Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Bílalúguhljóðverk, langlífur ellismellur, bókmenntir og lög
    Rætt er við dönsku myndlistarkonuna Tulle Ruth um hljóðgalleríið Walk 'n' Bike-in sem verður opnað í Vatnsmýrinni við Norræna húsið í dag. Við heyrum brot úr hljóðverkum eftir Hafdísi Bjarnadóttur, Konrad Korbiewski, Siri Austeen, Jonas Siren og Þuríði Jónsdóttur.
    Arndís Björk Ásgeirsdóttir fjallar um smell frá aldamótunum 1700 sem enn nýtur mikilla vinsælda.
    Fyrsta tölublað Ritsins árið 2018 kom út í gær, í fyrsta sinn eingöngu í rafrænni útgáfu. Bókmenntir og lög eru þemað, skoðað frá ýmsum hliðum. Jón Karl Helgason og Lára Magnúsardóttir eru þemaritstjórar heftisins og Lára verður gestur okkar síðar í þættinum.
    Umsjónarmaður: Halla Þórlaug Óskarsdóttir
    55 min
  • Kvenréttindadagurinn
    Við erum með hugann við kvenréttindi á kvenréttindadaginn. Við tölum við konur, heyrum af konum og minnumst kvenna sem rutt hafa brautina, með einum eða öðrum hætti.
    Myndasöguhöfundurinn Elín Edda Þorsteinsdóttir, hefur sent frá sér nýja bók sem fjallar um Glingurfuglinn, þar kemur minni og gleymska við sögu og líka konur, þó það sé ekki augljóst svona við fyrstu sýn. Elín Edda verður gestur okkar seinna í þættinum.
    Bók vikunnar er Samastaður í tilverunni eftir Málfríði Einarsdóttur, en við heyrum upplestur Steinunnar Sigurðardóttur úr bókinni frá árinu 1989.
    Og íslenskar konur söðla um, bæði lifandi og liðnar, en Guðrún Ósvífursdóttir vaknaði til lífs í framhaldsleikriti sem flutt hefur verið í breska ríkisútvarpinu að undaförnu. Bogi Ágústsson tók saman pistil um efnið, en lesarar auk hans eru Sigurlaug Jónasdóttir, Einar Örn Jónsson, Ísgerður Gunnarsdóttir og Ragnhildur Thorlacius.
    Catherine Westling er líka gestur þáttarins, en hún flytur í dag einleik um sænskar súffragettur í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, Föregångerskan / Þær sem mörkuðu brautina. Við ræðum við hana um kvennabaráttuna þá og nú.
    Við heyrum einnig brot úr þættinum Maddama kerling fröken frú, í umsjón Ástu B. Thoroddsen, Ásdísar Skúladóttur og Guðfinnu Ragnarsdóttur, en þátturinn var sendur var út á Kvenréttindadaginn árið 1969.
    Umsjónarmaður: Halla Þórlaug Óskarsdóttir
    55 min
  • Raftónlist, forvarsla og fótbolti
    Mikael Lind raftónlistarmaður og tónlistarkennari verður gestur þáttarins og rætt verður við hann um þann heim sem tónsmiðir lifa í um þessar mundir, raftónlist og hljóðblöndun.
    Við kíkjum á Árbæjarsafn og hittum þar Maríu Karen Sigurðardóttur forvörð sem segir okkur frá hinum ýmsu kimum forvörslunnar.
    Við erum líka með hugann við heimsmeistarakeppnina í fótbolta. Flutt verður hljóðbrot úr safni Ríkisútvarpsins, lýsingu á knattspyrnukeppni starfsmanna Ríkisútvarpsins og Sjávarútvegarins, frá árinu 1968. Efnið hefur ekki áður ratað í útsendingu.
    Umsjónarmenn: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Guðni Tómasson
    55 min
  • Svikaskáld, Átak, Raspútín og Upplausn
    Svikaskáld heimsækja Víðsjá, þær Sunna Dís Másdóttir, Þóra Hjörleifsdóttir og Fríða Ísberg, en von er á nýrri ljóðabók úr þeirra smíðum á kvenréttindadaginn, 19. júní, Ég er fagnaðarsöngur. Við ræðum um sköpunarferlið og ýmislegt úr reynsluheimi kvenna.
    Í þættinum verður spilað brot úr verkinu Átak eftir Kolfinnu Nikulásdóttur en það er hluti af verkefninu Blesugróf þar sem þrjú leikskáld bjóða áhorfendum í ferðalag um samnefnt hverfi í Reykjavík, verkið er hluti af Listahátíð í Reykjavík. Þar eiga auk Kolfinnu verk Mikael Torfason og Soffía Bjarnadóttir, Þetta eru semsagt þrjú ný ör-leikverk á ólíkum stöðum í hverfinu og munu áhorfendur ganga um í litlum hópum og njóta hvers verks á stað sem því hæfir, innandyra sem utan.
    Guðrún Eva Mínervudóttir les brot úr skáldsögu sinni Skegg Raspútíns sem kom út árið 2016.
    Og rætt verður rætt við Hrafnkel Sigurðsson myndlistarmann um sýningu hans Upplausn sem nú er í Hverfisgalleríi neðst við Hverfisgötu í Reykjavík. Hrafnkell horfir þar út í geim og aftur í tímann og finnur efni í tóminu.
    55 min
  • Land undir fót, Brothers og Okkar á milli eftir Sally Rooney
    Á sumarsýningu Listasafns Reykjavíkur , Einskismannsland - Ríkir þar fegurðin ein? er að finna í einum salnum í Hafnarhúsinu stórt verk sem Ósk Vilhjálmsdóttir stendur fyrir. Ósk segir okkur frá verkinu eftir stutta stund.
    Lagið Claimstaker með Björk Guðmundsdóttur.
    Óperan Brothers eftir Daníel Bjarnason var sýnd í Hörpu um helgina, á vegum Íslensku óperunnar en uppfærslan kemur hingað til lands frá Árósum. María Kristjánsdóttir var meðal gesta í Eldborg á laugardagskvöld og segir okkur frá.
    Skáldsagan Okkar á milli, eftir írska rithöfundinn Sally Rooney er komin út í íslenskri þýðingu Bjarna Jónssonar, hjá bókaútgáfunni Benedikt. Bókin hefur slegið í gegn víðsvegar um heim og þykir framúrskarandi frumraun höfundar. Bjarni segir okkur frá bókinni og glímu þýðandans.
    umsjón: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Guðni Tómasson
    55 min
  • Brothers, kynin í meðferð Guðbergs, Tregahandbókin og Modiano
    Óperan Brothers eftir Daníel Bjarnason kemur nú til Íslands á vegum Íslensku óperunnar. Tónskáldið, Daníel heimsækir Víðsjá.
    Katrín Harðardóttir, doktorsnemi í þýðingarfræðum segir frá rannsókn sinni á þýðingum Guðbergs Bergssonar með tilliti til femínískra fræða.
    Tregahandbókin nefnist nýútkomið ljóða- og hugleiðingasafn Magnúsar Sigurðssonar, þar sem ægir saman textum úr ýmsum áttum - frumsömdum og fengnum að láni.
    Við heyrum brot úr viðtali við Sigurð Pálsson um bók vikunnar, þýðingu hans á Svo þú villist ekki í hverfinu hérna eftir Patrick Modiano.
    Umsjónarmenn: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Guðni Tómasson
    55 min
  • Tvöfalt afmæli, Bókverk, Modiano og Forystu-Flekkur
    Við heimsækjum Hafnarborg, en þar var um helgina opnuð afmælissýningin 35/30, þar sem sýnd eru valin verk úr safni Hafnarborgar. Við ræðum við forstöðukonuna og sýningarstjórann Ágústu Kristófersdóttur.
    Við heyrum lestur Sigurðar Pálssonar úr bókinnni Svo þú týnist ekki í hverfinu hérna eftir Patrick Modiano. Sigurður þýddi bókina en hún er nú bók vikunnar á Rás 1.
    Rætt er við Unnar Örn, annan sýningarstjóra sýningarinnar Bókverk í Safnahúsinu, þar sem sýnd eru bókverk úr safnkosti Landsbókasafnsins. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík.
    Forystu-Flekkur heitir bók sem kom fyrst út árið 1950 þar sem safnað var saman sögum af dýrum. Nú hefur hún verið endurútgefin og útgefandinn Bjarni Harðarson bóksali er gestur þáttarins.  
    Umsjónarmenn: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Guðni Tómasson
    55 min
  • Hrafnhildur til Feneyja, Leikárið, Robert Kennedy og safnaverðlaunin.
    Víðsjá 5.6.2018
    Rætt við Maríu Kristjánsdóttur og Snæbjörn Byrnjarsson um leikárið vegna grímunnar.
    Gripið fréttaauka frá 1968 um morðið á Robert Kennedy
    Skilaboð frá Nýló : Dorothea Kirch flytur pistil um safnið, myndlist og Ísland.
    Sagt frá því að Listasafn Árnesinga fékk Safnaverðlaunin 2018.
    LAG: Puro Teatro með Flor de Toloache
    Hrafnhildur Arnardóttir (Shoplifter) var valin í gær til að vera fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum næsta ár. Hún er gestur Víðsjár.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Þórlaug Óskarsdóttir
    55 min
  • Gerður Helgadóttir, ljóð og ljósmyndun, sænska nóbelsakademían og köng
    Í dag opnar yfirlitssýning á verkum Gerðar Helgdóttur i Gerðarsafni í Kópavogi en listakonan hefði fagnað níutíu ára afmæli í ár hefði hún lifað. Við heimsækjum Gerðarsafn og ræðum þar við Kristínu Dagmar Jóhannesdóttur og Brynju Sveinsdóttur um Gerði og verk hennar.
    Sigubjörg Þrastardóttir ljóðskáld heimsækir okkur og segir frá bókinni og sýningunni Augnhljóð en þar urðu ljóð fjögurra íslenskra ljóðskálda til upp úr ljósmyndum sem dönsku listakonurnar Iben West og Else Ploug Isaksen tóku, en samnefnd sýning, Augnhljóð, verður opnuð í ljósmyndasal Þjóðminjasafns Íslands þar sem hún mun standa í vetur.
    Gauti Kristmannson bókmenntarýnir þáttarins mætir með nýjan pistil, þar sem hann veltir fyrir sér fortíð og framtíð Nóbelsverðlaunanna og óróanum sem skekur sænsku Nóbelsakademíuna.
    Og við heyrum Kristínu Ómarsdóttur segja frá ljóðabók sinni Köngulærnar í sýningarglugganum, sem hlaut ljóðabókaverðlaunin Maístjörnuna í vikunni, og sem er bók vikunnar á Rás1.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Manfreð Vilhjálmsson, Kira Kira, Siffon og damask, París norðursins
    Við förum út á Álftanes og heimsækjum Manfreð Vilhjálmsson arkitekt en hann fagnaði níræðisafmæli sínu á dögunum. Manfreð bauð okkur heim í Smiðshús, tilraunahúsið sem hann hannaði og flutti svo í með fjölskyldu sinni árið 1961.
    Tónlistarkonan Kira Kira heimsækir Víðsjá með nýja plötu í farteskinu, Alchemy and friends.
    Sigrún Ása Sigmarsdóttir kemur einnig í þáttinn og segir frá nýútkominni ljóðabók sinni Siffon og damask. Bókin er fyrsta ljóðabók Sigrúnar Ásu og sú 31. í seríu Meðgönguljóða.
    Guja Dögg Hauksdóttir flytur sinn síðasta pistil í bili um borgarlandslagið, sem hún kallar París norðursins.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,840 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners