Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Ertu búinn að vera að reyna að ná í mig, Dublin Fringe, Ráðskonur
    Ertu búinn að vera að reyna að ná í mig kallast ný ópera eftir Guðmund Stein Gunnarsson sem verður sýnd á Óperudögum. Leikstjóri er Sigríður Ásta Olgeirsdóttir en Heiða Árnadóttir fer með aðal og eina hlutverkið, en hún leikur margar persónur. Allar persónur verksins eru einar og einmana og segist Guðmundur reyna að kanna í verkinu hvort að samskipti séu yfir höfuð möguleg. Guðmundur Steinn og Heiða verða gestir okkar í dag.
    Katla Ársælsdóttir segir frá Dublin Finge leiklistarhátíðinni og Dalrún Kaldakvísl flytur pistil um ráðskonur fyrri alda.
    52 min
  • Vendipunktur í Stykkishólmi, Ólöf Arnalds, Skammarþríhyrningurinn/rýni
    Ólöf Arnalds verður gestur okkar í dag. Tilefnið er væntanleg plata, hennar fimmta breiðskífa, sem hefur fengið titilinn Spíra. Það er rúmur áratugur frá því að ólöf gaf síðast út plötu, en fyrir því eru ýmsar ástæður.
    Katla Ársælsdóttir rýnir í Skammarþríhyrninginn, verk sem leikhópurinn Stertabenda frumsýndi í Borgarleikhúsinu í síðustu viku.
    En við hefjum þáttinn á því að líta til veðurs og heyra af sýningunni Vendipunktur sem stendur nú yfir í Vatnasafninu á Stykkishólmi.
    54 min
  • Hulda Hákon Á Landsenda, Þetta er gjöf, Krasznahorkai, Ragna Sigurðar rýni
    Í Gallerý Kontór á Hverfisgötu 16a sýnir Hulda Hákon ný verk. Á Landsenda kallar hún sýninguna, en þar er að finna lágmyndir þar sem sælir og makindalegir ísbirnir eru í aðalhlutverki, en einnig örnefni, sjómennska, kortagerð, ævintýri og almennur grallaraskapur. Víðsjá hitti Huldu við verkin, þar sem hún sagðist meðal annars vera orðin svo þreytt á öllum hörmungum heimsins, að hana hafi langað til að gera bjarta og fallega sýningu. Það er meira en óhætt að segja að henni hafi tekist áætlunarverkið. Meira um það í þætti dagsins.
    Við heyrum einnig myndlistarrýni Rögnu Sigurðardóttur, rýni í leikverkið Þetta er gjöf í Þjóðleikhúsinu og við heyrum einnig í Einari Má Hjartarsyni, sem þýddi árið 2023 bók nýja nóbelskáldins, László Krasznahorkai, nóvelluna Síðasti úlfurinn.
    51 min
  • Vigdís Grímsdóttir - svipmynd
    Þegar Vigdís Grímsdóttir varð sjötug var blásið til fögnuðar henni til heiðurs og að óvörum. Þar stigu fram margar góðar skáldkonur og héldu ræður og sungu, og í framhaldinu var bæði haldið málþing og myndlistarsýning. Nú tveimur árum síðar er enn verið að fagna, og full ástæða til. Hausthefti Tímarits Máls og menningar er helgað Vigdísi spjaldanna á milli og í kvöld verður útgáfuboð Vigdísarheftisins haldið í Gunnarshúsi. Víðsjá dagsins er forsmekkur að því teiti, líka tileinkaður þessari grallaralegu galdrakonu og góða rithöfundi, Vigdísi Grímsdóttur.
    50 min
  • Plöntutónlist, forntónlistarhátíðin Kona og Með minnið á heilanum/rýni
    Á áttunda áratugnum komu fram kenningar um vitsmuni plantna og kosti þess að spila fyrir þær tónlist til að auka vöxt. Hljómplata Mort Garson, Plantasia frá 1976, er í takt við þessar pælingar, en hún verður flutt á tónleikum í Garðheimum á laugardag, á tónlistarhátíðinni State of the Art. Víðsjá hitti aðstandendur hátíðarinnar í Garðheimum, þá Bjarna Frímann, Berg, Magnús Jóhann og Sverri Pál. Einnig kynnum við okkur Forntónlistarhátíðina Kona sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk heldur nú í fjórða sinn, en þar er flutt tónlist eftir konur sem brutust út úr hefðbundnum kynhlutverkum síns tíma til þess að sinna listinni. Og Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Með minnið á heilanum eftir Þórhildi Ólafsdóttur.
    51 min
  • Skjálfti Finnboga Péturssonar, Flamenco feðgar og Hans og Gréta/rýni
    Einkasýning Finnboga Péturssonar á haustsýningu Listasafns Árnesinga heitir Skjálfti, og samanstendur af tveimur innsetningum; annars vegar risastórum spegli, sem er ýmsum eiginleikum gæddur, og svo eldrauðu duftkeri, sem markar syðri enda línu sem sker landið skáhallt, eins og flekamótin undir landinu. Vísanirnar í jarðfræði eru fleiri, og ekki óvanalegar fyrir verk Finnboga, en við bætist andlegri vídd þar sem raunheimar og handanheimar skarast og renna saman. Finnbogi segir okkur nánar af tilurð verksins í Víðsjá dagsins. Við lítum líka inn á tónlistaræfingu feðganna Símons H. Ívars­sonar og Ívars Símonar­sonar, sem flytja flamenco gítartónlist í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar annað kvöld og heyrum rýni Trausta Ólafssonar í uppsetningu Kammeróperunnar á ævintýraóperunni Hans og Grétu í Tjarnarbíói,
    51 min
  • Hildur Hákonar og birkitré, vesturfarar við Winnipegvatn og Jónsmessunæturdraumur/rýni
    Hildur Sigurbergsdóttir hefur rannsakað sögulegar heimildir um samskipti Íslendinga sem fluttu til Nýja-Íslands fyrir aldamótin 1900 við frumbyggja sem þar bjuggu fyrir. Hildur er meðal fyrirlesara á málþingi um vesturfara sem haldið verður í Eddu á morgun, í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá stofnun Nýja-Íslands í Kanada og kemur í hljóðstofu. Hildur Hákonardóttir er ein af okkar fremstu myndlistarkonum og á einnig að baki ritferil þar sem náttúran kemur mikið við sögu. Um helgina gefur hún út bók sem hún kallar Ef ég væri birkitré, þar sem hún vefur saman persónulegum hugleiðingum við sögulegar og hagnýtar upplýsingar um birkið, tré sem hefur mótað landið og menningu okkar frá landnámi. Katla Ársælsdóttir fór á frumsýningu í Tjarnarbíói um síðustu helgi, á Jónsmessunæturdraumi Shakespeare í leikstjórn Maríu Ellingsen og Magnúsar Thorlacius og rýnir í verkið í þætti dagsins.
    54 min
  • Steinunn Þórarinsdóttir / svipmynd
    Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari er gestur í Svipmynd Víðsjár í dag.
    Eftir menntaskóla flutti Steinunn til Englands þar sem hún nam myndlist og kynntist leirnum, sem leiddi hana yfir í þrívíddina. Frá Englandi hélt hún til Ítalíu þar sem hún sökkti sér í klassíkina auk þess að læra að elda hið fullkomna spagettí Bolognese.
    Steinunn hélt sína fyrstu einkasýningu hér á landi 1976, þar sem óræðar verur, sviðsetning og þungir málmar settu tóninn fyrir það sem koma skyldi. Síðan þá hafa mannverur hennar tekið á sig sjálfstætt form og ferðast í ólíkum efnum um gallerí, söfn og almenningsrými. Á löngum ferli hefur Steinunn gefið sig alla að listinni og sýnt víða. Hún vinnur með galleríum í London, Kaupmannahöfn, Toronto og Kaliforníu en opnaði sína fyrstu sýningu hér á landi í tíu ár um liðna helgi í Gallerí Þulu og samhliða gefur Kind út bók um ferilinn.
    53 min
  • Grjótmulningsstöðin á Höfða, arkitektúr og fötlun og Svava Jakobsdóttir
    Næstu vikur ætlum við að ferðast um höfuðborgarsvæðið og skoða byggingar sem eiga samkvæmt skipulagi að hverfa úr borgarlandslaginu. Við heimsækjum þessar byggingar með minjaverði Reykjavíkur, Henný Hafsteinsdóttur, og fáum að heyra af sögu þeirra og samhengi. Leiðangurinn hefst í þætti dagsins, í Grjótmulningsstöðinni á Höfða.
    Óskar Arnórsson, arkitekt, flytur líka pistil undir yfirskriftinni Arkitektúr og fötlun og í tilefni af afmælishátíð til heiðurs Svövu Jakobsdóttur rifjum við upp viðtal við Vigdísi Finnbogadóttur. Þar segir hún frá Svövu, konunni, pólitíkusnum og rithöfundinum, en einnig frá vináttu þeirra, sem hófst í barnæsku.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,824 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners