í heimi þar sem er ofboðsleg umferð en fá umferðarskilti - svo vísað sé til orða skáldsins.
    50 min
  • Piparmeyjar, Wadada Leo Smith, jólakettlingar í Eyjafirði og Þegar mamma mín dó/rýni
    Nýlega lék jazzgoðsögnin Wadada Leo Smith á stappfullum tónleikum í Iðnó, í lok sinnar síðustu tónleikaferðar um Evrópu eftir 60 ára feril. Wadada hefur sótt Ísland heim í nígang og haft mikil áhrif á íslensku jazzsenuna og Tumi Árnason ætlar að segja okkur af því í þætti dagsins. Við hringjum líka norður í Eyjafjörð, því þar tekur myndlistarkonan Aðalheiður Eysteinsdóttir vel á móti fólki á aðventunni og eitthvað kemur jólakötturinn þar við sögu. Auk þess fjallar Soffía Auður Birgisdóttir um nýútkomna bók Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur, Þegar mamma mín dó, og Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir, sagnfræðingur, kemur í hljóðstofu, en hún sendi fyrir skömmu frá sér bókina Piparmeyjar, - Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi.
    48 min
  • Sigurður Ámundason / Svipmynd
    „Listamenn eru eins og prestar,” segir Sigurður Ámundason myndlistarmaður, sem fylgir Víðsjá út í Gróttuvita í dag. „Við fjöllum um mannlega breiskleika, samfélagið og tölum um tilfinningar. Munurinn á myndlistarmönnum og prestum er að myndlistarmenn predika ekki. Við felum alltaf það sem við erum að reyna að segja.”
    Sigurður sýnir um þessar mundir í vitanum og vitavarðahúsinu. Sýningin sem kallast Úthverfavirki er sú fimmta í sýningarröð LIstasafns ASÍ þar sem listamaður er valin til að sýna á tveimur stöðum á landinu. Við ræðum aðferðir hans í myndlistinni og verkin í Gróttu þar sem klassísk viðfangsefni listasögunnar birtast í samspili manns og náttúru. Sigurður hefur mikinn áhuga á þessu samspili segist stöðugt reyna að túlka samtímann í gegnum þetta samspil. Hann vill vera í núinu og forðast nostalgíuþ. Einnig ræðum við samskiptaerfiðleika mannskepnunnar en Sigurður segir mannleg samskipti vera sitt leiðarljós í myndlistinni.
    52 min
  • Úlfar Þormóðsson, Rán Flygenring, Arkitektúr og geðheilbrigði
    Úlfar Þormóðsson kemur til okkar með nýja bók. Bókina sendi hann frá sér fyrir stuttu en til þess þurfti hann að leita til annars forlags en því sem vanalega hefur verið með hans bækur á sínum snærum. Í bókinni fjallar Úlfar um endurkomu stóra málverkafölsunarmálsins inn í íslenska umræðu; segir frá viðbrögðum sínum og tilfinningum en einnig ýmsu fleiru og sumu átakanlegu.
    Blaka er nýjasta hugarsmíð Ránar Flygenring, og er mögulega hennar hryllilegasta bók hingað til, þó hún hafi alls ekkert átt að vera hryllingssaga. Rán er auðvitað einn af okkar fremstu höfundum, hefur skrifað og teiknað bækur og verk af ólíkum toga. Síðasta bók hennar, Tjörnin, hlaut fjölmörg verðlaun og fyrir bókina þar á undan, Eldgos, fékk hún Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Rán verður gestur okkar í dag.
    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og fyrrum deildarforseti arkitektúrs við Listaháskólann, var með fasta pistla hér í Víðsjá fyrir 2 árum síðan, og nú er hún mætt aftur til leiks með fjögurra pistla seríu. Nú veltir hún fyrir sér samhengi geðheilbrigðis og arkitektúrs,
    53 min
  • Helga Páley Friðþjófsdóttir í Þulu, Tríó Sunnu Gunnlaugs, Þú sem ert á jörðu/rýni
    Við höldum í Gallerý Þulu á sýninguna Í hringiðu alls, þar sem Helga Páley Friðþjófsdóttir sýnir ný málverk. Málverkið hefur lengi verið kjarninn í hennar listrænu nálgun, þar sem óhlutbundinn veruleiki verður til í gegnum marglaga ferli þar sem spuni, innsæi og endurtekning leika stóran þátt. En líka tíminn og auðvitað efinn.
    Sunna Gunnlaugsdóttir jazzpíanisti verður einnig gestur okkar í dag en Tríó hennar leikur nýtt efni í Múlanum á miðvikudag. Og Soffía Auður Birgisdóttir rýnir hún í skáldsögu Nínu Ólafsdóttur, Þú sem ert á jörðu.
    50 min
  • Heima Judith Hermann, RDF rýni, myndlistarpistill Rögnu og hafnar.space
    Minna fer fyrir þýddum bókum en íslenskum í jólabókaflóðinu, en við ætlum að bæta úr því í þætti dagsins og fá til okkar einn af okkar færustu þýðendum í hljóðstofu, Elísu Björgu Þorsteinsdóttur. Hún þýddi nýlega skáldsögu Judith Hermann, Heima, en Hermann er einn fremsti höfundur hins þýska bókmenntaheims og mörgum íslenskum lesendum vel kunn.
    Katla Ársælsdóttir fór nýverið á Reykjavík Dance Festival og segir okkur af því í þætti dagsins og Ragna Sigurðardóttir, myndlistarrýnir, fjallar um tvær samsýningar: Skúlptúr skúlptúr performans í Gerðarsafni og sýninguna Safakúr í SIND Gallery. En við hefjum þáttinn á því að hringja í nýtt sýningarrými, listamannareknarýmið hafnar.space, sem staðsett er í hafnarhaus við Tryggvagötu.
    53 min
  • Guðrún Hannesdóttir - svipmynd
    Guðrún Hannesdóttir fæddist þann 18. júní árið 1944 og fagnaði því áttræðisafmæli sínu í fyrra. Hún nam listasögu í Lundi og síðar bókasafnsfræði við Háskóla Íslands, starfaði lengst af sem bókasafnsfræðingur og hafði meðal annars umsjón með bókasafni Myndlistarskólans í Reykjavík. Fyrsta ljóðabók Guðrúnar, Fléttur, kom út árið 2007, og sama ár hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör. Síðan hefur Guðrún gefið út 9 ljóðabækur til viðbótar, og nú í haust kom út hjá Dimmu eigulegt heildarsafn sem hefur að geyma fyrstu tíu ljóðabækur Guðrúnar. Guðrún skipaði sér seint á skáldabekk en segist kannski alltaf hafa hugsað á þá vegu, hún er lítillát en orð hennar vega þungt, skáldskapurinn djúpur og kjarnyrtur, tungutakið meitlað og myndmálið ríkulegt. Í ljóðum hennar birtist undrun og sannfæring um fegurð hins innsta kjarna og heilagleika náttúrunnar. Guðrún Hannesdóttir, skáld, er gestur svipmyndar í dag.
    50 min
  • Jötunsteinn Andra Snæs, Ásmundur Ásmunds í Glerhúsinu og Staðreyndirnar/rýni
    Í Glerhúsinu opnaði nýverið einkasýning Ásmundar Ásmundssonar, sem hann vann í samstarfi við ofurgreindina og myndræn verkfæri hennar. Kveikjan að verkinu er skemmdarverkið á Nord Stream 2 gasleiðslunni í september árið 2022, umfangsmiklu umhverfis og efnahagshryðjuverki sem hefur dvalið í djúpinu og undirvitundinni síðan, en Ásmundur gerir tilraun til að kalla fram með samtali við nútímavölvuna. Andri Snær Magnason er einnig gestur okkar í dag, en hann gaf nýverið út skáldsöguna Jötunstein, hárbeitta ádeilu á hið byggða umhverfi sem fær lesandann til að velta fyrir sér sambandi okkar við arkitektúr. Og meira af bókum því Gréta Sigriður Einarsdóttir rýnir líka í Staðreyndirnar, eftir Hauk Má Helgason, í þætti dagsins.
    57 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners