Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Menningarblöndun í Reykjavík, umdeildur Landspítali, glæný víkingam
    Við ræðum við Írisi Ellenberger doktor í sagnfræði, um nýlega rannsókn hennar á menningarblöndun í Reykjavík í upphafi 20.aldar. Íris hefur rannsakað sérstaklega hvernig fólk undirstrikaði stéttarstöðu sína með dönskum hlutum, mat og orðum og hvað fólkið sem tilheyrði ekki ráðandi stétt gerði með þessa framandi dönsku menningu sem var aðeins á færi fárra.
    Við kíkjum inn á æfingu í Söngskóla Reykjavíkur þar sem þær Hallveig Rúnarsdóttir, sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzósópran, og Hrönn Þráinsdóttir, píanóleikari undirbúa flutning á nýjum sönglögum og þjóðlagaútsetningum Jónasar Ingimundarsonar. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Tíbrá, og verða haldnir í Salnum í Kópavogi næstkomandi sunnudag.
    Guja Dögg Hauksdóttir arkitekt flytur pistil um fagurfræði borgarinnar í aðdraganda borgarstjórnarkosninga, að þessu sinni fjallar pistill hennar um staðsetningu Landsspítalans.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Þýskt óperulíf, Skilaboð frá Nýló, Veröld sem var, Lespúsl, Gallerí Ve
    Við ræðum við Svein Dúa Hjörleifsson, en hann er fastráðinn við óperuna í Leipzig í Þýskalandi og syngur þar í hverri sýningunni á fætur annarri.
    Við heimsækjum Þórey Eyþórsdóttur í Gallerí Vest við Hagamel í Vesturbæ Reykjavíkur og við hugum að útkomu Lespúsla, fjögurra kvera sem gefa innsýn í höfundarverk Þórarins Eldjárn með nýstárlegum hætti.
    Þættinum berast skilaboð frá Nýló á 40 ára afmælisári Nýlistasafnsins eins og við stefnum að einu sinni í mánuði á þessu afmælisári. Skilaboðin sem okkur berast eru frá Báru Bjarnadóttur en það er Kristín Helga Ríkharðsdóttir sem ber okkur þau.
    Og lesið er úr bók vikunnar sem að þessu sinni er Veröld sem var eftir Stefan Zweig.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Hulda Hákon á vinnustofunni, BIblíuþýðingar, ljóð í Iðnó, Sýningin sem
    Við förum út á Granda þar sem myndlistarkonan Hulda Hákon býr og er með vinnustofu. Hulda setur Lou Reed á fóninnn og segir frá áhrifavöldunum í sínu lífi.
    Við hugum að Biblíunni í dymbilvikunni. Gauti Kristmannsson flytur okkur pistil þar sem hann veltir fyrir sér þessari áhrifamestu bók íslenskra bókmennta.
    María Kristjánsdóttir segir frá sinni upplifun af tveimur sýningum í Borgarleikhúsi: Sýningunni sem klikkar og Rocky horror.
    Rauða skáldahúsið nefnist ljóðakvöld sem verður haldið á Skírdag í Iðnó. Það er þýðandinn og skáldkonan Meg Matitz sem stendur fyrir kvöldinu ásamt Nönnu Gunnarsdóttur sem einnig hefur skipulagt ýmsa listtengda viðburði, í Englandi og í Reykjavík. Við ræðum við Meg og Nönnu.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Múlakot í Fljótshlíð, ávarp á alþjóðlegum degi leiklistar, myndlist í
    Brynhildur Guðjónsdóttir flytur ávarp á alþjóðlegum degi leiklistar.
    Við heimsækjum Hafnarborg, menningarmiðstöð Hafnarfjarðar, en þar voru á dögunum opnaðar tvær sýningar með verkum Jóns Axels Björnssonar og Jóhönnu Kristbjargar Sigurðardóttur. Jón Axel sýnir málverk á sýingunni Afstæði en Jóhanna bíður upp á margslungna innsetningu sem hún kallar Margoft við sjáum og margoft við sjáum aftur.
    Starkaður Sigurðarson fjallar um sýninguna Bæklingar í gallerí OPEN.
    Bærinn Múlakot í Fljótshlíð tengist íslenskri listasögu sterkari böndum en hingað til var vitað. Í Múlakot lögðu margir af okkar fremstu listamönnum leið sína og dvöldu um lengri eða skemmri tíma. Ásta Friðriksdóttur listfræðingur segir frá meistararitgerð sinni sem fjallar um Múlakot og listamenninga sem tengdust bænum.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Lykt og minni, Íslenski draumurinn, borgarskipulag við Hörpu og íslens
    Í Víðsjá dagsins verður rætt við Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóra en hann hlaut á dögunum íslensku tónlistarverðlaunin fyrir störf sín og framlag til íslenskrar tónlistar, auk þess að hljóta þrenn önnur verðlaun á hátíðinni.
    Guja Dögg Hauksdóttir veltir fyrir sér byggingarreitum við Arnarhól, þar sem Harpa stendur og Hafnartorg og tilvonandi höfuðstöðvar Landsbankans munu rísa, í pistli um skipulag og fagurfræði borgarinnar.
    Hera Guðmundsdóttir er ung listakona sem hefur búið og starfað í París frá því hún útskrifaðist úr Listaháskólanum fyrir tveimur árum. Hún kom heim á hönnunarmars til að sýna ný verk sem hún býr til úr leir og ilmkjarnaolíum. Hera sýnir um þessar mundir í gallerí Geysi við Skólavörðustíg, þar sem við hittum hana í vikunni.
    Og rætt er við Guðmund Andra Thorsson um bók vikunnar, sem er skáldsaga hans, Íslenski draumurinn frá árinu 1992.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Hvað er í blýhólknum, Hans Blær, 101 Flateyri og OPEN.
    Við veltum fyrir okkur innkomu listamanna í bæjarlífið á Flateyri með Sæbjörgu Freyju Gísladóttur, en hún ritaði greinina 101 Flateyri í nýjasta tímarit Máls og menningar.
    María Kristjánsdóttir leiklistarrýnir Víðsjár segir sína skoðun á verkinu Hans Blær í Tjarnarbíói. Sýningin er samstarf leikhópsins Óskabarna Ógæfunnar og rithöfundarins Eiríks Arnar Norðdahl.
    Leikhúslistakonur 50+ leiklesa leikrit Svövu Jakobsdóttur í Hannesarholti í mars og apríl. Leikritið „Hvað er í blýhólknum“ undir stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur verður lesið þar annað kvöld. Rætt er við Þórhildi um verk Svövu og tíðarandann þegar það var fyrst sett upp, árið 1970.
    Við kíkjum inn í nýtt Sýningarrými á Grandgarði sem kallas Open.Það eru þau Hildigunnur Birgisdóttir, Örn Alexander Ámundason, Una Margrét Árnadóttir og Arnar Ásgeirsson sem deila þar vinnustofu og þau stefna á að halda þar reglulega viðburði og sýningar.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Hamingjan í Hollywood, óður til eggja, 333 ára gamall Bach og Íslenski
    Við förum í Gröndalshús í Grjótaþorpi og ræðum við Rán Flygering teiknara um verkefnið Allir fuglar úr eggi skríða sem er eins konar óður til eggja og var hluti af Hönnunarmars um helgina.
    Á morgun hefði Bach orðið 333 ára og því verður fagnað með atburðinum Bachaðu þig upp! í Hörpu á morgun. Við kynnum okkur málið.
    Rithöfundurinn og þingmaðurinn Guðmundur Andri Thorsson les úr bók sinni Íslenska draumnum en hún er bók vikunnar á Rás 1.
    Og loks verður alþjóðlegum degi hamingjunnar fagnað með því að skoða birtingarmyndir hennar í Hollywoodmyndum en Unnur Tryggvadóttir Flovnez kannaði þær í lokaritgerð sinni í heimspeki.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Bókin sem breytti lífinu, Edda Jóns Leifs í Hörpu og Die Edda í Hannov
    Í Víðsjá dagsins mun Óttar Proppe segja frá skáldsögu sem hafði á hann djúpstæð áhrif og breytti sín hans á listir.
    Árni Heimir Ingólfsson segir frá Eddu II eftir Jón Leifs sem Sinfóníuhljómsveit Íslands, Schola Cantorum og einsöngvarar flytja í næstu viku en sýningu um tónverkið og sköpun þess hefur verið sett upp í Þjóðarbókhlöðu.
    Edda verður líka á dagskrá í Hannover í kvöld en Þorleifur Örn Arnarson og Mikalel Torfason frumsýna leikverk sitt Die Edda þar í kvöld. Víðsjá slær á þráðinn til Hannover og ræðir við Þorleif Örn um verkið.
    Einnig verðu rætt Ólöfu Pétursdóttur þýðanda um bók vikunnar, Fegurð er sár eftir indónesíska höfundinn Eka Kourniwan í þýðingu Ólafar.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Íslensk hönnun í Sierra Leone, Leikjavæðing menningararfsins, Celine
    Skúli Björn Gunnarsson forstöðumaður Gunnarsstofnunar segir frá leikjavæðingu menningararfsins, en námsstefna um hana verður haldin í Gerðubergi á föstudag.
    Arndís Björk Ásgeirsdóttir segir frá óvæntu sambandi rússneska tónskáldsins og píanósnillingsins Rachmaninoffs og kanadísku sönggyðjunnar Celine Dion.
    Litið í heimsókn til Róshildar Jónsdóttur vöruhönnuðar þar sem undirbúningur fyrir Hönnunarmars er í fullum gangi. Rætt er við Róshildi og Regínu Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Aurora velggerðarsjóðs, um samstarf íslenskra hönnuða og handverksfólks frá Sierra Leone.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson.
    55 min
  • Þvílíkir tímar, leikhús um dönsku óperuna, sár fegurð og umbreytt ljós
    Í Víðsjá dagsins er rætt við myndlistarmanninn Kristinn E. Hrafnsson um sýninguna Þvílíkir tímar, sem stendur yfir í Hverfisgalleríi við Hverfisgötu. Einnig er rætt við danska leikritaskáldið Jakob Weis um forvitnilegt leikrit sem var frumsýnt í Konunglega danska leikhúsinu á föstudag en það heitir Møller and Larsen og segir frá samskiptum danska auðjöfursins A.P. Møller og arkitektsins Hennings Larsen og samstarfi þeirra við að byggja nýju óperuna í Kaupmannahöfn.
    Haldið er í heimsókn í menningarhús Borgarbókasafnsins í Spönginni í Grafarvorgi en þar sýnir hinn 89 ára gamli Guðmundur W. Vilhjálmsson ljósmyndir sem hann hefur unnið með hjálp tölvutækni. Og lesið er úr bók vikunnar sem er Fegurð er sár eftir indónesíska skáldið Eka Kurniawan í þýðingu Ólafar Pétursdóttur.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,840 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners