Helga Óskarsdóttir, ritstýra vefritsins Artzine, segir okkur frá verkunum sem breyttu lífi hennar.
Á Listasafni Íslands er Birta Guðjónsdóttir að setja upp sýningu á verkum Elinu Bortherus. Hin finnska Brotherus er af mörgum talin vera einn mikilvægasti ljósmyndari samtímans og BIrta segir okkur betur frá verkunum á sýningunni sem öll eru tekin á síðastliðnum tveimur árum.
Við segjum eilítið frá hljómsveitarstjóranum Osmo Vänska, sem var aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands um skeið á 10. áratugnum, en hann stýrir sveitinni á tónleikum í kvöld og annað kvöld.
Og hvað skyldi nú tengja átjándu aldar tónskáldið Muzio Clementi og popptónlistarmanninn Phil Collins? Arndís Björk Ásgeirsdóttir leiðir okkur í allan sannleikan um þau tengsl í sínum fyrsta pistli fyrir Víðsjá. Arndís mun héðan í frá flytja okkur reglulega pistla um forvitnilega atburði úr tónlistarsögunni.
Og Bergþóra Snæbjörnsdóttir segir okkur frá ljóðabók sinni Flórída, sem er bók vikunnar ár Rás1.