Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsdóttir
Björn Zoega, ráðgjafi heilbrigðisráðherra um breytingar á starfsemi Landspítalans, segir hægt að hugsa skipulag hans upp á nýtt. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra líkir aðkomu Björns við að fá Lionel Messi í íslenska fótboltann. Andri Yrkill Valsson tók saman.
Rússlandsforseti óskar eftir tafarlausum viðræðum um öryggismál við Atlantshafsbandalagið og bandarísk stjórnvöld. Spenna fer vaxandi vegna fjölmenns rússnesks herliðs við landamæri Úkraínu. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Hugmyndafræði geðheilbrigðismála, samfélagsþjónusta og húsnæðismál eru í ólestri segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Geðheilbrigðismálum hafi ekki verið sinnt sem skyldi í áratugi. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við hann.
Læknir sem grunaður er um að hafa veitt fólki lífslokameðferð að tilefnislausu þegar hann starfaði á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, hefur verið færður til í starfi innan Landspítalans.
Pósthólf þingmanna fyllast af neyðarköllum fátæks fólks, sögðu þingmenná Alþingi í dag. Jódís Skúladóttir (V) og Ásthilidur Lóa Þórhallsdóttiru (F). Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman.
UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, samþykkti í dag að skrá smíði og notkun súðbyrðinga á skrá sína yfir óáþreifanlegan menningararf. Sigurbjörg Árnadóttir formaður Vitafélagsins sem rekið hefur málið fagnar því.
Frá og með áramótum geta eigendur ökutækja sem notuð eru í Grímsey, Flatey eða Hrísey fengið undanþágu frá skoðunarskyldu. Ingólfur Sigfússon, formaður hverfisráðs Hríseyjar óttast að með þessu verði umferðaröryggi fórnað. Óðinn Svan Óðinsson talaði við hann.
----------
Hrefna Sverrisdóttir, stjórnarformaður samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði segir stuðningsaðgerðir stjórnvalda einungis hafa nýst veitingastöðum að litlu leyti og þær sem best hafi nýst ýti undir skuldsetningu. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við hana.
Það er stöðug og vaxandi stígandi í tölvuárásum eftir að öryggisgalli fannst í síðustu viku segir Anton Már Egilsson aðstoðarforstjóri Syndis. Tölvuglæpir séu þaulskipulagður og umfangsmikill iðnaður þar sem lunginn af árásum sé sjálfvirkur. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann.
Noregi veldur kóvið því að stór menningarverk eru sett í bið. Núna er búið að fresta dýrustu kvikmynd Noregssögunnar önnur jólin í röð. Gísli Kristjánsson í Osló segir frá.