Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Dularfullar raddir skelja, Frumbyrjur, Booker og arkitektúr og fegurð
    Um helgina opnaði nýtt innsetningarverk Höllu Steinunnar Stefánsdóttur, Af dularfullum röddum skelja, í Náttúrusafni Kópavogs. Tilefnið er að margrómað skeljasafn Jóns Bogasonar er þar nú aftur til sýnis. Við hlustum eftir röddum skelja í Víðsjá dagsins og heyrum líka þrettánda pistil Óskars Arnórssonar um arkitektúr, sem tileinkar þennan síðasta pistil sinn arkitektúr og fegurðinni. En við byrjum á bókmenntum því fyrir viku síðan hreppti Skáldsagan Flesh eftir bresk-ungverska höfundinn David Szalay Booker verðlaunin 2025. Árni Matthíasson segir okkur aðeins af höfundinum og bókinni, en auk þess rýnir Gauti Kristmannsson í nýútkomna skáldsögu Dags Hjartarsonar, Frumbyrjur.
    56 min
  • Ora verksmiðjan, The Selkie Poetry Reading og Flóðreka/rýni
    Reykjavík Dance Festival hófst í gær og stendur yfir fram á sunnudag, með fjölda viðburða. Í kvöld stígur dansdúettinn Beauty and the beast, uppskálduð hljómsveit og lífstíðarsamstarf danshöfundanna Amöndu Apetrea og Höllu Ólafsdóttur, á svið Iðnó með sýningu sem þær nefna The Selkie Poetry Reading, og við tökum á þeim stöllum púlsinn. Við heyrum einnig rýni í dans í þætti dagsins, Trausti Ólafsson segir frá sinni upplifun af verkinu Flóðreka, sem ÍDF, Aðalheiður Halldórsdóttir og Jónsi úr Sigurrós frumsýndu um liðna helgi. Víðsjá hefur undanfarnar vikur ferðast með Henný Hafsteinsdóttur, minjaverði Reykjavíkur, um borgarlandslagið til að skoða áhugaverð hús sem ætti mögulega að vernda, og í dag ræða þær Halla um Ora verksmiðjuna í Kársnesi.
    51 min
  • Ingi Garðar Erlendsson / Svipmynd
    Ingi Garðar Erlendsson básúnuleikari, tónskáld, kennari og Reykvíkingur ársins, brennur fyrir tónlistarkennslu. Sjálfum var honum rétt básúna í tónlistarskóla Keflavíkur þegar hann var tíu ára, hljóðfæri sem hefur fylgt honum síðan. Hann lærði kennslu, tónsmíðar og hljóðfræði í Reykjavík og Den Haag, og hljóðfæraviðgerðir í Wales. Ingi Garðar stofnaði ásamt félögum sínum Slátur, samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík, og hefur alla tíð verið hluti af hinni tilraunakenndu jaðarsenu þó hann hafi komið mjög víða við í íslensku tónlistarlífi, bæði sem höfundur og útsetjari. Nýverið hlaut hann íslensku menntaverðlaunin, fyrir afar árangursríkt starf með skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar, en sem stjórnandi hljómsveitarinnar hefur hann komið nemendum sínum í allskyns ólík verkefni tengd hljómsveitum og leikhúsum. Í Víðsjá dagsins segir Ingi Garðar frá sinni eigin leið í tónlistinni og óbifandi trú á skapandi mætti og samfélagslegu afli hennar.
    52 min
  • Maðurinn í skiltinu, arkitektúr og kapítalismi, Ottoman tónlistarhefð
    Við hefjum þáttinn á því að hringja til Danmerkur og kynna okkur bók sem var að koma út hjá Angústúru, skáldsöguna Maðurinn í skiltinu eftir chileska rithöfundinn María Jose Ferrada. Jón Hallur Stefánsson þýddi og segir frá höfundi og verki.
    Einnig fjallar Óskar Arnórsson fjallar um tengsl arkitektúrs og kapítalisma og Ásgeir Ásgeirsson segir frá heimi tyrkneskrar ottóman tónlistar.
    52 min
  • Frá ómi til hljóms, Land til sölu og Hamlet/rýni
    Frá ómi til hljóms kallast heimildamynd eftir Ásdísi Thoroddsen sem nú er í sýningu í Bíó Paradís. Tónlistin á dögum Sveins Þórarinssonar amtskrifara er undirtitill kvikmyndarinnar en hún fjallar um þá miklu byltingu sem átti sér stað í tónlistarlífi landsins á 19.öldinni.
    Katla Ársælsdóttir rýnir í leikgerð Kolfinnu Nikulásdóttur á Hamlet Shakespears, sem frumsýnd var nýverið á litla sviði Borgarleikhússins. En við byrjum á myndlist, því um liðna helgi opnaði í Gallery Porti einkasýning Þórðar Hans Baldurssonar, Land til sölu, sem samanstendur af flosmyndum af íslensku landslagi. Fyrirmyndir verkanna eru fundnar ljósmyndir ferðamanna sem Þórður Hans sótti á internetinu. Við litum við í galleríinu fyrir helgi.
    52 min
  • Flóðreka, Tíðir og myndlistarpistill Rögnu Sigurðardóttur
    Á laugardag frumsýnir Íslenski dansflokkurinn glænýtt verk, Flóðreka, á Nýja sviði Borgarleikhússins. Flóðreka sprettur upp úr samstarfi danshöfundarins Aðalheiðar Halldórsdóttur, Jónsa úr Sigur Rós og ÍD, en verkið er innblásið af rómaðri sýningu Jónsa, Flóði, sem sýnd var í Listasafni Reykjavíkur á síðasta ári. Við stígum inn í heim náttúruaflanna með danshöfundinum, Aðalheiði Halldórsdóttur, í þætti dagsins. Myndlistarpistill Rögnu Sigurðardóttur tengist líka náttúruöflunum, en að þessu sinni fjallar hún um tvær sýningar á Sequences, samsýningu í Norræna húsinu og sýningu Írisar Maríu Leifsdóttur í Listasal Mosfellsbæjar, Veðruð verk, Við kynnum okkur líka nýtt útilistaverk við Gömlu höfnina í Reykjavík, sem valið var úr fjölda innsendra tillaga í samkeppni á vegum Faxaflóahafna. Verkið heitir Tíðir og er eftir myndlistarmanninn Huldu Rós Guðnadóttur, fornleifafræðinginn Gísla Pálsson og arkitektinn Hildigunni Sverrisdóttur.
    52 min
  • Sóley Stefánsdóttir - svipmynd
    Þegar Sóley Stefánsdóttir þreytist á því að semja á píanóið, með sína jöfnu stillingu og fyrirframgefnu ramma, tekur hún upp harmónikkuna, sem andar inn og út og krefst þess að hugsað sé í hendingum. Hún hefur á eftirtektarverðum ferli flysjað af sér íhaldsamari hluta tónlistaruppeldisins en nýtt sér þá gagnlegri til að draga fram einstaka rödd, sitt eigið djúphugsaða tónlistartungumál sem segir heildstæðar sögur. Árið 2021 var Sóley tilnefnd til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs fyrir fjórðu breiðskífu sína, Mother melancholia. Platan er sveipuð feminískri ádeilu á feðraveldið, og Sóley hefur í verkum sínum verið óhrædd við að nálgast slík og skyld málefni. Hún var lengi vel formaður Kíton, félags kvenna í tónlist, og hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði tónlistar, allt frá klassískum verkum til popptónlistar, tónlist fyrir kvikmyndir og leikhús og við gerð glænýrrar hljóðfæralínu fyrir börn í samstarfi við hönnunarteymið ÞYKJÓ. Sóley Stefánsdóttir er nýskipaður staðarlistamaður Salarins í Kópavogi og gestur svipmyndar í Víðsjá dagsins.
    56 min
  • Syng mín sál, Dansgenið og Mín er hefndin/rýni
    Tónlistarfræðingurinn Árni Heimir Ingólfsson lítur við í hljóðstofu til að segja okkur af nýútkominni bók, Syng mín sál, sem inniheldur 40 lög úr íslenskum handritunum. Lögin hafa mörg hver aldrei verið gefin út áður og önnur eru í nýjum útsetningum eða raddsetningum sem byggja á áratuga rannsóknarvinnu Árna Heimis.
    Dansverkstæðið við Hjarðarhaga er heimili dansins á Íslandi og hjarta sjálfstæðu danssenunnar. Í vetur verður þar boðið upp á danssýningar í hverjum mánuði með því markmiði að efla danslistina og setja samtímadans á kortið í menningarlífi borgarinnar. Við hittum Valgerði Rúnarsdóttur á Dansverkstæðinu, en hún frumsýnir Dansgenið, fyrstu sýningu vetrarins, annað kvöld. Gréta Sigríður Einarsdóttir verður einnig með okkur í dag, og rýnir í nýjustu skáldsögu Nönnu Rögnvaldsdóttur, Mín er hefndin.
    55 min
  • Nýir félagsbústaðir, Allt sem við hefðum getað orðið og arkitektúr og heilsa
    Á dögunum kom út skáldsagan Allt sem við hefðum getað orðið, eftir rithöfundinn og blaðakonuna Sif Sigmarsdóttur. Aðalpersónur sögunnar eru þrjár konur af ólíkri kynslóð sem hver um sig horfist í augu við eigið val og drauma í lífinu. Sagan er að nokkru byggð á ævi Annie Leifs, fyrstu eiginkonu Jóns Leifs, en Sif kemur í hljóðstofu og segir okkur nánar af bókinni. Þess utan verðum við með hugann við arkitektúr í þætti dagsins. Við heimsækjum nýja félagsbústaði við Háteigsveg og ræðum þar við Arnhildi Pálmadóttur, arkitekt, en húsið er tilnefnt til hönnunarverðlauna Íslands sem verða afhent á fimmtudag. Óskar Arnórsson flytur auk þess sinn ellefta pistil um arkitektúr og fjallar að þessu sinni um arkitektúr og heilsu.
    47 min
  • Marta, Marta, Kristín píslarskáld og tónlistarpistill Tuma
    Í tilefni af degi hinna dauðu og hrekkjavöku framundan opnar Víðsjá glugga inn í fortíðina og hugarheim konu sem steig árið 1898 inn í nýstofnaðan holdsveikraspítala í Laugarnesi og orti þar dýrmætan kveðskap við lok langrar sjúkdómsgöngu. Kvæðasafn Kristínar Guðmundsdóttur, píslarskálds, er eins og smámynd af Holdsveikraspítalanum, en gefur líka ómetanlega sýn inn í hugðarefni og lífssýn Kristínar. Guðrún Ingólfsdóttir, bókmenntafræðingur, segir okkur frá henni í þætti dagsins. Tumi Árnason rýnir í sínum hálfsmánaðarlega tónlistarpistli í nýja plötu Ómars Guðjónssonar, en við hefjum þáttinn á því að kynna okkur bók sem var að hreppa bókmenntaverðlaun Færeyja, skáldsöguna Marta, Marta, eftir Marjun Syderbø Kjelnæs. Bókin kom nýverið út hjá Uglu forlagi í þýðingu Hjálmars Waag Árnasonar, sem lítur við í hljóðstofu.
    50 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,801 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners