Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Ákall til skúffuskálda, rímur, Stríð og ljóð
    Við byrjum þáttinn á að hlýða á handhafa Maístjörnunnar lesa nokkur ljóð.
    Myndlistarrýnir þáttarins, Starkaður Sigurðarson, segir frá sinni upplifun af Stríði, verki Ragnars Kjartanssonar og Kjartans Sveinssonar sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu á dögunum.
    Leikhópurinn Lakehouse hefur sýnt ný íslensk leikverk víða um land undanfarin tvö ár. Árni Kristjánsson og Harpa Fönn Sigurjónsdóttir koma þáttinn og segja frá nýjasta verkefni sínu sem kallast Einangrun en markmið þess er að fá skúffuskáld allsstaðar af landinu til samstarfs.
    Segulbönd Kvæðafélagsins Iðunnar eru kominn út á bók og á fjórum geisladiskum, en útgáfan er framhald verkefnis sem hófst árið 2004 með útgáfu á Silfurplötum Iðunnar sem að vöktu mikla athygli. Við ræðum við Rósu Þorsteinsdóttur, sérfræðing á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, um útgáfuna og fáum kannski að heyra nokkrar rímur.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Dularfullur gluggi í miðborginni, nýr hljóðheimur upp úr Verdi, Sr. Fr
    Í Víðsjá dagsins ætlum við að huga að Leiðinni heim sem er göngusýning í miðborg Reykjavíkur og eins konar upptaktur að Listahátíð í Reykjavík sem hefst í byrjun júní. Við ræðum við Egil Sæbjörnsson myndlistarmann sem tekur þátt í sýningunni og Kathy Clark sýningarstjóra um innsetningu í frístandandi glugga við Hverfisgötu.
    Við lítum inn á æfingu á verkinu Free Play, tilraunakenndri óperusýningu þar sem raftónlistarmaðurinn Sveinbjörn Thorarensen skapar nýjan hljóðheim upp úr óperunni La Traviata eftir Verdi. Verkið verður flutt í Bingósalnum í Vinabæ næstkomandi laugardag. Við ræðum við Sveinbjörn og tvo af höfundum verksins, óperusöngkonuna Hrafnhildi Árnadóttur og myndlistarkonuna Hrafnhildi Gissurardóttur.
    Á morgun verður þess minnst að þá verða liðin 150 ár síðan Sr. Friðrik Friðriksson, æskulýðsleiðtogi og brautryðjandi í starfi með ungmennum, fæddist að Hálsi í Svarfaðardal. Meðal annars verður blásið til hátíðardagskrár í Lindakirkju og blómsveigur lagður að leiði Sr. Friðriks. Við ætlum að leyfa rödd Friðriks að hljóma í þætti dagsins.
    Og við ræðum við rithöfundinn Guðmund Óskarsson um skáldsögu hans Villisumar, sem er bók vikunnar á Rás1.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Ljósmyndir sem gleymast ekki, kómísk ljóð, þróunarsaga íslenska fánans
    Við ræðum við Hörð Lárusson grafískan hönnuð um þær tillögur sem bárust um íslenskan þjóðfána á sínum tíma en í dag verður opnuð sýning á sumum þeirra hugmynda í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Þar gefur meðal annars að líta í fyrsta sinn saumaða útgáfu að hugmynd Jóhannesar Kjarvals að fánanum og eins hugmynd Kristjáns tíunda konungs að fána fyrir Ísland.
    Vala Hafstað les úr nýrri ljóðabók sinni, Eldgos í aðsigi / Imminent Eruption, og segir frá umskiptunum úr bandarískum veruleika yfir íslenskan.
    Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari verður einnig gestur Víðsjár í dag, en hann ætlar að deila með okkur ljósmyndum sem aldrei gleymast.
    Og Arndís Björk Ásgeirsdóttir veltir fyrir sér klæðaburði ungra kvenpíanista, rómantíkinni í verkum Beethovens og tenginu hennar við Billy Joel.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Páll Ragnar Pálsson, Kate Kollwitz, Villisumar og fullveldið í Berlín.
    Tónskáldið Páll Ragnar Pálsson hlaut um helgina aðalverðlaunin á Alþjóðlega tónskáldaþin ginu International Rostrum of Composers sem haldið var í Búdapest. Páll hlaut verðlaunin fyrir verk sinn Quake.
    Páll kemur í þáttinn til að ræða verkið og með honum verður annar góður gestur, Arndís Björk Ásgeirsdóttur sem sótti hátíðina fyrir hönd Ríkisútvarpsins.
    Næstkomandi laugardag verður sendiherrabústað Íslands í Berlín breytt í nýlendu lista, í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands. Á viðburðinum, sem er hluti af listahátíðinni Cycle sem er vettvangur fyrir samtal tilraunakenndrar samtímatónlistar og myndlistar, verða íslenskir listamenn og íslenm sk list kynnt fyrir listasenunni í Berlín. Við ræðum við Guðný Þóru Guðmundsdóttur, listrænan stjórnanda hátíðarinnar í þætti dagsins.
    Og það verða fleiri fréttir frá Berlín því Svala Arnardóttir pistlahöfundur Vísjár í Berlín ætlar að segja okkur frá spennandi safni sem heiðrar minningu listakonunnar Kate Kollwitz, sem bjó og starfaði í Berlín þar til hún lést árið 1947.
    Og Guðmundur Óskarsson rithöfundur kemur í þáttinn og les úr skáldsögu sinni Villisumar frá árinu 2016, sem er bók vikunnar á Rás1.
    Umsjón: Guðni Tómasson Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Fornar ferðaleiðir, Sæunn Þorsteinsdóttir, karlmennska á fjöllum og da
    Við ræðum við Veru Roth jarðfræðing um fornar ferðaleiðir, en Vera er höfundur bókarinnar Fornar ferðaleiðir í Vestur-Skaftafellssýslu um aldamótin 1900, sem kom út í liðinni viku.
    María Kristjánsdóttir fjallar um verkið Stríð eftir Ragnar KJartansson og KJartan Sveinsson sem frumflutt var í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Einnig fjallar María um Aðfararnótt, eftir Kristján Þórð Hrafnsson í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur, sem er lokaverkefni leikarabrautar sviðslistardeildar Listaháskólans.
    Við ræðum einnig við Sæunni Þorsteinsdóttur sellóleikara um tónleika sem hún heldur ásamt Alexöndru Joan í Hörpu á sunnudag. Efnisskráin er eins konar hugleiðing um það hve einn listamaður getur þróast mikið á aðeins örfáum árum.
    Og Brynja Cortes Andrésdóttir segir frá skáldsögunni Átta fjöll eftir Paolo Cognetti, sem er bók vikunnar á Rás1.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Ísfirskar styttur og dulúðug herbergi, fræðimennska og innsæi, góðar
    Við byrjum á því að skoða myndlistarsýningu með stórum titli, Leitin að sannleikanum, sem nú er uppi í Berg Contemporary galleríi við Kalpparstíg. Þar sýnir Katrín Elvarsdóttir ljósmyndir sínar og vídeoverk. Þetta eru persónuleg verk sem meðal annars snúa að náttstöðum hennar sjálfrar og umhverfi æskunnar.
    Við lítum í heimsókn til Guðmundar Thoroddsens myndlistarmanns en hann sýnir ný málverk í listrýminu Harbingar við Freyjugötu. Guðmundur bauð upp á fínasta kaffi og spjall um allt milli himins og jarðar með því, þar á meðal bleika litinn, innsæið, fræðimennsku, karlmennsku, pulsur og prump.
    Guja Dögg Hauksdóttir kemur í þáttinn með pistil um fagurfræði og borgarskipulag í aðrdaganda borgarstjórnarkosninga. Í þessum síðasta pistli sínum fyrir kosningar veltir Guja Dögg því fyrir sér hvað það sé sem geri borg að góðri borg.
    Og við hugsum til Parísar, vorið 1968.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Lífsspeki kúa, Stríð, íslensk sýningarrými og Átta fjöll
    Við förum í heimsókn í Þjóðleikhúsið og ræðum þar við Ragnar Kjartansson og Kjartan Sveinsson um sýningu þeirra Stríð sem frumsýnd verður á stóra sviðinu á morgun.
    Ingunn Ásdísardóttir þýðandi kemur í þáttinn til að ræða Lífsspeki kúa eftir breska bóndann Rosamundu Young. Bókin kom nýlega út í þýðingu Ingunnar.
    Starkaður Sigurðarson fjallar um íslensk sýningarrými í myndlistarpistli og Brynja Cortes Andrésdóttir les úr ítölsku skáldsögunni Átta fjöll eftir Paolo Cognetti, en Átta fjöll er bók vikunnar á Rás1.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Ýmissa kvikinda líki, Ástarbréf, rússneskar bókmenntir, afrískar bókme
    Á föstudag opnar sýningin Ýmissa kvikinda líki - Íslensk grafík í Listasafni Íslands þar sem 27 listamenn sýna yfir 100 grafíkverk. Við hittum Ingibjörgu Jóhannsdóttur á safninu en hún er sýningarstjóri sýningarinnar ásamt bandaríska listfræðingnum Pari Stave.
    Gauti Kristmannsson rýnir í eitt af höfuðritum afrískra bókmennta, Allt sundrast eftir Chinua Achebe, sem Angústúra forlag gaf út á dögunum.
    Dagur Hjartarson rithöfundur kemur í þáttinn og segir okkur frá Síðustu ástarjátningunni, sem er bók vikunnar á Rás1.
    Við ræðum við Gunnar Þorra Pétursson þýðanda um Hina smánuðu og svívirtu eftir Dostojevskí. Ingibjörg Haraldsdóttir hóf þýðingu á verkinu en varð að hverfa frá sökum veikinda og tók Gunnar Þorri við verki hennar og lauk þýðingunni sem Forlagið gefur nú út.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson.
    55 min
  • Synjun í Hallgrímskirkju, Síðasta ástarjátningin, kuml við Eyjafjörð,
    Í Víðsjá dagsins lítum við inn í Hallgrímskirkju þar sem Kristín Reynisdóttir sýnir verkið Synjun/Refusal. Við ræðum við Kristínu um tilurð innsetningarinnar en hluti hennar eru form sem minna á kristinn kross, nú eða krossa sem haka þarf við á umsóknum um hæli en krossarnir eru jafnmargir þeim sem synjað hefur verið um hæli hér á landi. Í fyrrasumar fundust sex kuml á Dysnesi við Eyjafjörð og hefur rannsókn á þeim varpað nýju ljósi á greftrunarsiði í heiðni. Á Þjóðminjasafni Íslands er verið að undirbúa sýninguna Heiðnar grafir í nýju ljósi þar sem úrval gripa úr uppgreftrinum á Dysnesi verða til sýnis. VIð hittum Hildi Gestsdóttur fornleifafræðing á safninu.
    Guja Dögg Hauksdóttir fjallar um elsta hús Reykjavíkur og Borgartúnið í pistli sínum um borgarskipulag og Dagur Hjartarson les úr bók sinni, Síðustu ástarjátningunni, sem er bók vikunnar á Rás1. En við byrjum á nokkrum orðum um skoðanir.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • List án landamæra og töfrar Hallgrímskirkju, harmaminningar, elsta hús
    Listahátíðin List án landamæra hefst í dag og verður einn af þátttakendum hátíðarinnar heimsóttur af því tilefni, listamaðurinn Ingi Hrafn Stefánsson. Einnig kemur Ragnheiður Maísól Sturludóttir, framkvæmdastjóri Listar án landamæra, í þáttinn.
    Við förum í elsta timburhús Reykjavíkur, sem stendur við Aðalstræti 10, en húsinu hefur verið breytt í safn. Þar er verið að setja upp nýja sýningu sem Guðbrandur Benediktsson ætlar að segja okkur betur frá.
    María Kristjánsdóttir rýnir í leikverkið Svartalogn sem frumsýnt var um liðna helgi í Þjóðleikhúsinu.
    Harmaminning Leónóru Kristínar í Bláturni er rit sem danska prinsessan Leónóra Kristín ritað á 17.öld þegar hún var fangi í Bláturni. Ritið er ein af gersemum danskrar bókmenntasögu og það er jafnframt bók vikunnar hér á Rás1. Páll Valsson kemur í þáttinn og segir okkur sína skoðun á bókinni.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,840 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners