Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Ljósmyndir frá Grænlandi, Lee Morgan, Farfuglar á Langanesi og Ummynda
    Ljóðrænt samspil hversdagsleika og landslags er útgangspunktur ljósmyndasýningarinnar North of Normal sem
    nú stendur yfir í Norræna húsinu, en flestar myndanna teknar umhverfis þorpið Oqaatsut við Diskóflóa. Rætt er við Sögu Sigurðardóttur, einn af höfundum verkanna, í þætti dagsins.
    Myndlistarmennirnir Starkaður Sigurðarson og Auður Lóa Guðnadóttir flytja fréttir af dýrum og mönnum í pistli frá Langanesi, þar sem þau dvelja yfir sumartímann og starfa sem safnverðir í Byggðasafninu Sauðanesi.
    Þráinn Hjálmarsson tónskáld er gestur þáttarins en hann mun segja frá sínu uppáhalds listaverki.
    Og loks verður sagt frá heimildarmyndinni I called him Morgan sem segir frá stormasömu lífi og list djasstrompetleikarans Lee Morgan.
    Umsjón: Guðni tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Myndlist móður og dóttur, heimsókn á Gljúfrastein, 200 ára landsbókasa
    Í Listasal Mosfellsbæjar stendur nú yfir sýning að verkum mæðgnanna Jóníar Jónsdóttur og Sigurlínu Jóhannsdóttur, sem kallast Frá móður til dóttur - frá dóttur til móður. Við hittum mæðgurnar við listaverkin sem öll voru unnin sérstaklega fyrir sýninguna, og fáum að heyra af áhrifum þeirra á hvor aðra.
    Við gluggum einnig í bók vikunnar sem að þessu sinni er skáldsagan Okkar á milli eftir írsku skáldkonuna Sally Rooney í þýðingu Bjarna Jónssonar.
    Og í tilefni dagsins ætlum við að senda Landsbókasafninu kveðju en það fagnar í dag 200 ára afmæli. Við heyrum brot úr tveimur eldri viðtölum, við Ingibjörgu Steinunni Sverrisdóttur, landsbókavörð, og Finnboga Guðmundsson fyrrverandi landsbókavörð.
    En við byrjum á að velta fyrir okkur huggulegri heimsókn á Gljúfrastein.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Jakobína, Sigurður Árni, Norræna húsið og Skálmöld.
    Í Víðsjá í dag segir Sigríður K. Þorgrímsdóttir frá Jakobínuvöku 2018 sem haldin verður í Iðnó á laugardag og helguð er rithöfundinum Jakobínu Sigurðardóttur, en nú er þess minnst að hundrað ár eru liðin frá því að hún fæddist vestur á Hornströndum.
    Rætt verður við Guju Dögg Hauksdóttur arkitekt um Alvar Aalto og Norræna húsið sem heldur upp á fimmtíu ára afmæli sitt um þessar mundir og Gunnar Ben meðlimur í rokkhljómsveitinni Skálmöld kemur með fyrsta lagið af nýrri plötu sveitarinnar í heimsókn, en Skálmöld er sérstök vinahljómsveit Víðsjár.
    Ennfremur verður rætt við Sigurð Árna Sigurðsson myndlistarmann um sýninguna Hreyfðir fletir sem er ein þeirra sýninga sem opnuð verður á laugardag í nýju og endurbættu Listasafni á Akureyri.
    Umsjón: Guðni Tómasson.
    55 min
  • Listasafnið á Akureyri, Sölvi saxófónleikari og Arngunnur og Mahler.
    Í Víðsjá í dag verður litið inn í Listasafnið á Akureyri sem opnað verður á ný á laugardag eftir miklar endurbætur og stækkun. Þar verður rætt við myndlistarmennina Aðalheiði Eysteinsdóttur og Magnús Helgason og Hlyn Hallsson safnstjóra.
    Saxófónleikarinn Sölvi Kolbeinsson kemur í heimsókn og segir frá tónlist sinni og tónleikahaldi í Reykjavík þessa dagana.
    Arngunnur Árnadóttir klarinettuleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands segir frá listaverki sem hefur haft mikil áhrif á hana og loks verður gripið niður í tuttugu ára gamalt viðtal við Stefán Karl Stefánsson leikara sem lést í gær eftir langvinn veikindi.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Grænlenskar lesbíur og Bókasafn föður míns
    Víðsjá, 28. júní 2018
    Fuglalíf, grænlenskar lesbíur og Bókasafn föður míns
    Ragnar Helgi Ólafsson er gestur okkar í dag, en í kvöld, á fullu tungli, kemur út Bókasafn föður míns.
    Jóhannes Ólafsson heldur áfram fuglaskoðun sinni og beinir í dag sjónaukanum að fuglum í skáldskap.
    Steinunn Inga Óttarsdóttir fjallar um grænlensku skáldsöguna Hómó Sapína sem nýverið kom út í íslenskri þýðingu.
    Og við heyrum brot úr viðtali Helga Snæs Sigurðssonar frá árinu 2016 við Braga Ólafsson um bók vikunnar, Dulnefnin
    Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir
    55 min
  • Helguleikar, fuglar og Sigrún Eldjárn
    Víðsjá 27. júní 2018
    Rætt við Kolbein Bjarnason um Helguleika, sögu Helgu Ingólfsdóttur og sumartónleika í Skálholtskirkju, nýja bók sem hann var að gefa út hjá bókaútgáfunni Sæmundi
    Jóhannes Ólafsson ræðir við Ragnar Helga Ólafsson og þeir velta fyrir sér fuglum í bókmenntum og listum
    og við heimsækjum Sigrúnu Eldjárn, barnabóka- og myndhöfund á vinnustofu hennar.
    Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir
    55 min
  • Fasteignir, fuglar og fornbókmenntir
    Rætt við Gísla Sigurðsson, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, um nýja heildarútgáfu Íslendingasagnanna, sem var gefin út í tilefni 100 ára afmæli fullveldisins.
    Jóhannes Ólafsson spáir í fugla, en National Geographic tilkynnti í ársbyrjun að 2018 væri ár fuglsins.
    Við heyrum brot úr bók vikunnar, Dulnefnunum, eftir Braga Ólafsson, en í sögu dagsins skoðar sögumaður fasteign til sölu.
    Og við erum einmitt að velta fyrir okkur fasteignum í þætti dagsins, eða öllu heldur ljósmyndum fasteignaauglýsinga. Þær eru eins misjafnar og þær eru margar en sérstaklega eru þær oft frumlegar á Íslandi. Við sláum á þráðinn til Hallgerðar Hallgrímsdóttur, sem stundar nám í ljósmyndun sem myndlistarmiðli við Valand háskólann í Gautaborg, og ræðum við hana um fasteignaauglýsingar
    Umsjónarmaður: Halla Þórlaug Óskarsdóttir
    55 min
  • Edda, Listasafn Árnesinga og Hallgrímskirkja
    María Kristjánsdóttir fjallar um Eddu eftir Robert Wilson, í uppsetningu Det Norske Teatret sem flutt var í Borgarleikhúsinu á Listahátíð.
    Sigrún Harðardóttir, myndlistarkona, lemur striga í Listasafni Árnesinga og slær þannig tvær flugur í einu höggi, þar sem hún býr bæði til takt undir kontrabassaleik Alexöndru Kjeld og úr verður myndverk á striga. Hún segir frá sýningunni og gjörningnum.
    Við hlýðum á 40 ára gamalt viðtal Steinunnar Sigurðardóttur við Málfríði Einarsdóttur, um bók vikunnar Samastað í tilverunni.
    Hörður Áskelsson er iðinn við kolann í Hallgrímskirkju, kórarnir hans eru margverðlaunaðir og gestum fer fjölgandi á hádegistónleikum í kirkjunni. Við heimsækjum hann á Skólavörðuholtið og spjöllum um kórstjórn, ferðamennsku og hljómburð kirkjunnar.
    Umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir.
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,840 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners