Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómum telur að fjöldi kórónuveirusmita á dag verði svipaður út þennan mánuð. Það ráðist þó mjög mikið af atferli fólks og smitvörnum. Róbert Jóhannsson tók saman.
Enn stendur vindmylla sem kviknaði í um áramótin í Þykkvabænum. Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar hefur reynt í fjórgang að fella hana í dag. Magnús Geir Eyjólfsson hefur fylgst með í Þykkvabænum og ræddi við Gyðu Árnýju Helgadóttur íbúa í grenndinni.
Ríkissaksóknari í Svíþjóð hefur ákært konu fyrir stríðsglæpi. Hún er sökuð um að hafa gert syni sínum kleift að berjast með vígasveitum Íslamska ríkisins í Sýrlandi. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Búist er við vonskuveðri með djúpri lægð sem gengur yfir landið annað kvöld og nótt. Verst er spáin fyrir suðvesturhornið. Anna Þorbjörg Jónasdóttir ræddi við Dóru Björk Gunnarsdóttur, hafnarstjóra í Vestmannaeyjum og Gísla Jóhann Hallsson yfirhafnsögumann hjá Faxaflóahöfnum.
Þrjú kórónuveirusmit urðu til þess að skellt var í lás í kínversku borginni Yuzhou í Henan-héraði. Íbúum er skipað að halda sig heima, almenningssamgöngur hafa verið stöðvaðar og verslunum lokað. Arnar Björnsson sagði frá.
-------
Laun í sóttkví verða í boði út þetta ár hið minnsta. Verkefnið Hefjum störf og greiðslur til íþróttafélaga runnu út um áramótin. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir gleðilegt hversu margir fengu varanlega ráðningu í gegnum Hefjum störf. Bjarni Rúnarsson ræddi við Unni Sverrisdóttur forstjóra Vinnumálastofnunar.
Áralangar rannsóknir á lífi og leikjum ungmenna við háskólann í Osló benda til að núna sé að vaxa úr grasi ný, ábyrg og vel menntuð kynslóð, sem tekur foreldrum sínum fram í flestu. Og það er snjallsíminn sem gerir gæfumuninn. Gísli Kristjánsson í Ósló segir frá.
Dómstóll í San Jose í Kaliforníu dæmdi í gær Elizabeth Holmes 37 ára gamalan stofnanda fyrirtækisins Theranos fyrir fjársvik og hafa blekkt þá sem fjárfestu í sprotafyrirtæki hennar. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá risi og falli Holmes.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsson. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttur.