Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Ljósmyndasýning um tíma og tímaleysi, Shakespeare, myndlist í Árbæjars
    Hvernig á að mála málverk af valdafólki? Við veltum því fyrir okkur að gefnu tilefni, en ný portrett af Obama-hjónunum voru afhjúpuð í vikunni.
    Við heimsækjum Árbæjarsafn þar sem útskriftarnemar úr listaháskólanum hafa dvalið, starfað og rannsakað undanfarnar vikur undir handleiðslu Margrétar Bjöndal, myndlistakonu og kennara. Við hittum Margréti, Berglindi Hreiðarsdóttur, Guðrúnu Sigurðardóttur og Svanhildi Höllu Haraldsdóttur.
    Shakespeare stal öllu steini léttara, segja sumir, við heyrum af nýjustu rannsóknum á því hvað varð leikritaskáldinu að innblæstri.
    Og við lítum við í gallerí i8 þar sem ljósmyndarinn Orri Jónsson opnaði sýningu um nýliðna helgi. Á sýningunni gefur að líta verk sem samanstendur af ljósmyndum sem Orri hefur tekið af fjölskyldu sinni yfir 30 ára tímabil.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Listin í borginni, barnabækur, rússneska byltingin á Íslandi og Flóríd
    Rætt við Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur hönnuð um barnabækur en hún er sýningarstjóri sýningarinnar “Áhrifavaldar æskunnar - barnabækur fyrr og nú“ í Bókasafni Kópavogs.
    Við heimsækjum myndlistarkonuna Þórdísi Erlu Zoega og fáum að heyra af veggteppum sem hún málar á striga en líka á húsveggi.
    Bergþóra Snæbjörnsdóttir les ljóð úr ljóðabók sinni Flórída, sem kom út fyrir jól og var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna.
    Einnig er rætt við Ragnheiði Kristjánsdóttur sagnfræðing um komu rússnesku byltingarinnar til Íslands en Ragnheiður er ein höfunda í nýju Riti, tímariti Hugvísindastofnunar.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Joseph Beuys, Dora Bruder, Þýskt dvergleikhús og Áslaug Agnarsdóttir
    Áslaug Agnarsdóttir þýðandi segir frá verkunum sem breyttu lifi hennar til hins betra
    Rætt við Torfa Tulinius bókmenntafræðing um bók vikunnar, Doru Bruder eftir franska nóbelskáldið Patrick Modiano í þýðingu Sigurðar Pálssonar.
    Svala Arnardóttir flytur pistil frá Berlín um minnsta leikhús Þýskalands.
    Um þessar mundir standa yfir þýskir dagar í Bíó Paradís og meðal þess sem boðið er upp á er heimildamynd um myndlistarmanninn Joseph Beuys. Við kynnum okkur manninn, hittum myndlistarkonuna Rúrí og skoðum myndaalbúm heima hjá Gunnari Kristjánssyni doktor í guðfræði og bókmenntafræði en hann hitti Beuys og heillaðist af honum.
    55 min
  • Ástin, umdeild lög í Póllandi, grasafræðingurinn Goethe og Dora Bruder
    Rætt við Guðmund Hálfdánarson um nýsamþykkt lög í Póllandi sem banna að pólskir þegnar séu bendlaðir við helförina.
    Þóra Ellen Þórhallsdóttir segir frá Goethe og grasafræði hans. Málþing verður haldið um Goethe og margar hliðar á starfi hans um næstu helgi.
    Lesið úr bók vikunnar: Dora Bruder eftir Patrick Modiano.
    Rætt við Elísabetu Jökulsdóttur, Charlottu Bøwing og Laufeyju Elíasdóttur um leikverkið Ahhh sem frumsynt verður á föstudag í Tjarnarbíói.
    55 min
  • María Ramos, Uppruni heimsins á facebook, Patrick Modiano og Vigfús Si
    Franskur kennari mætti nýlega lögræðingum Facebook í réttarsal vegna ritskoðunar samfélagsmiðlarisans. Málið snýst um verkið Uppruna heimsins frá árinu 1886.
    Rætt er við Maríu Ramos hjá útgáfufélaginu Partus. María segir okkur frá bókinni og les úr henni.
    Gauti Kristmannsson rýnir í Doru Bruder eftir franska rithöfundinn Patrick Modiano í þýðingu Sigurðar Pálssonar.
    Árni Hjartarson jarðfræðingur segir frá ferðum Vigfúsar Sigurðssonar grænlandsfara sem fór í fræga leiðangra til Grænlands 1912 og 1930 en nú hafa dagbækur Vigfúsar verið gefnar út.
    Umsjón Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Timothy Morton, Kristín Helga, Aðalheiður Atladóttir og Myrkir
    Rætt við Sigrúnu Hrólfsdóttur, deildaforseta myndlistardeildar Listaháskólans og Björn Þorsteinsson heimspeking, um heimspekinginn Tomothy Morton. Morton er einn af þekktustu fræðimönnum samtímans á sviði hugvísinda og hefur getið sér gott orð fyrir skrif sín um náttúruna á tímum mannaldar og póst-húmanisma.
    Rætt við Kristínu Helgu Gunnarsdóttur rithöfund um skáldsöguna Vertu ósýnilegur, en hún er bók vikunnar á Rás1.
    Ingibjörg Eyþósdóttir tónlistarfærðingur segir frá sinni upplifun af Myrkum músíkdögum.
    Aðalheiður Atladóttir arkitekt segir frá listaverkunum sem breyttu lífi hennar.
    Og sagt er frá því hvaða fræðirit eru tilnefnd til að hljóta viðurkenningu Hagþenkis.
    55 min
  • Lopapeysan, Ljósmyndaskólinn, Paul Robeson, Nýlistasafnið
    Í Víðsjá dagsins er rætt við Ásdísi Jóelsdóttur, lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands, um sögu íslensku lopapeysunnar. Ásdís gaf nýlega út bókina Íslenska lopapeysan. Uppruni, saga og hönnun og er það fyrsta ritrýnda fræðiritið um hannyrðir á Íslandi.
    Litið er við á Læknaminjasafn Seltjarnarness þar sem sjö konur úr Ljósmyndaskólanum sýna útskriftarverk. Sólveig Jónsdóttir segir frá verki sínu sem fjallar um heimabæ hennar, Þórkötlustaðahverfið á Reykjanesi.
    Þorgerður Ólafsdóttir flytur pistil um Nýlistasafnið. Þetta eru fyrslu "skilaboðin frá Nýló" á 40 ára afmælisári safnsins.
    Þorgerður Ólafsdóttir flytur pistil um Nýlistasafnið. Þetta eru fyrslu "skilaboðin frá Nýló" á 40 ára afmælisári safnsins.
    Einnig er fjallað um bandaríska bassasöngvarann Paul Robeson í tilefni að útkomu tveggja nýrra ævisagna um hann.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Danskur þjóðminjavörður, Medea, söfn og innflytjendur og Vertu ósýnile
    Í Víðsjá í dag verður rætt við Arndísi Bergsdóttur um söfn, fólksflutninga og innflytjendur en hún stýrði á dögunum málþingi um þetta efni. Sagt verður frá nýjum þjóðminjaverði Dana, Rane Willerslev, sem hefur fengið um sig sinn eigin raunveruleikaþátt í danska sjónvarpinu. María Kristjánsdóttir segir skoðun sína á leiksýningunni Medeu í Borgarleikhúsinu og Kristín Helga Gunnarsdóttir les brot út skáldsögu sinni Vertu ósýnilegur, sem er bók vikunnar á Rás 1.
    55 min
  • Hlökk og Hulda, ljósmyndun, Guðrún frá Lundi og Grænmetisætan.
    Í Víðsjá dagsins verður litið á æfingu hjá Listahópnum Hlökk og forvitnast um hljóðfærið Huldu, sem gefur ekki aðeins frá sér hljóð heldur líka ljós. Hlökk mun frumflytja ný verk á Myrkum músíkdögum sem hefjast í dag. Tónlistarkonurnar Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Lilja María Ásmundsdóttir og Ragnheiður Erla BJörnsdóttir skipa listahópinn Hlökk.
    Rætt verður við Louise Wolthers um eftirlit, list og ljósmyndun. Louise var gestur Ljósmyndahátíðar Reykjavíkur í síðustu viku þar sem hún flutti erindi um efnið.
    Einnig er rætt við Droplaugu Benediktsdóttur um Guðrúnu frá Lundi en nú stendur yfir sýning á ævistarfi þessa afkastamikla rithöfundar á Borgarbókasafni Reykjavíkur.
    Og Ingunni Snædal, þýðandi Grænmetisætunnar, sem er bók vikunnar á Rás1, segir hlustendum frá sinni upplifun af bókinni.
    Umsjónarmenn eru Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Kaffi, myndlist, ull, listaverk sem breyta lífi þínu og myndlistarrýni
    Við byrjum í Bismút gallerí við Hverfistgötu og ræðum við Ragnar Má Nikúlásson og Hrund Atladóttur.
    Gunnar Karel Másson, tónskáld og listrænn stjórnandi Myrkra músíkdaga, segir okkur frá listaverkunum sem breyttu lífi hans.
    Myndlistarrýnir Víðsjár Starkaður Sigurðarson fór á nokkrar sýningar um helgina. Hann ætlar að segja okkur hvaða pælingar og tengingar fóru af stað í huga hans.
    Og við heimsækjum Ráðhildi Ingadóttur myndlistarkonu sem opnaði sýningu í Hafnarborg um síðustu helgi. Þar koma búddismi, draumar og ullin af sauðkindinni við sögu.
    Umsjónarmenn þáttarins: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,840 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners