Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Kvenímyndir í steinþrykki, Harpa Ófelíu, fjórar Önnur, Turner verðlaun
    Í þættinum er rætt við Sverri Guðjónsson tónlistarmann um sigurför hljóðverksins Harpa Ófeliu.
    Litið verður í Gallerí EkkiSens við Bergstaðarstræti þar sem Nína Óskarsdóttir sýnir steinþrykk.
    Starkaður Sigurðarson segir frá þeim listamönnum sem nýlega voru tilnefndir til Turner-verðlaunanna og frá heimsókn sinni á útskriftarsýningu meistaranema Listaháskólans sem nú er hægt að nálgast í Gerðasafni.
    Þættinum berast skilaboð frá Nýlistasafninu í tilefni af fjörtíu ára afmæli safnsins, það er Bjarki Bragason sem les en auk þess er hringt í fjórar konur að nafni Anna sem allar tengjast starfsemi safnsins.
    Auk þess er lesið úr bók vikunnar sem að þessu sinni er danskt rit frá 17.öld, Harmaminning Leónóru Kristínar í Bláturni eftir Leónóru Kristínu Ulfeldt í þýðingu BJörns Th. Björnssonar. Jórunn Sigurðardóttir les.
    Umsjón: GT og HH
    55 min
  • Hin lánsömu og Hin órólegu, fullveldið á Akureyri og útskrifarsýning L
    Við lítum inn á æfingu hjá Íslenska dansflokknum en hann fagnar þessa dagana 45 ára afmæli og frumsýnir af því tilefni sýninguna Hin lánsömu eftir Anton Lachky á morgun. Við ræðum við Ernu Ómarsdóttur listdansstjóra og Ingu Maren Rúnarsdóttur dansara.
    Í Listasafninu á Akureyri verður opnuð á laugardag samsýning 10 listamanna sem ber heitir Fullveldið endurskoðað. Hlynur Hallsson safnstjóri og annar tveggja sýningarstjóra sýningarinnar segir okkur frá henni.
    Við ræðum við Ingibjörgu Eyþórsdóttur þýðanda bókarinnar Hin órólegu eftir Linn Ullmann en hún er bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni.
    Við lítum við í Gerðasafni í Kópavogi, þar sem nemendur og kennarar úr Listaháskólanum eru að undirbúa útskriftarsýningu meistaranema í myndlist og hönnun, og ræðum við Bryndísi Snæbjörnsdóttur fagstjóra meistaranáms og Einar Örn Benediktsson og Arnar Ómarsson sem eiga verk á sýningunni.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Félag áhugamanna um árshátíðir, staða íslenskunnar, Jórunn Viðar og li
    Við kynnum okkur hugarheim Eddu Mac, ungrar listakonu sem nýlega sýndi verk sín í Norræna húsinu í tengslum við Barnamenningarhátíð. Sýningin kallaðist Félag áhugamanna um árshátíðir og samanstóð af portrettmyndum unnum í veggteppi.
    Við heyrum af fyrstu tónleikum í fyrirhugaðri tónleikaröð Kítón sem helguð er klassískri tónlist og hefst á verkum Jórunnar Viðar og einnig heyrum við af nýju listaverki á Trafalgartorgi í London. Og að lokum mun Gauti Kristmannsson huga að stöðu íslenskunnar frá öðrum sjónarhóli en venja er.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Amadeus, íslensk eða erlend myndlist, Hús íslenskra fræða og Hin óróle
    Í Víðsjá í dag verður kannað hvað leikritahöfudurinn Peter Shaffer hafði fyrir sér þegar hann samdi leikritið Amadeus sem kvikmyndaleikstjórinn Milos Forman breytti síðar í kvikmynd. Árni Heimir Ingólfsson listrænn ráðgjafi Sinfóníuhljómsveitar Íslands verður tekin tali en hljómsveitin leikur tónlist Mozarts tvívegis í vikunni við kvikmynd Formans.
    Starkaður Sigurðarson flytur myndlistarpistil og Ingibjörg Eyþórsdóttir les úr nýrri þýðingu sinni á skáldsögunni Hin órólegu sem er bók vikunnar að þessu sinni.
    Að auki heldur Víðsjá áfram umræðu sem pistlahöfundur Víðsjár hóf í síðustu viku um Hús íslenskra fræða þegar rætt verður við Véstein Ólason fyrrverandi forstöðumann Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Ögmund Skarphéðinsson arkitekt hjá arkitektastofunni Hornsteinum en stofan sér um hönnun hússins.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Dans verður myndlist, pælingar Páls Skúlasonar, fornleifafundur á Seyð
    Við ræðum við Sigríði Soffíu Nielsdóttur dansara og Helga Má Kristinsson myndlistarmann um myndlist sem reynir að fanga eðli heyfingar sem dansarinn skilur eftir sig. Slegið verður á þráðinn austur á Seyðisfjörð og forvitnast um skólasöngleik nemenda sem snýr að fornleifafundi þar í nágrenninu fyrir nokkrum árum. Við ræðum við Jón Ásgeir Kalmansson heimspeking um náttúrupælingar Páls Skúlasonar, en hann er einn þeirra sem flytja erindi á Pálsvöku, málþingi um heimspeki Páls Skúlasonar í Hannesarholti á laugardag.
    Magnea J. Matthíasdóttir þýðandi segir frá bók vikunnar, en það er skáldsagan Það sem að baki býr, eftir dönsku skáldkonuna Merete Pryds Helle, og Guja Dögg Hauksdóttir flytur pistil um tvö menningarrhús í Reykjavík.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Villimaður í París, Fólk, staðir og hlutir, Veðurskeyti frá Ásgarði og
    Við hittum Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur og heyrum af nýútkominni ljóðabók hennar, Villimaður í París.
    María Kristjánsdóttir rýnir í leikverkið Fólk, staðir og hlutir sem frumsýnt var um liðna helgi í Borgarleikhúsinu.
    Lesið er brot úr bók vikunnar á Rás1, Það sem að baki býr eftir dönsku skáldkonuna Merete Pryds Helle í þýðingu Magneu J. Matthíasdóttur. Auk þess heyra hlustendur þáttarins af útgáfuverkefninu Veðurskeyti frá Ásgarði sem Atli Ingófsson tónskáld er að vinna að núna í samstarfi við hóp fræðimanna og listamanna.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Gabríela Friðriksdóttir og listagyðjan, miðaldatónlist úr myrkrinu og
    Rætt er við Arngerði Maríu Árnadóttur og Lilju Dögg Gunnarsdóttur úr tónlistarhópnum Umbru um nýútkomna plötu þeirra, Úr myrkrinu.
    Skáldsagan Norma eftir Sofi Oksanen kom út árið 2016 og er bók vikunnar á Rás 1. Við ræðum við þýðandann, Sigurð Karlsson.
    Gestur okkar í síðari hluta Víðsjár verður myndlistarkonan Gabríela Friðriksdóttir sem nú á verk á sýningu í Hverfisgalleríi. Við heimsækjum Gabríelu og ræðum við hana um um lífið og listagyðjuna.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Stereótýpur í Simpsons, Anna Magdalena Bach og Diana Ross, Wadada Leo
    Við förum í heimsókn til Karls Sigurbjörnssonar fyrrverandi biskups Íslands, og ræðum við hann um skáldsöguna Gilead eftir Marylinne Robinson, en hún kom nýverið út í þýðingu Karls.
    Við kynnum okkur hið svokallaða Apu-vandamál Simpsons þáttanna og Arndís Björk Ásgeirsdóttir flytur pistil um tónlist þar sem varpað verður ljósi á óvænt samband Önnu Magdalenu Bach og Diönu Ross.
    Við grípum niður í viðtal við bandaríska trompetleikarann Wadada Leo Smith sem tekið var við hann í fyrra en hann er nú aftur kominn til Íslands og heldur tónleika í Mengi á föstudaginn.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Ný íslensk Poppópera, dönsk samtímalist, dularfullt hár Normu og minni
    Við heimsækjum Tjarnarbíó og ræðum við Auði Övu Ólafsdóttur, Dóra DNA og Ásgeir Helga Magnússon um poppóperuna Vakúm eftir Melkorku Sigríði Magnúsdóttur, en verkið verður frumsýnt þar á fimmtudagskvöld.
    Markús Þór Andrésson sýningarstjóri segir hlustendum frá sýningunni Tak i lige måde, sem nú er uppi í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Sýningin er sett upp í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands og hefur að geyma samtímalist frá Danmörku.
    Sigurður Karlsson les úr þýðingu sinni á Normu eftir Sofi Oksanen sem er bók vikunnar á Rás 1. Persóna bókarinnar Norma er með heldur betur dularfullt hár.
    En fyrst hugum við að nýju minnismerki í Bandaríkjunum sem opnað verður með viðhöfn undir lok mánaðar, en þar er minnst þeirra svörtu Bandaríkjamanna sem teknir voru af lífi án dóms og laga í suðurríkjunum af æstum múg þegar kynþáttaaðskilnaðurinn stóð þar sem hæst.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Stasi-safnið í Berlín, heimspeki á Stjörnutorgi, myndlist á eyju í Sig
    Við förum á Stjörnutorg í Kringlunni og hittum þar fyrir Baldur Jóhannesson, en hann heldur utan um heimspekikaffi sem hittist hálfsmánaðarlega. Næsta sunnudag mun heimspekikaffið hittast við Dominos á Stjörnutorgi til að ræða kosti og galla gróðadrifinna stórfyrirtækja.
    Svala Arnardóttir menningarfræðingur og pistlahöfundur okkar í Berín ætlar í dag að segja okkur frá Stasi-safninu þar í borg.
    Við heyrum í Guðmundi Andra Thorsyni, sem er mikill aðdáandi Stefans Zweig og sjálfsævisögu hans, Veröld sem var, en hún er bók vikunnar á Rás1.
    Og við sláum á þráðinn til Parísar og heyrum af samsýningu í hjarta Parísar. Sigurður Árni Sigurðsson er að setja upp verk sín í flugubúð úti í eyjunni Ile St. Louis
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,840 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners