Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

Víðsjá episodes

  • Hliðræn snjókorn, Ljónið, Hönnunarsafnið, Blekfjelagið og Fullveldið
    Við lítum inn á sýningu í Bismút galleríi við Hverfisgötu, en þar sýnir Atli Bollason silkislæður með mynstri sem hann vinnur upp úr snjókornum af sjónvarpsskjá.
    Steinunn Inga Óttarsdóttir rýnir í skáldsöguna Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur
    Við sláum á þráðinn til Hönnunarsafnsins, sem setur upp forvitnilega sýningu á Instagram í tilefni af fullveldisafmæli þjóðarinnar.
    Blekfjelagið, félag ritlistarnema við Háskóla Íslands, hefur undanfarin ár lesið inn örsögur í Víðsjá í aðdraganda jólanna. Í dag verður hefðin tekin upp að nýju og að þessu sinni eru það Anna Björg Siggeirsdóttir, Þórunn Júlíusdóttir og Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir sem lesa einnar mínutu langa sögu hver.
    En við byrjum á fullveldinu.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Keisaramörgæsir, nýjir íslenskir fánar, Insomnia, kvenfólk og uppáhald
    Við ræðum við Þórdísi Helgadóttur skáld um hennar fyrstu bók, Keisaramörgæsirnar, sem kom út á dögunum.
    Einnig verður rætt við grafíska hönnuðinn Hörður Lárusson og myndlistarkonuna Elínu Hansdóttur um nýja fána fyrir íslenska þjóð.
    María Kristjánsdóttir, fjallar um tvær sýningar í þætti dagsins, Kvenfólk í Borgarleikhúsinu og Insomniu í Þjóðleikhúsinu.
    Og að lokum mun Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri kúabænda, segja frá sínu uppáhaldslistaverki.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Laumulist, Hið heilaga orð, Sjálfvirkni og Bandalag íslenskra listaman
    Við setjumst niður á grjónapúða með kaffibolla í Nýlistasafninu, en í dag opnar Laumulistasamsteypan þar sýninguna Kaffipásu. Við ræðum við Ásgerði Birnu Björnsdóttur, einn af stofnendum Laumulistasamsteypunnar, og nokkra meðlimi samsteypunnar, yfir rjúkandi bolla og fáum að heyra af Kaffipásu sem stendur yfir í 6 daga. Sigríður Hagalín segir frá skáldsögu sinni Hið heilaga orð, en hún er bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni. Inga Björk Bjarnadóttir myndlistarrýnir Víðsjár segir frá upplifun sinni af sýningunni Sjálfvirk eftir Söru Riel og að endingu verður Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna, gestur þáttarins. Við ræðum við hann um menningarpólitík og áherslur bandalagsins. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    0 min
  • Mannlíf milli húsa, Svejk, hýbýli listamanna og tónlistarhátíð Rásar1
    Í Víðsjá í dag verður rætt við Önnu Maríu Bogadóttur, lektor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands, en hún gaf nýverið út bókina Mannlíf milli húsa eftir Jan Gehl. Rætt verður við Önnu Maríu um hugmyndir Gehls um almenningsrýmið og hvernig þær hafa haft áhrif á borgir eins og Kaupmannahöfn og Reykjavík.
    Halla Þórlaug Óskarsdóttir sendir hlustendum pistil frá Svíþjóð og veltir fyrir sér húsum látinna listamanna.
    Við heyrum einnig í Finni Karlssyni og Þuríði Jónsdóttur en þau eru meðal fjögurra tónskálda sem eiga verk á Tónlistarhátíð Rásar 1 - Efnið og andinn sem fer fram í Hörpu annað kvöld og verður jafnframt í beinni útsendingu.
    Eins og dyggir hluste ndur Rásar 1 hafa eflaust þegar orðið varir við, þá hófst lestur nýrrar kvöldsögu hér á rásinni á þriðjudag, en þar er um að ræða löngu sígildan upplestur Gísla Halldórssonar á þýðingu Karls Ísfells á sögu Jaroslavs Haseks á góða dátanum Svejk. Í útvarpsþáttum frá 1989 fjallaði bókmenntafræðingurinn Friðrik Rafnsson um austur-evrópskrar bókmenntir og í einum þáttanna fjallaði hann saman um sögupersónurnar Josef K, úr réttarhöldum Frans Kafka, og Góða dátan Svejk, en þeir Kafka og Hasek fæddust báðir 1883 í Prag. Við hér í Víðsjá leyfum okkur að grípa á nokkrum stöðum niður í þennan þátt Friðriks úr safni útvarpsins.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Móðirin í Grafarvogskirkju, Ísak Harðarson, Sinfónískar konur og ástin
    Í Víðsjá dagsins verður myndlistarkonan Kristín Gunnlaugsdóttir sótt heim en verk hennar, Móðirin frá árinu 2012, hangir nú uppi í kapellunni í Grafarvogskirkju. Rætt er við Kristínu um verkið sem vekur meðal annars upp spurningar um sköp kvenna sem tabú í samfélaginu en einnig stöðu konunnar innan kirkjunnar.
    Gauti Kristmannson sér um bókarýni dagsins, sem í þetta sinn fjallar um nýjustu ljóðabók Ísaks Harðarsonar, Ellefti snertur af yfirsýn.
    Sinfóníuhljómsveit Norðurlands mun um helgina efna til tónleika undir nafninu Sinfónískar konur í tilefni aldarafmælis Jórunnar Viðar, undir stjórn Hallfríðar Ólafsdóttur. Nánar verður rætt um tónleikana við Hallfríði í þætti dagsins.
    Og að lokum er rætt við bassasöngvarann Andra Björn Róbertsson sem heldur tónleika í Tíbrár-tónleikaröð Salarins annað kvöld ásamt píanóleikaranum Edwige Herchenroder.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Einar Jónsson, díva 20.aldarinnar, Ellefti snertur af yfirsýn, landsla
    Í Víðsjá er rætt við Ólaf Kvaran, prófessor í listasögu, um nýútgefna bók hans um Einar Jónsson. Það er Hið íslenska bókmenntafélag sem gefur út bókina, sem kallast Einar Jónsson myndhöggvari: Verk, táknheimur og menningarsögulegt samhengi.
    Einnig verður rætt við rithöfundinn Ísak Harðarson, um nýútgefna ljóðabók hans, Ellefti snertur af yfirsýn, en hún er bók vikunnar á Rás1.
    Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, umhverfisheimspekingur, flytur sinn fjórða pistil í pistlaseríu sinni um landslag og fegurð og að lokum verður rætt við Brynhildi Einarsdóttur, kennara í Menntaskólanum við Sund, um það listaverk sem hefur hafst hvað mest áhrif á hana. Við ætlum ekki að gefa uppi hvaða listaverk um er að ræða, en ein mesta díva 20.aldarinnar kemur þar mikið við sögu.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Flóra Íslands, Snjáldurmúsarmúmían, Nýlistasafnið, Sextíu kíló af sóls
    Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði, er gestur Víðsjár í dag, en hún er einn höfunda nýútgefinnar Flóru Íslands. Þóra segir meðal annars frá sérstöðu íslenskrar flóru og hvaða áhrif loftslagsbreytinga gætu haft á hana.
    Við lítum til Vínarborgar í þætti dagsins, en Listasögusafnið þar í borg opnaði nýverið sýninguna „Snjáldurmúsamúmían og aðrar gersemar“ sem leikstjórinn Wes Anderson setti saman ásamt eiginkonu sinni, rithöfundinum Juman Malouf.
    Steinunn Inga Óttarsdóttir, bókmenntarýnir Víðsjár, segir frá sinni upplifun af nýjustu skáldsögu Hallgríms Helgasonar, Sextíu kíló af sólskini.
    Og við heyrum í tveimur af tónskáldunum sem fram koma á Tónlistarhátíð Rásar 1 í Kaldalóni í Hörpu þann 23.nóvember; þeim Valgeiri Sigurðssyni og Halldóri Smárasyni. Þemað þar eins og í verkefninu öllu er, eins og hlustendur heyrðu af hér fyrr í vikunni, “Efnið og andinn“.
    En við byrjum á sendingu frá Nýlistasafninu, okkur hafa borist mánaðarlegir pistlar í tilefni af fertugasta afmælisári safnsins. Að þessu sinni er það myndlistarkonan Anna Líndal sem kveður sér hljóðs.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    54 min
  • Meetoo og guðfræðin, Buster Keaton og Svanur, Róf og uppáhaldsverkið.
    Arnfríður Guðmundsdóttir, prestur og guðfræðingur, kemur í þáttinn og segir frá áhrifum Meetoo-byltingarinnar á guðfræðina, en Arnfríður hélt erindi um efnið á málþingi Guðfræði -og trúarbragðardeildar Háskóla Íslands á mánudaginn.
    Auður Jónsdóttir rithöfundur segir frá listaverki sem hafði fyrir ekki svo löngu djúpstæð áhrif á hana og fyrir valinu verður þýsk kvikmynd.
    Starkaður Sigurðarson, myndlistarrýnir þáttarins, mætir líka í heimsókn og rýnir í Róf, sýningu Haralds Jónssonar á Kjarvalstöðum.
    En við byrjum á nærri 100 ára gamalli kvikmynd sem sýnd verður við lifandi undirleik heillrar lúðrasveitar á bíótónleikum í Norðurljósum í Hörpu klukkan 14 á laugardag. Þar er lúðrasveitin Svanur á ferðinni með sígilda þögla kvikmynd Busters Keaton frá árinu 1926. Sveitin verður þar undir stjórn Carlosar Caro Aguilera og flytur nýja tónlist við myndina eftir tónlistarmanninn Davíð Þór Jónsson sem einnig leikur með sveitinni á píanó.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    54 min
  • Íslensku fornritin, Tvískinnungur, Kristur í Eboli, Ófullkominn maður,
    Halla Oddný Magnúsdóttir verður viðmælandi okkar í þætti dagsins, en hún mun segja frá tónlistarhátíð Rásar 1 sem haldin verður í Hörpu þann 23. nóvember næstkomandi, þar sem frumflutt verða fjögur ný verk eftir íslensk tónskáld.
    María Kristjánsdóttir kemur í stúdíó til okkar með rýni á Tvískinnung, nýtt íslenskt leikverk eftir Jón Magnús Arnarson, sem frumsýnt var um liðna helgi í Borgarleikhúsinu.
    Bók vikunnar að þessu sinni er ítölsk og frá árinu 1947, Kristur nam staðar í Eboli eftir ítalska málarann, lækninn og rithöfundinn Carlo Levi. Við heyrum lestur úr bókinni í þættinum fáum svo að heyra hvað Stefano Rosatti, aðjúnkt í ítölsku við Háskóla Íslands, hefufr um bókina að segja.
    Ragnar Ísleifur Bragason flytur pistil sem að þessu sinni fjallar um ófullkomnan mann og við fáum Ragnar líka til að segja okkur frá sviðslistahátíðinni Everybodys Spectacular sem hefst á morgun, miðvikudag, en Ragnar Ísleifur verður þar með nýtt verk sem fjallar um dag í lífi gamals manns.
    En fyrsti gestur Víðsjár er Þorleifur Hauksson íslenskufræðingur sem ætlar núna kl. 17 að deila hugleiðingum sínum og reynslu um handritaarfinn í Árna Magnússonar fyrirlestri í Norænahúsinu. Við hittum Þorleif og spurðum í hann út í fyrstu reynslu hans af vafstri með þennan merka arfi.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Boekie Woekie, Uppáhaldslistaverkið, stjórnarskrá Íslands og Sinfóníuh
    Við sláum á þráðinn til Tokyo og heyrum í samferðarfólki Sinfóníuhljómsveitar Íslands og tónleikagestum á einum af tónleikum sveitarinnar í landi hinnar rísandi sólar. Og Víðsjá fer víðar í dag, í bókabúðina Boekie Woekie í Amsterdam. Rúna Þorkelsdóttir, eigandi búðarinnar, segir í þættinum frá sögu búðarinnar sem hefur verið starfrækt þar í borg frá árinu 1986.
    Leikkonan og rithöfundurinn Þóra Karítas Árnadóttir kemur í þáttinn og segir frá sínum uppáhaldslistaverkum og Ólafur Ólafsson myndlistarmaður segir frá vinnustofu sem hann og Libia Castro starfræktu í tengslum við nýafstaðna Cycle hátíð þar sem nýtt myndlistar- og tónlistarverk er í smíðum og þar sem texti verksins kemur úr nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    53 min

About Víðsjá

From the publisher's feed

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

More shows like Víðsjá

Radiolab by WNYC Studios

Radiolab

43,840 Listeners

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

21 Listeners

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Vísindavarp Ævars by RÚV

Vísindavarp Ævars

8 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

6 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Bara bækur by RÚV

Bara bækur

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners