Rætt er við Egil Heiðar Anton Pálsson, leikstjóra sýningarinnar Himnaríki og helvíti sem byggð er á þríleik Jóns Kalmanns (Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins), en sýningin verður frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins annað kvöld.
Kristbergur Pétursson segir frá sýningu sinni Utan þjónustusvæðis, sem nú stendur yfir í Gerðubergi.
Einnig er rætt við Ingibjörgu Steinunni Sverrisdóttur, landsbókavörð, en Landsbókasafn -Háskólasafn fagnar 200 ára afmæli á árinu.
Steinunn Inga Óttarsdóttir rýnir í Undirferli, skáldsögu Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur.
Umsjónarmenn þáttarins eru: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.